Morgunblaðið - 16.05.2013, Síða 18
VIÐTAL
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
„Þeir hafa mikla þörf fyrir að komast
yfir auðlindir til þess að geta fóðrað
efnahagslíf sitt og ef Bandaríkin
leggja ekki næga áherslu á að
styrkja tengslin við ríki eins og Ís-
land í gegnum vinsamleg samskipti
og fjárfestingar þá munu Kínverjar
gera það. Og það þjónar til lengri
tíma litið hvorki hagsmunum Banda-
ríkjanna né Íslands.“
Þetta segir Richard S. Williamson,
fyrrverandi sendiherra Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum, í
samtali við Morgunblaðið en hann
var staddur hér á landi um síðustu
helgi. Williamson á að baki langa
reynslu úr bandarísku utanríkis-
þjónustunni og hefur meðal annars
starfað sem ráðgjafi tveggja forseta
Bandaríkjanna í utanríkismálum,
þeirra Ronalds Reagans og George
Bush eldri.
Farið of langt í hina áttina
Williamson gagnrýnir Barack
Obama, Bandaríkjaforseta, harðlega
fyrir að hafa ekki gætt hagsmuna
Bandaríkjanna í utanríkismálum.
Hann hafi enda aldrei haft mikinn
áhuga á þeim málum. Hann segir að
George W. Bush hafi í forsetatíð
sinni færst of mikið í fang en Obama
hafi hins vegar farið of langt í hina
áttina. Áhugi hans sé á innanlands-
málum og þá einkum velferðarmál-
um. Þá hafi erfitt efnahagsástand
heima fyrir dregið athygli hans frá
hagsmunum Bandaríkjanna erlendis
auk þess sem þreyta sé til staðar
vegna langvarandi hernaðaraðgerða
í Afganistan og Írak.
„Ég tel að forsetinn hafi sýnt af
sér kæruleysi með því að sinna ekki
skyldum sínum í þessum efnum,
hunsa þær og gefa eftir hagsmuni
Bandaríkjanna á alþjóðavísu,“ segir
Williamson. Hann segist þeirrar
skoðunar að Obama hafi ekki skiling
á stöðu Bandaríkjanna í heiminum,
hagsmunum þeirra út á við og mik-
ilvægi þess að standa vörð um vest-
ræn gildi sem þau deili með ríkjum
eins og til að mynda Íslandi og
grundvallist á óafsalanlegum mann-
réttindum. Obama telji þau gildi góð
en það sama eigi hins vegar líka við
um önnur gildi.
Skammast sín fyrir mistökin
„Ég held að hann skammist sín
fyrir það forystuhlutverk sem
Bandaríkin hafa haft í heiminum og
sum af þeim mistökum sem við höf-
um gert. Bandaríkin hafa vitanlega
gert mistök en við gegndum einnig
lykilhlutverki í að sigrast á nasism-
anum, fasismanum, kommúnisman-
um og alræðishyggjunni og við að
halda kyndli frelsisins á lofti.“
Williamson segir afleiðingarnar af
stefnu Obama sjást vel í tengslum
við borgarastríðið í Sýrlandi þar sem
Bandaríkjamenn hafi haldið að sér
höndum í stað þess að taka af skarið
á meðan 70-80 þúsundir manna hafi
verið drepnar og hundruð þúsunda
manna séu á vergangi í flóttamanna-
búðum í nágrannaríkjunum. Þannig
séu 600 þúsund flóttamenn í Jórd-
aníu og 250-300 þúsund í Tyrklandi.
Flóttamenn sæki einnig í miklum
mæli til Íraks og Líbanons. Þær að-
stæður grafi undan stöðugleika á
svæðinu.
Íran hagnast á ástandinu
„Síðan stöndum við frammi fyrir
þeirri staðreynd að það ríki sem
hagnast mest á þessu ástandi er Ír-
an. Ríki sem er helsti stuðningsaðili
hryðjuverkastarfsemi í heiminum.
Þeir eru að sigra í þessari baráttu
vegna þess að við erum ekki að veita
þeim mótspyrnu. Og Rússland og
Kína hagnast einnig á þessu ástandi.
Þetta grefur undan stöðu og hags-
munum Evrópu, Bandaríkjanna og
vestrænna ríkja og þeim grunngild-
um sem þau byggja á.“
Sýrland sé þannig gott dæmi um
það sem gerist þegar Bandaríkin
neiti að veita forystu á alþjóðavett-
vangi. Það sé hvorki Bandaríkjunum
sjálfum né vinaþjóðum þeirra, sem
deila sömu gildum, arfleifð og sögu, í
hag. Það sjáist líka í sókn Kínverja
víða um heim og ekki síst á norð-
urhveli jarðar.
Öfgamenn hafa fyllt tómarúmið
„Ef Bandaríkin taka ekki að sér að
veita slíka forystu þá verður það
tómarúm sem skapast við það fyllt af
einhverjum öðrum. Við höfum orðið
vitni að því hvernig öfgaöfl hafa fyllt
það tómarúm sem skapaðist í Sýr-
landi vegna þess að við neituðum
að aðstoða uppreisnarmennina
fyrir tveimur árum síðan.
Þessi öfgaöfl hafa náð þeim
árangri sem þau hafa náð að
hluta til vegna þess að við
gerðum þeim það kleift
með því að láta
ástandið afskipta-
laust,“ segir Willi-
amson.
„Erum ekki að veita mótspyrnu“
Fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ segir ástandið í Sýrlandi til marks um það sem gerist
þegar Bandaríkjamenn haldi að sér höndum Gagnrýnir harðlega utanríkisstefnu Baracks Obama
AFP
Utanríkismál Richard S. Williamson, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, segist telja að Barack Obama,
Bandaríkjaforseti, hafi ekki sinnt þeirri skyldu sinni að gæta hagsmuna Bandaríkjamanna á alþjóðavísu.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
Á aðalfundi Mývatnsstofu, sem
haldinn var í vikunni, var samþykkt
ályktun þar sem lýst er áhyggjum
af litlum fjármunum til uppbygg-
ingar á ferðamannastöðum. Úrbæt-
ur séu víða brýnar til að koma í veg
fyrir óafturkræf náttúruspjöll.
„Aðalfundur Mývatnsstofu lýsir
áhyggjum af þeim farvegi sem
þessi mál virðast vera að fara inn í,
þar sem einstakir landeigendur
hyggjast selja ferðamönnum að-
gang að náttúruperlum.
Aðalfundurinn skorar því á Sam-
tök ferðaþjónustunnar og stjórn-
völd að hefja nú þegar gjaldtöku af
ferðamönnum sem staðið geti undir
nauðsynlegri uppbyggingu og
rekstri á ferðamannastöðum á
næstu árum, sem verði öllum til
hagsbóta,“ segir í ályktuninni.
Við Mývatn Lambfé á beit í sólinni.
Gjald verði tekið af
ferðamönnum
Vinnuhópur
Sameinuðu þjóð-
anna um mis-
munun gagnvart
konum í lögum
og framkvæmd
mun dvelja á Ís-
landi frá 16.-23.
maí til að meta
hvernig tekist
hefur til að ná
fram jafnrétti
kynjanna sem og
vernda og efla réttindi kvenna hér
á landi.
„Vinnuhópurinn hefur sérstakan
áhuga á að skoða lög, lagaumbætur
og stefnumál sem ríkisstjórnin kom
í framkvæmd til að efla réttindi
kvenna og stuðla að jafnrétti
kynjanna,“ segir Kamala Chand-
rakirana, sem fer fyrir hópnum.
Reynt verður að leggja mat á hvaða
áhrif fjármálahrunið árið 2008
hafði á réttindi kvenna og til hvaða
aðgerða var gripið í því skyni að
áhrifin yrðu sem minnst.
Meðan á heimsókninni stendur
mun hópurinn hitta embættismenn
og fulltrúa ýmissa samtaka, auk
sérfræðinga og fræðimanna. Hann
mun heimsækja Reykjavík, Ak-
ureyri og Dalvík og verður blaða-
mannafundur haldinn 23. maí.
Hópurinn mun skila af sér
skýrslu með helstu niðurstöðum í
júní 2014.
Vinnuhópur metur
jafnrétti á Íslandi
Höfuðstöðvar SÞ í
New York.
STUTT
Richard S. Williamson gegndi
embætti sendiherra Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum í
forsetatíð George W. Bush en áð-
ur hafði hann meðal annars verið
ráðgjafi tveggja Bandaríkjaforseta
í utanríkismálum, Ronalds Reag-
ans og George Bush eldri.
Williamson var ennfremur ráð-
gjafi Mitts Romneys, sem atti
kappi við Barack Obama í forseta-
kosningunum í Bandaríkjunum á
síðasta ári, í utanríkismálum. Sem
sendifulltrúi Bandaríkjanna tók
hann þátt í að binda enda á átök-
in í Darfur-héraði í Súdan.
Williamson er lögfræðingur að
mennt og er meðal annars pró-
fessor í alþjóðasamskiptum
við Northwestern Uni-
versity í Illinois-ríki í
Bandaríkjunum og ráð-
gjafi við Alþjóða-
miðstöð mannréttinda-
mála við DePaul
University í
Chicago-
borg.
Ráðgjafi tveggja forseta
RICHARD S. WILLIAMSON
Sölustaðir: Apótek Hafnarfjarðar og Garðabæjar, Árbæjarapótek, Austurbæjarapótek,
Femin.is, Garðsapótek, Heimkaup.is, Lyfja, Lyfjaval, Rimaapótek og Urðarapótek
Þú færð
silkimjúka
fætur
eftir aðeins
eitt skipti
Richard S.
Williamson