Morgunblaðið - 16.05.2013, Page 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
Tölt nefnist listasýning sem opnuð
verður í dag í Felleshus, sendiráði
Norðurlandanna í Berlín og er hún
helguð íslenska hestinum. Um sýn-
inguna segir í tilkynningu að hún sé
upptaktur fyrir heimsmeistaramót ís-
lenska hestsins sem mun fara fram í
Berlín í ágúst á þessu ári.
Íslenska hestinum eru gerð skil á
sýningunni í ólíkum listformum og
má þar nefna ljósmyndun, skúlptúr,
myndbandsverk, hreyfimyndir, hönn-
un og tísku. Íslenskum samtíma-
listamönnum og hönnuðum var gef-
inn laus taumur, eins og það er orðað
með viðeigandi hætti í tilkynning-
unni, „til að skapa og sýna listaverk
sem innblásin eru af íslenska hest-
inum; fegurð hans og þokka; litum og
örlögum“. Sýnendur eru Hrafnkell
Birgisson, Gígja Einarsdóttir, Kristín
Garðarsdóttir, Ásta Guðmundsdóttir,
Dögg Guðmundsdóttir, Una Loren-
zen, Rut Sigurðardóttir, Spessi,
Benni Valsson, Andersen & Lauth,
Erna Einarsdóttir, Jör by Guð-
mundur Jörundsson og Mundi. Þá
verða einnig á sýningunni hestaport-
rett eftir myndlistarmanninn Birgi
Andrésson sem lést árið 2007.
Sýningarstjóri Tölts er Ragna
Fróðadóttir, fata- og textílhönnuður,
sem búsett er í Berlín. Felleshus er í
Rauchstraße 1 í Berlín og verður sýn-
ingin opin mánudaga til föstudaga frá
kl. 10-19 og laugardaga og sunnudaga
kl. 11-16. Aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hestaportrett Verk eftir Birgi
Andrésson verða á sýningunni.
Óður til íslenska hests-
ins á sýningu í Berlín
Erla Sigurðar-
dóttir opnar í
dag kl. 17 vatns-
litasýninguna
Fjörugull og fá-
ein blóm í Her-
berginu í versl-
uninni Kirsu-
berjatrénu,
Vesturgötu 4 í
Reykjavík. Hún
sýnir 30 vatns-
litamyndir af íslenskum gróðri frá
fjöru til fjalls og beinir sjónum að
því smáa sem er í kringum okkur í
náttúrunni, hlutum sem við sjáum
en tökum ekki alltaf eftir, eins og
því er lýst í tilkynningu. Erla hefur
myndskreytt barnabækur og unnið
að myndlist á áratugalöngum ferli
og auk þess kennt vatnslitamálun.
Fjörugull og
fáein blóm
Erla
Sigurðardóttir
Ja Ja Ja Festival
nefnist ný, nor-
ræn tónlistarhátíð
sem haldin verður
í fyrsta sinn í
Lundúnum 8.-9.
nóvember nk. en
stjórnandi hennar
er Anna Hildur
Hildibrands-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
norrænu tónlistarskrifstofunnar NO-
MEX sem stendur að hátíðinni. Hug-
myndin að henni er fengin frá Ja Ja
Ja klúbbakvöldinu, samnorrænu
verkefni sem hóf göngu sína í Lund-
únum fyrir fjórum árum. Hátíðin er
unnin í samstarfi við menningarhúsið
Roundhouse í hverfinu Camden og
mun hún fara þar fram. Hátíðin var
kynnt í gærkvöldi í Roundhouse og
flutti íslenski kvennakórinn Lyrika
þar nýja útgáfu af lagi dönsku
hljómsveitarinnar Mew sem gefið
verður út í september. Mew mun
koma fram á hátíðinni í haust og hef-
ur íslenska hljómsveitin múm einnig
staðfest komu sína. Heimildarmynda-
hátíðin í Kaupmannahöfn, Copen-
hagen Documentary Festival, verður
samstarfsaðili hátíðarinnar og mun
sjá um að velja heimildarmyndir sem
sýndar verða á henni. Þema mynd-
anna verður tónlist. Þá verður nor-
ræn matargerð einnig kynnt. Anna
Hildur segir að hátíðin sé gott tæki-
færi til að ýta undir þann áhuga sem
Bretar sýni Norðurlöndum og nor-
rænni menningu. „Það er líka gaman
að fá tækifæri til að tengja saman
ólíka menningarþætti, tónlist, kvik-
myndir og matargerð, þannig að
gestir fái að smakka, hlusta og horfa
á það sem kemur frá Norðurlöndum á
einum og sama stað,“ segir Anna.
Frekari upplýsingar um hátíðina
má finna á jajajamusic.com.
Anna stýrir Ja Ja Ja
Anna Hildur
Hildibrandsdóttir
Ný breiðskífa með
franska tvíeykinu Daft
Punk, ’Random Access
Memories, verður gefin
út 20. maí nk. og hefur
eitt laga hennar, „Get
Lucky“, notið mikilla vin-
sælda í Bretlandi og setið
þar í efsta sæti listans yf-
ir mest seldu smáskíf-
urnar í þrjár vikur. Yfir
hundrað þúsund eintök
hafa selst af smáskífunni
í hverri viku frá útgáfu. Meðal þeirra sem leggja Daft Punk lið á plötunni
eru Pharrell, Julian Casablancas, Chilly Gonzales og Giorgio Moroder.
Platan hefur hlotið nær einróma lof gagnrýnenda, eins og sjá má á vefn-
um Metacritic sem tekur saman gagnrýni hinna ýmsu fjölmiðla. Þar hlýtur
hún meðaltalseinkunnina 90/100 og ljóst að aðdáendur Daft Punk verða
ekki sviknir.
Plata Daft Punk hlýtur mikið lof
Píanóleikarinn Saleem Abboud Ashkar verður einleik-
ari á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld sem
hefjast kl. 19.30. Ashkar hélt sína fyrstu tónleika í
Carnegie Hall þegar hann var 22 ára og hefur unnið
með merkum hljómsveitum og stjórnendum víða um
heim. Ashkar mun í kvöld leika Píanókonsert nr. 1 eftir
Mendelssohn, þann sama og hann lék á BBC Proms-
hátíðinni í Lundúnum árið 2009 en sama ár lék hann
Keisarakonsertinn eftir Beethoven með SÍ. Einnig verð-
ur flutt tónaljóðið Dóttir norðursins eftir Sibelius og sin-
fónía nr. 6 eftir Tsjækovskíj. Finnski hljómsveitarstjór-
inn Pietari Inkinen stjórnar tónleikunum en hann stýrði
SÍ síðast í maí í fyrra.
Ashkar einleikari á tónleikum SÍ
Saleem Abboud
Ashkar
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
HREINSIEFNI FYRIR HEITA POTTA
Komdu
í bíó!
Þú finnur upplýsingar um
sýningartíma okkar og miðasölu á
www.emiði.is og www.miði.is
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:40
- T.K.
kvikmyndir.is
H.V.A
-Fréttablaðið
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
12
12
12
16
STAR TREK 3D Sýnd kl. 5:20 - 8 - 10:40(P)
MAMA Sýnd kl. 8 - 10:10
IRON MAN 3 3D Sýnd kl. 8 - 10:40
LATIBÆR - BÍÓUPPLIFUN Sýnd kl. 6
OBLIVION Sýnd kl. 5:30
Stórmyndin
sem tekin
var upp
á Íslandi
-Empire
-Hollywood
Reporter
KEMUR FYRSTA STÓRMYND
SUMARSINS
FRÁ SEM FÆRÐU OKKUR