Morgunblaðið - 16.05.2013, Síða 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
B
jörn R. Einarsson
hljómsveitarstjóri
fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Grjóta-
þorpinu. Hann lauk
prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík
og er hárskurðarmeistari.
Björn lærði á píanó á æskuár-
unum, lærði á básúnu hjá Albert
Klan og Vilhelm Lansky-Otto og var
í Tónlistarskólanu í Reykjavík.
Björn lék á harmoniku á unglings-
árunum, lék með breskum og banda-
rískum hljóðfæraleikurum á stríðs-
árunum og lærði þá djasstakta hjá
bandarískum hermönnum, s.s. Rex
Downing básúnuleikara.
Í stríðslok stofnaði Björn hljóm-
sveit sína sem fyrst lék í Lista-
mannaskálanum en hana skipuðu
upphaflega þeir Gunnar Egilsson
klarinettuleikari, Haraldur Guð-
mundsson trompetleikari, Árni Ís-
leifsson píanóleikari, Axel Krist-
jánsson gítarleikari, Guðmundur R.
Einarsson, bróðir Björns, trommu-
leikari og Jón Sigurðsson bassi.
Meðal annarra tónlistarmanna
sem léku með Birni má nefna Gunn-
ar Ormslev og píanóleikarana Krist-
ján Magnússon, Árna Elvar, Magn-
ús Pétursson og Guðjón Pálsson.
Björn starfrækti síðan hljómsveit
sína með hléum fram yfir 1970. Hún
lék í Listamannaskálanum, í Breið-
firðingabúð, Sjálfstæðishúsinu og
var húshljómsveit á Hótel Borg, og
lék inn plötur á vegum RÚV.
Björn og Bjarni Böðvarsson hjóm-
sveitarstjóri slógu samaní stórsveit
sem fór um landið til að leika fyrir
dansi og spila djass.
Björn var básúnuleikari í Hljóm-
sveit ríkisútvarpsins og síðan fyrsti
básúnuleikari Sinfóníuhljómsveitar
Íslands frá stofnun sveitarinnar,
Björn R. Einarsson hljómsveitarstjóri – 90 ára
Flottir Hljómsveit Björns R. Einarssonar í Gyllta salnum á Borginni um 1950. Frá vinstri: Vilhjálmur Guðjónsson
klarinettu-og saxófónleikari; Erwin Koeppen bassaleikari; Guðmundur R. Einarsson trommu-og básúnuleikari;
Björn R. Einarsson hljómsveitarstjóri; Viðar Alfreðsson horn-og trompetleikari, og Guðjón Pálsson píanóleikari.
Brautryðjandi í tónlist
Í Gróttu Björn með sonardóttur,
Helgu og langafasonum, Ásbirni
Thor og Högna Gunnari.
Ég veit það ekki. Mér fannst þetta eiginlega ekki vera stór-afmæli þannig að ég ætlaði bara að hafa eina köku og sjáhvort nánustu frænkur mínar vilja koma í köku og kaffi eða
skreppa á kaffihús,“ segir Ragnheiður Elín Clausen, fv. sjónvarps-
þula, spurð hvað hún hyggist gera í tilefni dagsins en hún fagnar 45
ára afmæli sínu í dag. Að sögn Ragnheiðar hefur ávallt verið mikil
stemning innan fjölskyldunnar fyrir Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva, sérstaklega eftir að mágur hennar og systir áttu lag í
keppninni árið 2011. „Það eiginlega setur allt í uppnám,“ segir Ragn-
heiður létt í bragði og bætir við að það megi ekki missa af stemmning-
unni þegar íslenska lagið er flutt á sviði.
Spurð að því hvort hún eigi von á einhverjum gjöfum segir Ragn-
heiður svo ekki vera og segist hún raunar ekki vera neitt sérstaklega
mikið fyrir afmælisgjafir. Hún segist hafa átt marga eftirminnilega
afmælisdaga en einn standi þó upp úr. Þannig hafi hún farið, þegar
hún starfaði sem flugfreyja, í fylgd með flugmanni í gegnum Rauða-
hverfið, Herbertstraße, í Hamborg. „Það var mjög athyglisvert að
hafa ákveðið að eyða hluta kvöldsins þarna og skoða þessar vinnuað-
stæður kvenna sem margar voru í háskólanámi,“ segir Ragnheiður og
bætir við að hún hafi rætt við nokkrar af konunum og spurt þær út í
ástæður þess að þær leiddust út í vændi. skulih@mbl.is
Ragnheiður Elín Clausen er 45 ára í dag
Þingvellir Ragnheiður Elín Clausen fagnar 45 ára afmæli sínu í dag
en hér sést hún ásamt Hauki systursyni sínum við Þingvallavatn.
Evróvisjón setur
allt í uppnám
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hafnarfjörður Elín Rós fæddist 13.
september kl. 7.05. Hún vó 3.880 gr
og var 51 cm löng. Foreldrar hennar
eru Kristín Valgerður Ellertsdóttir og
Róbert Þórir Sigurðsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Hilmir Andri fæddist 19.
september kl. 1.19. Hann vó 3.200 g
og var 49 cm langur. Foreldrar hans
eru Edda Rannveig Brynjólfsdóttir og
Haukur Guðmundsson.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
14
26
www.jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Útskriftarstjarnan
er komin.
Glæsileg útskriftargjöf.
Okkar hönnun og smíði