Morgunblaðið - 16.05.2013, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
Síðastliðnar vikur hafa fréttir af
miklu og langvarandi fannfergi á
Norðurlandi verið áberandi í fjöl-
miðlum. Bændur glíma við hey-
skort og velta vöngum yfir hugs-
anlegu kali og skemmdum á túnum.
Myndir frá bæjum á þessu svæði
sýna að fréttirnar eru ekki ýktar
eða gripnar úr lausu lofti og ljóst er
að bændur á Norðurlandi eru
margir hverjir orðnir langeygir
eftir betri tíð með blóm í haga.
Sauðburður stendur nú sem hæst
víða um land en margir sauð-
fjárbændur eiga þó ekki kost á að
leyfa hinum nýbornu lömbum að
hreyfa sig utandyra.
Meðfylgjandi mynd sýnir að Ís-
lendingar hafa vissulega fengið að
upplifa meira fannfergi en þetta ár-
ið. Myndin er tekin við vesturbrún
Vaðlaheiðar snjóárið mikla 1951.
Hún sýnir ástandið eins og það var
hinn 23. maí það ár.
Á myndinni má sjá tólf metra
djúpan snjóskafl og virðast full-
orðnu mennirnir tveir sem standa
ofarlega í skaflinum afar smáir í
samanburði við fannfergið.
larahalla@mbl.is
Ljósmynd/Jón J. Víðis/Vegagerðin
Tólf metra djúpur skafl var í
Vaðlaheiðinni í maí 1951
Fannfergi í maí er ekkert nýmæli á Íslandi
Útlit er fyrir ágætis veður á landinu
yfir hvítasunnuhelgina. Hlýjast
verður á Norðurlandi og ættu ferða-
menn, útivistarfólk og aðrir því að
geta nýtt fríið vel. Heldur hlýrra
verður á Norðurlandi en hefur verið
undanfarnar vikur og mánuði og ætti
sólin því að vinna nokkuð á fannferg-
inu.
Samkvæmt upplýsingum frá veð-
urfræðingi á Veðurstofu Íslands
verður hlýtt og gott veður um
helgina, en síðan gæti kólnað nokkuð
um miðja næstu viku. Kuldinn verð-
ur þó ekki langvarandi.
Hiti gæti farið upp í allt að 13 til 15
stig á Norð-Austurlandi um helgina.
Hitanum fylgir lítilsháttar væta,
suðlæg átt og 8 til 13 metrar á sek-
úndu. Heldur kaldara verður á höf-
uðborgarsvæðinu, meiri rigning en á
Norðurlandi en minni vindur. Frost-
ið virðist vera úr sögunni í bili, gróð-
urinn ætti að fá fína vætu um helgina
og hann mun þá væntanlega taka vel
við sér.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
segir á bloggsíðu sinni að hæsti hiti
sem mælst hefur það sem af er ári
hafi mælst á Dalatanga 1. mars síð-
astliðinn, 15,7 stig. „Í fyrra var hæsti
marshitinn 20,7 stig og mátti bíða til
23. maí eftir hærri hita,“ segir
Trausti. „Nú biðjum við bara um 16
stig.“
Miðað við spá helgarinnar gæti
hæsti hiti ársins mælst um helgina
og yrði það þá að öllum líkindum á
Norðurlandi. Kaldasti dagur ársins
hingað til var 5. mars, en þá komst
hiti hvergi upp fyrir frostmark á
landinu.
larahalla@mbl.is
Landsmenn eiga
von á hlýindum
Hlýjast verður á Norðurlandi
Morgunblaðið/Ómar
Betri tíð Íbúar Norðurlands eiga
von á hlýrra veðri en verið hefur.
Þú færð GO walk skó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni
og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi | Skóhöllinni Firði,
Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi
Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Mössuskór, Akureyri
Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn
í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum
Skóbúðin, Keflavík
Í slitsterku áklæði!
Verð áður 89.000
Alklæddur nautsleðri!
Verð áður 139.000
Þú sparar
20.000
Þú sparar
40.000
Tilboðsverð
99.000
út maímánuð!
RISAÚTSALA!
Okkar besti hægindastóll
á verði sem hefur ekki sést
á Íslandi í mörg ár!
Rubelli 9332 H
með svifruggu, snúning, gormasæti
og frábærum bakstuðningi
3 leðurlitir
6 taulitir
Ármúla 5 • 108 Reykjavík • Sími 544 8181www.innlit.is
Þekking • Þjónusta
Tilboðsverð
69.000