Morgunblaðið - 16.05.2013, Síða 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
Nú er orðið tíma-
bært að ákveða mark-
mið, leiðir og lausnir
á snjóhengjunni og
gjaldeyrishöftunum.
Eitt grundvall-
armarkmiðið hlýtur
að vera að Rík-
issjóður Íslands
standi að minnsta
kosti jafn vel og hann
stóð fyrir hrun bank-
anna. Þann 10. des-
ember 2012 settu Bandaríkin, Bret-
land og svo síðar Evrópusambandið
fram reglur um hvernig þessi lönd
myndu framvegis standa að lausn
bankahruns. Í samræmi við þessi
viðmið ætti ríkissjóður fái greidda
1.480 milljarða til að borga uppsafn-
aðan kostnað vegna bankahrunsins.
Í fyrsta lagi setji Alþingi lög um
skilaskyldu allra gjaldeyriseigna
þrotabúa gömlu bankanna. Skil
verði á öllum nýjum gjaldeyri sem
þeir afli, Seðlabanki Íslands greiði
þeim með íslenskum gjaldeyri. SÍ
fór fram á þessa heimild við Alþingi
í mars 2012 en fékk hana ekki þá.
Innlendur gjaldeyrir eru íslenskar
krónur sem SÍ hefur sett takmark-
anir á og er ekki hægt að nota í al-
mennum viðskiptum á Íslandi, með-
al þeirra eru gömlu jöklabréfin og
íslenskar krónur sem stafa af hruni
bankanna.
Í öðru lagi setji SÍ 100% bindi-
skyldu á allt laust fé gömlu bank-
anna í innlendum og erlendum
gjaldeyri, ásamt 100% bindiskyldu á
öllum öðrum innlendum gjaldeyri
svo sem jöklabréfum. Með þessu fái
SÍ forræði yfir öllu lausafé gömlu
bankanna í gjaldeyri og innheimtur
í framtíðinni. Samtals verða þetta á
milli 2.000 og 2.500 milljarðar í er-
lendum gjaldeyri og milli 800 og
1200 milljarðar í innlendum gjald-
eyri, endanlegar upphæðir ráðast af
því hve vel tekst til með innheimtu
þrotabúanna og söluverðmæti nýju
bankanna.
Í þriðja lagi verði Bretum og
Hollendingum greiddar 586 ma.kr.
eftirstöðvar IceSave í innlendum
gjaldeyri. Fram til þessa hefur
þeim verið greitt í erlendum gjald-
eyri.
Í fjórða lagi verði
afnumin heimild
gömlu bankanna til að
fara með eignarhald
nýju bankanna. Við að
missa þessa heimild
verða gömlu bank-
arnir að selja nýju
bankana strax. Sam-
kvæmt bankalögum
eru slitastjórnir ekki
hæfir eigendur.
Í fimmta lagi verði
þrotabúum gömlu
bankanna gert skylt
að borga öll sömu
gjöld og skatta og nýju bankarnir,
fram til þetta hafa gömlu bank-
arnir verið undanþegnir ýmsum
gjöldum og sköttum.
Í sjötta lagi verði settur á sér-
stakur einskiptis banka skattur á
alla viðskiptabanka, nýju og gömlu
bankana að upphæð 10% af heild-
areignum þeirra. Þetta ætti að
skila ríkissjóði 600 til 650 millj-
örðum í tekjur. Frá nýju bönk-
unum kæmu 300 milljarðar og
þeim gömlu 300 til 350 milljarðar.
Með þessu verði viðskiptabank-
arnir búnir að borga sanngjarnt
gjald til ríkisins vegna hruns
bankanna. Jákvæð áhrif þessarar
aðgerðar verða að nýju bankarnir
lækka í verði og verða því
auðseljanlegri.
Í sjöunda lagi þarf ríkissjóður
að losa bæði allt hlutafé og öll lán
sem hann veitti til nýju bankanna.
Nýju bankarnir geta sótt nýtt eig-
ið fé til hlutabréfamarkaðarins.
Í áttunda lagi byði ríkisstjórn
Íslands þrotabúum bankanna sam-
komulag um nauðasamninga sem
þrotabúin myndu bera undir at-
kvæði kröfuhafa. Samkomulagið
myndi felast í að gömlu bankarnir
seldu allan erlendan gjaldeyri til
SÍ á 152 kr. á evru, fyrir greiðslu í
innlendum gjaldeyri. Þrotabúin
myndu svo gera upp við kröfuhafa
í innlendum gjaldeyri. SÍ mundi
síðan bjóða öllum eigendum inn-
lends gjaldeyris að skipta yfir í
venjulegar íslenskar krónur með
40% afföllum. SÍ mundi svo bjóða
þessum sömu aðilum að skipa ný-
fengnum krónum í gjaldeyri á 152
kr. á evru vilji þeir frekar erlend-
an gjaldeyri. Kröfuhafarnir, jökla-
bréfseigendur og aðrir eigendur
innlends gjaldeyris gætu farið
strax út með eignir sínar.
Fari svo að frumvarp um nauða-
samninga væri fellt myndi SÍ
binda bæði erlendar eignir
þrotabúanna og allan innlendan
gjaldeyri til 20 ára, eða þar til það
væri ljóst að fjármálastöðugleika
væri ekki ógnað og óhætt væri að
losa þessa reikninga. Þessir
bundnu reikningar væru á 5% nei-
kvæðum vöxtum á meðan gömlu
bankarnir væru áfram í umsjá
slitastjórna næstu árin.
Í níunda lagi, takist samningar
við kröfuhafa, myndu viðskipta-
bankarnir, eftir að þeir væru seld-
ir, kaupa lánasöfn þrotabúanna
með innlendum gjaldeyri þannig
að hægt væri að gera upp við og
loka þrotabúunum. Kostur þess að
gera samninga fyrir íslenska ríkið
væri að slíkir samningar væru
gerðir eftir lögum um einkarétt og
ætti að koma í veg fyrir eftirmála.
Sumar heimildir í þessari grein
eru úr nýrri mjög góðri skýrslu SÍ
um fjármálastöðugleika.
Rétt er að nota tækifærið og
þakka samstarf og aðstoð þessara
10 greina um snjóhengjuna frá
prófessorum og kennurum í hag-
fræði, starfsmönnum Seðlabanka,
viðskiptabankanna og þrotabúum
gömlu bankanna, félagasamtökum,
stjórnmálamönnum úr og ekki síst
stjórnarmönnum úr InDefence og
Advice-hópunum.
Það er kominn tími til að takast
á við þetta vandamál og leysa það.
Ekki falla í þá gryfju að gera bara
smávegis, þá verður mjög erfitt að
leysa það sem eftir stendur. Gott
dæmi um það er að hafa ekki leyst
skuldavanda heimilanna almenni-
lega strax eftir hrun þegar það
var hægt að gera það í einu lagi.
Snjóhengjan og lausn hennar
Eftir Holberg
Másson »Nú er orðið tíma-
bært að ákveða
markmið, leiðir og
lausnir á snjóhengjunni
og gjaldeyrishöftunum.
Holberg
Másson
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Það er gjarnan
ánægjuefni að fá
hugguleg sendibréf, en
það verður að teljast
býsna óalgengt að fá
slíkt sem opið bréf í
fjölmiðlum – og það
sérstaklega án þess að
nokkur samskipti hafi
átt sér stað með öðrum
hætti. Halldór Jónsson
sendir opið bréf til for-
seta ÍSÍ á þessum vettvangi með til-
teknum fyrirspurnum sem hann
beinir til mín – og lætur þess getið að
hlutverk sem forseti Evrópska körfu-
knattleikssambandsins, sem starf-
andi lögmaður og sem fyrrverandi
formaður KKÍ, hafi þar gildi.
Ekki kann ég sérstaklega deili á
bréfritara og mig rekur í sjálfu sér
ekki minni til þess að leiðir okkar hafi
legið saman. Ég þakka honum raunar
áhugann á skipulagi íþróttamála, og
mér er í sjálfu sér ánægja að veita
honum allar þær upplýsingar sem
eru á mínu verksviði, og hefði án efa
gert það í beinum og milliliðalausum
samskiptum ef eftir því hefði verið
leitað, líkt og með fjölmörg erindi
sem berast inn á mitt borð í tilvís-
uðum hlutverkum.
Körfuknattleikssamband Íslands
er sjálfstætt sérsamband, sem vissu-
lega er sambandsaðili innan vébanda
Íþrótta- og ólympíusambands Ís-
lands, og hefur sem slíkt
forræði á skipulagi síns
mótahalds. Atbeini ÍSÍ
lýtur ekki að því að hafa
sérstaka skoðun eða for-
ræði á þeim málaflokki.
Ef reglur eru settar sem
kunna að brjóta í bága
við lagaramma íþrótta-
hreyfingarinnar, lands-
lög eða alþjóðlegar
skuldbindingar þá er að
finna skilgreindan far-
veg fyrir úrlausn slíkra
deilumála innan dóm-
stólakerfis íþróttahreyfingarinnar,
eða eftir atvikum innan hins almenna
réttarkerfis.
Það er ekki hlutverk forseta ÍSÍ,
fyrrverandi formanns KKÍ eða ann-
arra stjórnunareininga að veita bréf-
ritara lögfræðileg álit á þessu við-
fangsefni – og enn síður tel ég
viðeigandi að lýsa fyrir honum per-
sónulegum eða pólitískum skoðunum
mínum á opinberum vettvangi á lýð-
ræðislega teknum ákvörðunum sér-
sambands innan vébanda ÍSÍ. Ég trúi
því að bréfritari hafi skilning á þeirri
afstöðu. Tilvísun til forystuhlutverks í
Evrópska körfuknattleikssamband-
inu (FIBA Europe) á hér ekki heldur
við þar sem þau samtök annast al-
þjóðlegt mótahald, og hlutgeng-
isreglur þurfa þar ekki að vera í fullu
samræmi við landskeppni einstakra
aðildarríkja.
Vert er að hafa í huga að það við-
fangsefni, sem hér er til umfjöllunar,
þ.e. hlutgengisreglur erlendra leik-
manna, er víða í Evrópu til tals-
verðrar umfjöllunar og hefur verið
býsna mikið til umfjöllunar frá því að
dómur féll í Bosman-málinu svo-
nefnda fyrir dómstóli Evrópusam-
bandsins árið 1995. Þetta er viðfangs-
efni sem skiptar skoðanir geta verið
á, og gott dæmi um málaflokk þar
sem lausnir felast sjaldnast í að mála
hlutina í svörtu eða hvítu.
Ég hvet bréfritara eindregið til
þess að hafa samband við forystu-
sveit Körfuknattleikssambands Ís-
lands og leita sér nánari upplýsinga
um málið – en mér virðist í bréfinu
koma fram rangtúlkanir eða staðhæf-
ingar sem kunna að vera byggðar á
misskilningi eða skorti á réttum upp-
lýsingum. Úr því hlýtur að vera unnt
að bæta með skilvirkari hætti en opn-
um bréfaskrifum við forseta ÍSÍ á síð-
um fjölmiðla.
Ég óska bréfritara alls hins besta.
Opið svar forseta ÍSÍ
Eftir Ólaf E.
Rafnsson
Ólafur E. Rafnsson
»Körfuknattleiks-
samband Íslands er
sjálfstætt sérsamband,
sem vissulega er sam-
bandsaðili innan vé-
banda Íþrótta- og ól-
ympíusambands
Íslands.
Höfundur er forseti ÍSÍ.
MIKIÐ ÚRVAL
af garni, blöðum, prjónum,
tölum, og öðrum prjónavörum
Þönglabakka 4, sími: 571-2288, www.gauja.is
Nýjar
sendingar
frá Lang-
yarns og
Filcolana
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 3. júní.
Í blaðinu verður
fjallað um tískuna
sumarið 2013 í fatnaði,
förðun og snyrtingu auk
umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira.
Tíska & förðun
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um Tísku & förðun
föstudaginn 7. júní