Morgunblaðið - 16.05.2013, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
Æðsti yfirmaður rússnesku Rétt-
trúnaðarkirkjunnar, Kirill patrí-
arki, á leið inn í guðshús í Sjanghæ í
Kína í gær til að syngja messu. Lið-
in var meira en hálf öld frá síðustu
guðsþjónustu í kirkjunni. Söfnuður-
inn vonast til þess að kommúnistar
láti hann aftur fá bygginguna í sín-
ar hendur.
AFP
Kirill syngur messu í Sjanghæ
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Stjórnvöld í Búrma hyggjast flytja yf-
ir 160.000 íbúa á láglendi í grennd við
hafið til öruggari svæða vegna felli-
byljarins Mahasen sem stefnir til
lands af Indlandshafi. Búist er við að
hann komi að landi á föstudag við
borgina Chittagong. Yfir átta milljón-
ir íbúa í strandhéruðum Indlands,
Bangladess og Búrma eru í hættu
vegna óveðursins.
Talin var hætta á allt að tveggja
metra hárri flóðbylgju. Að sögn tals-
manna Sameinuðu þjóðanna virtist þó
heldur vera að draga úr styrk bylj-
arins síðdegis í gær þegar hann
stefndi í norðaustur í átt að Bengal-
flóa.
Múslímar tortryggja stjórnvöld
„Við gætum dáið hérna, við getum
ekki farið neitt,“ sagði Yu Suit Taw,
múslími sem býr í flóttamannabúðum
á jaðri borgarinnar Sittwe í Búrma.
Um 140 þúsund flóttamenn úr röðum
Rohingya-múslíma hafa búið í bráða-
birgðaskýlum á strönd Búrma eftir
hörð átök við búddista í fyrra sem
kostuðu um 200 manns lífið. Heil
borgarhverfi brunnu þá til ösku.
Flestir Búrmamenn eru búddatrúar.
Embættismenn með gjallarhorn
reyndu að vara flóttamenn við hætt-
unni. En tortryggni ríkir meðal músl-
ímanna garð stjórnvalda. Hafa marg-
ir neitað að yfirgefa svæðið og
fréttaritarar AFP, sem heimsóttu
tvennar búðir sögðust ekki sjá merki
um að verið væri að undirbúa neyð-
arflutninga.
Enn er 58 múslíma frá Búrma
saknað eftir að bát þeirra hvolfdi á
mánudag er þeir voru að reyna að
komast á öruggara svæði.
Óttast fellibyl
við Bengalflóa
Milljónir manna taldar vera í hættu
Átök trúarhópa
» Auk múslímanna í Búrma
búa um 300.000 flóttamenn í
grannríkinu Bangladess. Þar
búa nær eingöngu múslímar.
» Um 30 milljónir af alls um
160 milljónum manna í Bangla-
dess, sem er nokkru stærra en
Ísland, búa í strandhéruðum.
» Ráðamenn í Búrma hafa ver-
ið sakaðir um að hafa ekki
beitt sér nógu mikið til að verja
múslíma í fyrra.
Rússar og Bandaríkjamenn virtust í
gær reyna að draga úr núningi í
kjölfar þess að Ryan C. Fogle,
starfsmaður bandaríska sendiráðs-
ins í Moskvu var sagður hafa verið
staðinn að tilraun til að fá embætt-
ismenn til að njósna fyrir sig. Hann
var í haldi yfir nótt en síðan sleppt
og sagt að yfirgefa landið.
Þrátt fyrir nokkurn sáttatón var
framferði Fogle mótmælt formlega.
Og ráðgjafi Vladímírs Pútíns for-
seta, Júrí Úsjakov, sagði að Rússar
furðuðu sig á þessari „einstaklega
frumstæðu og klaufalegu“ tilraun
til að ráða njósnara.
Fogle er sagður hafa verið dulbú-
inn, með ljósa hárkollu, verið með
mikið fé á sér, einnig ýmsan hefð-
bundinn njósnabúnað. Rússneska
blaðið Kommersant segir að Fogle
hafi viljað upplýsingar um Kákas-
ussvæði Rússa, sennilega vegna til-
ræðisins í Boston nýverið. Tilræð-
ismennirnir tveir voru ættaðir frá
Kákasus. kjon@mbl.is
„Frumstæðar og
klaufalegar“ njósnir
Sáttfýsi í Moskvu
þrátt fyrir mál Fogle
AFP
Gripinn Mynd leyniþjónustumanna
af handtöku Ryans Fogle.
Læknar á Vest-
urlöndum og þá
ekki síst í Banda-
ríkjunum hafa ár-
um saman hvatt
fólk til að draga
mjög úr neyslu á
salti. En í nýrri
skýrslu sérfræð-
inga á vegum
Institute of Me-
dicine, sem heyr-
ir undir Vísindaakademíuna, er sett
stórt spurningarmerki við þessa
stefnu, að sögn New York Times.
Hvatt hefur verið til þess að fólk
neyti í mesta lagi 1.500 milligramma
af salti daglega eða rúmlega einnar
teskeiðar. Þannig væri hægt að
minnka hættuna á hjartaáföllum og
heilablóðfalli hjá fólki í áhættuhóp-
um, s.s. öllum yfir 50 ára aldri,
blökkufólki og þeim sem þjást af há-
þrýstingi, sykursýki eða nýrnabilun.
Nýja sérfræðinganefndin hafði
ekki það hlutverk að mæla með til-
tekinni saltneyslu, hámarki eða lág-
marki. En hún segir engin rök mæla
með því að nokkur maður reyni að
minnka dagskammtinn niður fyrir
2.300 milligrömm. Gögn sýni að
mjög lítil neysla geti verið varasöm.
„Þegar farið er niður fyrir 2.300
milligrömm eru ekki fyrir hendi
gögn um gagnsemina og menn fara
að giska á tjónið sem neyslan geti
valdið í ákveðnum, afmörkuðum
hópum,“ segir Brian L. Strom, pró-
fessor í almenningsheilbrigði við
Pennsylvaníu-háskóla. kjon@mbl.is
Gagnslaust að
borða minna salt?
Mjög lítil neysla sögð vera varasöm
Salt Hvar er sjálft
meðalhófið?
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur
eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta
lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar
þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur
í eindaga til og með 15. maí 2013, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga
til og með 6. maí 2013 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er
fallið hafa í eindaga til og með 15. maí 2013, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og
tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á
gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi,
launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti,
fjársýsluskatti, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila,
skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri
framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi
á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi,
jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi
Fjármálaeftirlitsins og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar,
sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur,
fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald,
búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í
framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði,
ofgreiddar barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu
skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað
fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám.
Þinglýsingargjald er 2.000 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs
kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast
óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds,
vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við
því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af
ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð
fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum.
Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15
daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. maí 2013
Tollstjóri
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í
Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli