Morgunblaðið - 22.06.2013, Page 4

Morgunblaðið - 22.06.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2013 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Heimamenn voru sáttir við þau orð Hreins Har- aldssonar vegamálastjóra að hugsanlega yrði hægt að ljúka nýjum Vestfjarðavegi um Gufu- dalssveit árið 2017 í stað 2018 ef allt gengur að óskum,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir inn- anríkisráðherra. Hún og vegamálastjóri voru á meðal frummælenda á málþingi um samgöngu- mál á Vestfjörðum sem haldið var á Tálknafirði í gær. Þingið sóttu rúmlega hundrað manns víðs- vegar að af Vestfjörðum, þeirra á meðal fulltrúar sveitarfélaga og atvinnulífsins. Hanna Birna sagði að heimamenn hefðu lýst ánægju sinni með að leiðin um Teigsskóg yrði sett í umhverfismat líkt og aðrir valkostir um legu nýs Vestfjarðavegar í Gufudalssveit. „Það hefur lengi verið vilji heimamanna,“ sagði Hanna Birna. Hún sagði ljóst að sunnanverðir Vestfirðir hefðu orðið útundan í samgöngubótum en stefnt væri að því að núgildandi samgönguáætlun 2011- 2022 yrði fylgt. Í henni er gert ráð fyrir gerð Dýrafjarðarganga á árunum 2015-2018 og jafn- framt veggerð um Dynjandisheiði á sama tíma. „Ég reyndi að fullvissa heimamenn um að við hefðum skilning á ástandinu og að stefnt væri að því að standa við þá forgangsröðun sem kemur fram í samgönguáætlun,“ sagði Hanna Birna. Hún lýsti einnig vilja til að stofna samráðshóp um heilsárssamgöngur við Árneshrepp. Heimamenn ánægðir með Teigsskóg  Innanríkisráðherra og vegamálastjóri fóru á fund Vestfirðinga um samgöngumál í fjórðungnum  Staðið verður við samgönguáætlun 2011-2022  Í henni er gert ráð fyrir Dýrafjarðargöngum Morgunblaðið/Guðlaugur Tálknafjörður Hanna Birna Kristjánsdóttir og Hreinn Haraldsson komu á fundinn ásamt fleirum. Vestfirskar samgöngur » Þéttbýlisstaðir á Vest- fjörðum eru einu byggðarlög landsins sem ekki eru í heils- ársvegasambandi, hvorki sín á milli né heldur við aðal- þjóðvegakerfið. »V onir standa til að fram- kvæmdum á Vestfjarðavegi 60, Kjálkafjörður – Eiði, verði lokið haustið 2014 , ári fyrr en áætl- anir gerðu ráð fyrir. »F undurinn undirstrikaði mikilvægi innanlandsflugs fyrir fjórðunginn og hvatti innanrík- isráðherra til að tryggja fram- tíð þess. Jón Heiðar Gunnarsson jonheidar@mbl.is „Sundlaugarnar hér eru stórkostleg- ar og alveg ótrúlega margar í svona litlu landi,“ segir Marc Neyens, franskur ferðalangur sem hefur skipt á íbúðum við Evrópubúa í yfir tuttugu ár ásamt eiginkonu sinni, Renée. Hjónin sem nú eru stödd hér á landi, fóru á eftirlaunaaldur árið 1991 og hafa verið dugleg við slík ferðalög allar götur síðan. Í fyrstu fóru þau fjórum sinnum á ári í slík ferðalög en síðustu misseri hafa þau farið tvisvar á ári þar sem þau eru bæði komin á níræðisaldur. Hjónin hafa aldrei lent í vandræð- um með gesti sína og segja íbúðina ávallt hreina og fína þegar þau koma heim. „Íslendingurinn sem var í íbúðinni okkar í fyrra sló blettinn fyrir okkur og ein konan hreinsaði gluggana svo vel að ég gekk nánast á þá þegar ég kom heim,“ segir Marc hlæjandi. Hjónin tala mjög litla ensku en þrátt fyrir það hafa ferðalögin geng- ið vel. „Við notum blýant og stílabók og teiknum myndir ef við lendum í vandræðum,“ segir Marc sem fagn- ar því að íslensk dagblöð skuli bjóða upp á suduko-þrautir. Dvölin á Íslandi hefur verið frá- bær að sögn þeirra en þetta er ann- að árið í röð sem þau koma hingað til lands. Þeim fannst sérstaklega gam- an að fylgjast með öllum gömlu bíl- unum á bíladögum Akureyrar og fylltust miklu stolti við heimsókn sína á hvalveiðisafnið á Húsavík. Þar lásu þau um að Baskar hefðu kennt Íslendingum hvalveiðar á sínum tíma en þau búa í þeim hluta Frakk- lands sem er hluti af Baskalandi. „Teiknum myndir ef við lendum í vandræðum“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Vaskir öldungar Frönsk hjón á níræðisaldri hafa stundað íbúðarskipti í yfir 20 ár og elska Ísland.  Fylltust stolti á Húsavík  Frábær dvöl á Íslandi Nýr bátur, Amma Kibba, bættist í flota hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle Giants á Húsavík í gær. Um er að ræða nýsmíðaðan 12 metra langan harðbotna slöngubát (RIB) með tveimur 400 hestafla vélum sem eru innanborðs. Amma Kibba getur flutt 24 farþega og er smíðuð í Póllandi. Amma Kibba fór í sína fyrstu siglingu við Íslandsstrendur upp úr hádegi í gær. Lagt var úr höfn á Akureyri og farið yfir til Húsavík- ur, með viðkomu í Hrísey og Flatey á Skjálfanda. Gentle Giants keypti RIB-bátinn Ömmu Siggu fyrir tveimur árum. Amma Sigga er minni en Amma Kibba en bátarnir heita eftir ömm- um Stefáns Guðmundssonar, eig- anda og framkvæmdastjóra Gentle Giants. Amma Kibba hét Kristbjörg Héðinsdóttir og amma Sigga hét Sigríður Sigurbjörnsdóttir. Amma Kibba bætist í flota Gentle Giants á Húsavík Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Amma Kibba Myndin var tekin út af Hauganesi við Eyjafjörð þegar nýi bát- urinn þaut framhjá á leið sinni til Húsavíkur. Þar flytur hann ferðamenn. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is lau. 10-18, sun. 12-18, mán. - fös. 11-18:30 1. júní - 7. júlí Útsala..... 25-50% afsláttur yfir 1.200 vöruliðir á afslætti „Grunngildin í þessu starfi eru traust og heiðarleiki og peningar koma aldrei við sögu,“ segir Sesselja Traustadóttir, umboðs- maður Intervac á Íslandi. „Þetta eru alþjóðleg samtök sem halda utan um íbúðaskipti fólks sem vill ferðast um heim- inn á ódýran og skemmtilegan hátt. Samtökin hafa verið starf- rækt í yfir 60 ár en elsta auglýs- ingin frá Íslandi er frá 1970, þegar Vestmannaeyingur aug- lýsti íbúð sína til skipta stuttu fyrir gos. „Þetta starf hefur gefist frábærlega og allir Íslend- ingar fá íbúða- skipti við sitt hæfi,“ segir Sesselja en fjöldi Íslend- inga í samtökunum hefur fimm- faldast frá 2009. „Stór kostur við íbúðaskiptin er að maður neyðist til að taka íbúðina sína reglulega í gegn,“ segir hún. Íslendingar í íbúðaskipti ÓDÝR OG SKEMMTILEG LEIÐ TIL AÐ FERÐAST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.