Morgunblaðið - 16.05.2013, Síða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
Á TOPPNUM Í ÁR
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
THEGREATGATSBY2DFORSÝND KL.10:10
THEGREATGATSBYVIP FORSÝND KL.10:45
STARTREKINTODARKNESS 3D KL. 5:10 - 8 - 10:45
STARTREKINTODARKNESS 2D KL.7:20-10:30
STARTREKINTODARKNESS VIP KL. 5:10 - 8
PLACE BEYOND THE PINES KL. 5:10 - 8 - 10:50
IRON MAN 3 3D KL. 5:10 - 8 - 10:40
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 5:30 -8
BURT WONDERSTONE KL. 5:10
KRINGLUNNI
THEGREATGATSBY2DFORSÝNING KL.10:40
STARTREKINTODARKNESS 3D KL. 5:20 - 8
IRON MAN 3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
PLACE BEYOND THE PINES KL. 10:10
BURT WONDERSTONE KL. 8
ÓFEIGUR GENGUR AFTUR KL. 5:50
STARTREKINTODARKNESS 3D KL. 5:10 - 8 - 10:50
STARTREKINTODARKNESS 2D KL.4:40-7:30-10:20
IRON MAN 3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
IRON MAN 3 2D KL. 7:30
PLACE BEYOND THE PINES KL. 10:10
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 5
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
STARTREKINTODARKNESS 3D KL. 8 - 10:40
PLACE BEYOND THE PINES KL. 10:40
IRON MAN 3 2D KL. 8
AKUREYRI
STAR TREK INTO DARKNESS 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
IRON MAN 3 3D KL. 5:20 - 8
PLACE BEYOND THE PINES KL. 10:40
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
NEW YORK OBSERVER
THE PLAYLIST
J.J. ABRAMS ER MÆTTUR MEÐ BESTU
HASARMYND ÞESSA ÁRS!
EMPIRE
FILM
T.V. - BÍÓVEFURINN
THE GUARDIAN
STÓRFENGLEG
EXHILARATING
ALDEILIS RÚSSÍBANI, ÞESSI MYND.
SJÁÐU HANA!
FRÁBÆR
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Kvíði, álag eða
orkuleysi?
Burnirótin hefur reynst mér mjög vel við þunglyndi og kvíða. Ég er mun
hressari á morgnana og hef meira úthald og orku allan daginn og mæli
hiklaust með henni. Eftir að ég fór að nota 24 stunda kremið hurfu þurrk-
blettir í andliti alveg og ég er ekki eins viðkvæm fyrir kulda og áður.
Það gengur mjög vel inn í húðina og mér finnst það frábært í alla staði.
– Sigþrúður Jónasdóttir
www.annarosa.is
Burnirótin er talin góð gegn
orkuleysi, kvíða, þunglyndi
og streitu ásamt því að efla
úthald og einbeitingu.
24 stunda kremið þykir einstaklega
rakagefandi og nærandi fyrir þurra
og þroskaða húð. Inniheldur andox-
unarefni og náttúrulega sólarvörn.
Stúlknakórinn Graduale Futuri
heldur tónleika í Langholtskirkju í
dag kl. 18. Kórinn skipa 14 stúlkur
á aldrinum 10-12 og stjórnandi
hans er Rósa Jóhannesdóttir. Kór-
inn er hluti af Kórskóla Langholts-
kirkju, tónlistarskóla innan kirkj-
unnar sem stýrt er af Jóni
Stefánssyni, organista og kórstjóra.
Kórinn er nýkominn af kóramótinu
Norbusang í Fredriksstad í Noregi
þar sem fjöldi barnakóra af Norð-
urlöndunum kom saman, m.a. sex
íslenskir barna- og stúlknakórar.
Ókeypis er á tónleikana í Lang-
holtskirkju í kvöld.
Kæti Rósa Jóhannesdóttir með stúlkum úr Graduale Futuri.
Graduale Futuri í Langholtskirkju
AF CANNES
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Tók í höndina á Leonardo diCaprio, kom af blaðamanna-fundi með Baz Luhrmann og
gekk í fangið á Steven Spielberg og
Nicole Kidman. Þetta er Cannes,
kvikmyndahátíð kvikmyndahátíð-
anna. Hingað koma stjörnurnar og
manni finnst einsog manns lélega
líf og misheppnaða tilraun til að
vera eitthvað hafi náð nýjum hæð-
um hérna inná milli stjarnanna. Vá,
þær eru allar hérna og kannski nær
endurkast ljóssins sem beinist að
þeim að koma smá birtu í líf mitt.
Eiginlega ekki. En samt gaman að
vera hérna.
„Leo, Leo, look here!“ kölluðu
ljósmyndararnir þegar Leonardo di
Caprio gekk framhjá þeim. Ljós-
myndarar og blaðamenn voru búnir
að hrúga sér upp að gangveginum
þar sem stórstjörnurnar gengu
framhjá á leið sinni inn á blaða-
mannafundinn. Með minn stjörnu-
passa á hátíðinni gat ég síðan
smeygt mér þangað inn til að ná
handtaki við meistara di Caprio.
Hafði samt frekar vonast eftir
handtaki við Nicole Kidman, ást
unglingsára minna. Hafði jafnvel
hugsað með mér að fyrst hún væri
komin til Frans að gæti verið að
hún gæfi mér meginlandsfaðmlag
með tveimur kossum á sitthvora
kinnina. Ég held ég hefði ekki farið
í bað það sem eftir væri vikunnar ef
ég hefði verið svo heppinn en því
miður þá er hún ekki búin að vera
nógu lengi á meginlandi Evrópu til
að taka upp þann sið og svo reynd-
ust hinir blaðamennirnir verri
grúppíur en ég og tróðu sér fram-
fyrir mig.
„If I could choose from an in-
timate interview with Saddam
Hussein and Michael Jackson, I wo-
uld choose Michael Jackson,“ sagði
Larry King, bandarískur konungur
viðtalanna. Hann myndi alltaf velja
Jackson fram yfir Hussein í viðtal.
Alltaf skemmtanaiðnaðinn framyfir
pólitíkina. Ég hitti reyndar Saddam
Hussein en ég hitti aldrei Michael
Jackson, bömmer. Ansans bömmer,
ég er aldrei alveg með þetta. Nema
hérna í Cannes, hingað koma
stjörnurnar.
Íslendingar eru með sitt fram-lag á hátíðinni. Guðmundur
Arnar Guðmundsson leikstjóri
gerði sér lítið fyrir og komst í úr-
slitakeppnina hér í Cannes með
stuttmyndina sína Hvalfjörður.
3500 myndir voru í forvalinu,
myndir frá 132 löndum og það kom-
ust aðeins 3 stuttmyndir frá Evrópu
í úrslitin, myndin hans Guðmundar
var ein þeirra. Hvalfjörður er eina
myndin frá Skandinavíu sem komst
í úrslitin. Þetta er aðeins í þriðja
sinn sem íslenskri stuttmynd hlotn-
ast sá heiður að komast í úrslit.
Rúnari Rúnarssyni, einum með-
framleiðenda myndarinnar, hlotn-
aðist þessi heiður fyrir stuttmynd-
ina sína Smáfuglar árið 2008 en þar
á undan var það stuttmynd Ingu
Lísu Middleton sem komst í úrslitin
árið 1993. Þess ber að geta að eftir
að stuttmyndin hans Rúnars var
hér á hátíðinni kom hann síðan með
fyrstu bíómyndina sína inná hátíð-
ina. Cannes virtist vera hátíðin sem
uppgötvaði Rúnar Rúnarsson sem
snilldarinnar kvikmyndaleikstjóra.
Víkingar er önnur íslensk
stuttmynd á hátíðinni, eftir Magali
Magistry, en framleidd og tekin
upp á Íslandi með íslenskum leik-
urum. Chris Jagger, einn framleið-
enda Svartur á leik fylgir þeirri
mynd eftir.
Það er gaman að sjá árangurÍslendinga hér í Cannes. En
langskemmtilegast er að vera á
meðal stjarnanna. Því handtak við
Íslending er svo venjulegt en hand-
tak við Leonardo di Caprio er eins-
og að hafa snert hálfguð. Maður er
orðinn eitthvað, skiptir máli í sagn-
fræðinni, þegar horft verður á feril
hans verður litið til þessa móments.
Cannes er staðurinn þangað sem
guðir og hálfguðir koma til okkar
mannanna og snerta okkur. Enginn
verður sami maður né sami guðinn
á eftir.
Hann tók í höndina á mér
Morgunblaðið/Halldór Kolbeinsson
Fingurkoss Leikkonan Nicole Kidman situr í dómnefnd Cannes, hér með
Steven Spielberg, kvikmyndaleikstjóranum kunna, formanni hennar.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeinsson
Rólegur Leonardo di Caprio hélt ró sinni í Cannes í gær, hér með Tobey
Maguire og Amitabh Bachchan. Blaðamanni tókst að taka í spaða á Caprio.
» Því handtak viðÍslending er svo
venjulegt en handtak
við Leonardo di Cap-
rio er einsog að hafa
snert hálfguð.
Í Cannes Guðmundur Arnar Guð-
mundsson, leikstjóri Hvalfjarðar.