Morgunblaðið - 16.05.2013, Page 12
SVIÐSLJÓS
Lára Halla Sigurðardóttir
larahalla@mbl.is
„Það eru enn himinháir skaflar og
sumstaðar er búið að grafa djúpar
rásir og göng í kringum húsin,“ segir
Jón Þórarinsson, sauðfjárbóndi á
bænum Hnjúki í Skíðadal. Síðustu
daga hafa geislar sólarinnar náð að
bræða dálítinn snjó yfir daginn, en
það virðist þó duga skammt. „Snjór-
inn hefur sigið og breyst dálítið,“
segir Jón. „Hann hefur ekki minnkað
mikið.“
Sér ekki í auðan blett
Sauðburður stendur víða sem hæst
en sumir bændur hafa þó ekki tök á
að hleypa nýbornum lömbum út,
leyfa þeim að líta dagsins ljós og
hreyfa sig. „Það er enn svo slæmt á
sumum bæjum að það sér hvergi í
auðan blett,“ segir Jón. „Það er enn
víða þannig að það er rúmlega metra
þykkur snjór yfir öllum túnum.“
Sjálfur fékk Jón aðstoð frá manni
sem gróf með gröfu út úr stórum
snjóskafli við húsin. „Það kom upp sú
hugmynd að Dalvíkurbær geti að-
stoðað bændur með því að hreinsa
snjó frá útihúsum svo bændur komi
lambfé út úr húsum,“ segir Jón, en
hann fór ásamt Berki Þór Ottóssyni,
sviðsstjóra umhverfis- og tæknideild-
ar Dalvíkurbyggðar, í gær og kann-
aði stöðuna á bæjunum í kring.
Þetta eru náttúruhamfarir
Aðspurður segist Jón ekki vita
hvernig túnin komi út úr þessu mikla
og langvarandi fannfergi. „Það getur
enginn látið sér detta það í hug
ennþá,“ segir hann. Í samtali við
Morgunblaðið í lok apríl vonaðist
hann til að geta sett lambféð út eftir
hálfan mánuð. „Það hefur enn ekki
tekist að setja það út í rétt,“ segir
Jón núna, rúmum hálfum mánuði síð-
ar.
Hann segir bændur í sveitinni
binda vonir við fyrirhugaðar aðgerðir
Dalvíkurbyggðar um mokstur við
bæina. „Þessir blettir gætu þá þorn-
að á tveimur til þremur dögum,“ seg-
ir Jón. „Það er góð spá fyrir næstu
helgi og þá er möguleiki á að menn
geti komið kindunum inn á þessa
auðu bletti.“
Nokkur heyskortur hefur verið hjá
bændum á Norðurlandi. „Enn er ver-
ið að keyra hey frá Suðurlandinu,“
segir Jón. „Það er gríðarlega mikið
magn sem búið er að flytja hingað.“
Hann segir að enn hafi ekki borist
svör frá Bjargráðasjóði um mögu-
legar bætur til bænda vegna þessa
langa veturs. „Þetta er sambærilegt
því sem gekk yfir í haust. Þetta eru
náttúruhamfarir.“
Hafa ekki tækjakost
Nýlega voru send út dreifibréf til
sauðfjárbænda í Dalvíkurbyggð þar
sem bændur voru beðnir að hafa
samband við sveitarfélagið ef þeir
teldu sig þurfa á aðstoð að halda
vegna fannfergis. „Eftir það fengum
við viðbrögð frá þeim sem töldu sig
þurfa á aðstoð að halda,“ segir Börk-
ur Þór. Málið verður tekið fyrir í
byggðarráði Dalvíkurbyggðar í dag
og verður þá tekin ákvörðun um að-
stoð til bændanna. Að sögn Barkar
eru þetta fimm til sex bæir sem um
ræðir og eru þeir allir í Svarfaðar-
og Skíðadal. „Þessir bændur hafa
ekki tækjakost til að koma sauðfénu
úr húsi,“ segir Börkur
Aðstoðin snýst í meginatriðum um
að hjálpa bændum að moka frá hús-
unum þannig að hægt sé að koma
kindunum út. „Það er ekki verið að
tala um að moka heilu túnin,“ bætir
hann við.
Börkur segir enn mikinn snjó á
þessu svæði. „Þetta minnkar auðvit-
að með hverjum deginum en það
skiptir bændurna sérstaklega miklu
máli að koma kindunum út núna,“
segir hann. „Við munum reyna að
aðstoða þá sem óskuðu eftir því.“
„Þetta eru náttúruhamfarir“
Snjórinn hefur ekki minnkað að verulegu leyti Bændur eiga erfitt með að hleypa út nýbornu fé
Dalvíkurbyggð aðstoði bændur við mokstur frá húsum Hafa fengið talsvert hey frá Suðurlandi
Ljósmynd/Jón Þórarinsson
Bítur hægt á Svona var staðan á bænum Hnjúki í Skíðadal í Dalvíkurbyggð í gær, miðvikudaginn 15. maí. Snjórinn
hefur ekki minnkað að verulegu leyti síðasta hálfa mánuðinn og hafa sumir sauðfjárbændur ekki tök á að setja fé út.
Hús á kafi Lítið hefur breyst á Hnjúki í Skíðadal síðan í lok apríl. Þá höfðu
þó ekki verið grafin göng milli íbúðar- og fjárhúss líkt og í dag.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson,
formaður Bændasamtaka Ís-
lands, kannaði stöðu mála á
Norðurlandi í byrjun maí. „Það
er búið að fara vel yfir þetta,“
segir hann. „Menn þurfa að sjá
hvernig vorinu vindur fram.“
Aðspurður segir Sigurgeir að
bændur eigi rétt á styrk úr
Bjargráðasjóði vegna kals og
girðinga. Vasar sjóðsins eru þó
ekki djúpir og að sögn Sigur-
geirs hrekkur fé hans ekki til
þegar náttúran grípur inn í með
svo öfgakenndum hætti. „Ég
tel, að ef illa fer þurfi að tryggja
sjóðnum aukna fjármuni,“ segir
hann. Sigurgeir sagði lausnir í
þessu máli þó að einhverju leyti
á ís á meðan stjórnarmynd-
unarviðræður ættu sér stað.
Eiga rétt
á styrk
SJÓÐURINN DUGAR EKKI
Vesturhraun 5
Garðabæ
Mán.–fös.: 08:00–17:00
Sími: 530 2000
Bíldshöfði 16
Reykjavík
Mán.–fim.: 08:00–18:00
Föstudaga: 08:00–17:00
Laugardag: 10:00–14:00
Sími: 530 2002
Smiðjuvegi 11e, gul gata
Kópavogi
Mán.–fös.: 08:00–17:00
Sími: 530 2028
Freyjunes 4
Akureyri
Mán.–fös.: 08:00–12:00
13:00–17:00
Sími: 461 4800
VIÐ
ERUM
WÜRTH
www.wurth.is
Viðar Arason
Söluráðgjafi
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla
– landssamtaka foreldra voru af-
hent í 18. sinn í gær við hátíðlega
athöfn í Þjóðmenningarhúsinu.
Mennta- og menningarmálaráð-
herra, Katrín Jakobsdóttir, afhenti
verðlaunin.
Sveitadagar að vori í Varmahlíð-
arskóla hlutu Foreldraverðlaun
Heimilis og skóla 2013. Markmiðið
með verkefninu er að nemendur
kynnist störfum í sveit og læri
þannig að þekkja mikilvægi land-
búnaðar í heimahéraði. „Verkefnið
tekur vel á tengslum grunnskólans
við nærsamfélagið og með því nær
skólinn að tileinka sér tengsl og
þekkingu á sinni heimabyggð sem
eru eitt af einkennum skólastarfs-
ins. Verkefnið sýnir þá hugvitssemi
og elju sem foreldrar og starfsfólk
skólans hafa,“ sagði Brian D. Mar-
shall, formaður dómnefndar.
Hvatningarverðlaun 2013 hlaut
Barnabær – verkefni sem starfrækt
er á Stokkseyri og Eyrarbakka.
Sérstaka viðurkenningu fengu
samtökin SAMFOK, Samtök for-
eldra og barna í Reykjavík, sem
fagna þrjátíu ára afmæli í ár.
Verðlaun Fulltrúar Varmahlíðarskóla, sem fengu Foreldraverðlaunin,
ásamt menntamálaráðherra og formanni Heimilis og skóla.
Varmahlíðarskóli
verðlaunaður
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla