Morgunblaðið - 16.05.2013, Page 48
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 136. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Vildi láta fjarlægja mynd af mbl.is
2. Vandræðalegt fyrir Sigmund
3. Skynsamari en Steingrímur telur
4. Tók 10 ára stúlku með valdi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin og listamannaþríeyk-
ið Steed Lord sat fyrir í myndatöku
fyrir vorlínu sænska fatamerkisins
WeSC á dögunum. Meðlimir Steed
Lord hafa verið fyrirsætur merkisins
allt frá árinu 2007. Ljósmyndirnar
fyrir vorlínuna tók Geoff Moore en
Svala Björgvins, söngkona og einn
liðsmanna Steed Lord, gegndi hlut-
verki stílista.
Steed Lord fyrirsæt-
ur í vorlínu WeSC
Riding the Extremes er yfirskrift
tónleika sem haldnir verða í Laugar-
neskirkju 23. maí nk. kl. 20 en á þeim
munu koma fram margir af fram-
sæknustu tónlistarmönnum landsins
í dag og úr heldur ólíkum áttum.
Ítalski tilraunatónlistarmaðurinn
Luca Brembilla stendur fyrir tónleik-
unum en hann hefur verið við meist-
aranám hér á landi og rannsakað í
því íslenska tilraunatónlist. Brem-
billa hefur m.a. unnið með Mugison
og koma þeir fram á tónleikunum
ásamt Björgvini Gíslasyni, Jóhanni
Eiríkssyni, Úlfari Inga Haraldssyni,
Ríkharði H. Friðrikssyni, Alexöndru
Chernyshovu og Saleta Losada Rod-
riguez. Ný verk verða flutt á tónleik-
unum, verk sem voru sér-
staklega samin fyrir þá
og eru þau m.a. eftir
Hafdísi Bjarnadótt-
ur, Úlfar Inga
Haraldsson,
Árna Berg
Zoëga og
Corneliu
Zam-
bila.
Riding the Extremes
í Laugarneskirkju
Á föstudag Norðlæg átt, 5-13 m/s við N- og NA-ströndina, annars
hægari vindur. Dálítil rigning eða slydda á N-verðu landinu.
Á laugardag Sunnan og suðaustan 5-13 m/s, hvassast við V-
ströndina. Léttskýjað N- og A-lands, Hiti víða 6 til 13 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-15, léttskýjað á S-verðu landinu og
skýjað með köflum V-lands. Rigning eða slydda annars staðar,
VEÐUR
Bjóst ekki við að
komast svo langt
Ejub Purisevic og Zoran Daníel Ljubi-
cic hafa verið Íslendingar í hálfan
annan áratug en fyrir rúmum 20 ár-
um komu þeir saman til Íslands til að
spila fótbolta og forða sér úr stríðinu
sem geisaði í Júgóslavíu. Í kvöld
mætast þeir í fyrsta skipti sem þjálf-
arar í efstu deild. Heil um-
ferð er leikin í Pepsi-deild
karla í kvöld og ítar-
lega er fjallað um
hana í íþrótta-
blaðinu.
»2-3
Endurfundir hjá þjálf-
urum í Ólafsvík í kvöld
Serbinn Branislav Ivanovic var hetja
Chelsea þegar liðið vann sigur í Evr-
ópudeild UEFA í knattspyrnu í fyrsta
sinn í gærkvöldi með því að leggja
Benfica að velli í úrslitaleik á Amster-
dam Arena. Á ögurstundu tryggði
varnarmaðurinn öflugi sínum mönn-
um sigurinn með skallamarki eftir
hornspyrnu. Nokkrum andartökum
síðar var flautað til leiksloka. »1
Chelsea vann Evrópu-
bikarinn eftir dramatík
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Anna Marsibil Clausen
annamarsy@monitor.is
Í vetur hefur námsgreinin lífsstíll
verið kennd í vali fyrir nemendur í
níunda og tíunda bekk Rimaskóla í
Reykjavík. Skipulögð kennsla af
þessu tagi mun vera ný af nálinni í
grunnskólum Íslands og er ætlað að
efla heilsuvitund íslenskra ung-
menna.
Námsgreinin hefur mælst vel fyr-
ir meðal nemenda sem komu saman
ásamt kennurum og foreldrum í
Gufunesbæ í Grafarvogi í gær á
uppskeruhátíð lífsstílshópanna.
Áslaug Traustadóttir og Eyrún
Ragnarsdóttir kenna námsgreinina
sem Áslaug segir ganga út á að
kenna börnum að taka ábyrgð á eig-
in lífsstíl.
„Við viljum að þau þekki og kunni
að raða saman réttu mataræði fyrir
sig og fái að kynnast sem flestum
formum á hreyfingu.“ Hún bætir við
að mikið sé um brottfall úr íþróttum
í efstu stigum grunnskóla en hún tel-
ur það orsakast af því að unga fólkið
geri sér ekki grein fyrir þeirri fjöl-
breyttu hreyfingu sem því stendur
til boða. „Það er til hreyfing fyrir
alla og krakkarnir fá að finna það.
Þau fara líka í verklega matreiðslu,
næringarfræði, virka slökun og
svefnfræðslu.“
110 prósent mæting
Innt eftir viðbrögðum unga fólks-
ins við námsefninu segir Áslaug þau
hafa verið stórkostleg. „Við erum
með 110 prósent mætingu. Valið
fylltist og nemendur sem ekki kom-
ust að hafa samt mætt í hvern ein-
asta tíma og beðið um að fá að vera
með. Það eru meira að segja skóla-
liðar í Rimaskóla sem hafa reynt að
mæta þegar þeim gefst kostur á.“
Nemendurnir virðast duglegir við
að nýta sér námið í hversdagslífinu
því báðar hafa Áslaug og Eyrún
heyrt til nemenda sinna fræða for-
eldra sína um næringargildi vara í
matvöruverslunum. „Maður er
meira að segja kallaður til stundum.
Þetta er alveg dásamlegt,“ segir Ás-
laug, kampakát með árangurinn.
Fengu styrk frá landlækni
Lífsstíll verður aftur í boði sem
valfag í Rimaskóla í haust. Verk-
efnið er styrkt af Landlæknisemb-
ættinu og hluta styrksins verður
varið til kynningar á námsgreininni.
„Okkar markmið er auðvitað að
kveikja áhuga í hinum grunnskól-
unum og þeir geta nálgast kennslu-
efnið og leiðbeiningar með því hjá
okkur,“ segir Áslaug. „Draumurinn
er að sjálfsögðu að fara með þetta
niður í mennta- og menningar-
málaráðuneyti og að lífsstíll taki við
því hlutverki sem íþróttir og heim-
ilisfræði hafa gegnt,“ bætir hún við.
„Lífsstíll er sérstök námsgrein að
því leyti að hún á við á öllum greind-
arsviðum svo að allir geti notið sín,“
segir Áslaug sem er vongóð um bætt
heilsufar Íslendinga í höndum upp-
lýstra ungmenna.
„Það er til hreyfing fyrir alla“
Kennsla í lífsstíl naut gríðarlegra
vinsælda í Rimaskóla í vetur
Morgunblaðið/Eggert
Uppskeruhátíð Gleðin var við völd í veislunni. F.v Áslaug Traustadóttir grunnskólakennari og Eyrún Ragnarsdóttir einkaþjálfari, ásamt krökkunum.
1 dl gróft haframjöl
3 dl kalt vatn
2 tsk. kanilduft (ekki sykur)
2 msk. blanda af hörfræjum og
chia sem hafa legið í bleyti
1 stappaður banani
¼ epli
Aðferð: Mælið haframjöl, vatn
og kanil í pott og kveikið undir á
meðalhita. Látið suðuna koma
upp og látið malla í 1-2 mínútur
meðan þið hrærið í. Takið pott-
inn af hitanum. Stappið banana
og hrærið saman við grautinn.
Skerið eplið í mjög litla bita og
bætið út í grautinn ásamt fræj-
unum. Borðið með mjólk.
Meistara-
grautur
MORGUNSTUND
GEFUR GULL Í MUND
Guðmundur Þórður Guð-
mundsson, þjálfari þýska
liðsins Rhein-Neckar Löw-
en, átti ekki von á því að
hans mönnum tækist að
komast í lokabaráttuna um
sigurinn í EHF-keppninni en
um helgina verður leikið til
úrslita í henni í Nantes í
Frakklandi. »2