Morgunblaðið - 22.06.2013, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2013
… Heilsurækt fyrir konur
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Oddný Sigríður Nicolaidóttir – 82 ára
Ég byrjaði að æfa í Curves vorið 2009. Æfingarnar
henta mér afar vel. Ég mæti 4x í viku og held þannig
líkamanum í góðu formi þrátt fyrir gigt og fleira sem
fylgir mínum aldri. Eftir skurðaðgerð nýlega fór ég í
6 vikna geislameðferð og meðan á meðferðinni stóð
stundaði ég líkamsræktina 4x í viku. Félagsska-
purinn, stuðningurinn og ekki síst það frábæra starfs-
fólk sem Curves hefur upp á að bjóða er ómetanlegt.
Þarna hef ég eignast góðar vinkonur og sleppi helst
aldrei úr tíma. Stærsti kosturinn er að ég get mætt
þegar mér hentar.
Tilboð júní og júlí
9.900 kr.
Gildir 1. júní-31. júlí
25% afsláttur af
íþróttafatnaði og fæðubótarefnum
Tilboð trimform
7.500 kr.
5 skipti og gildir í 2 vikur
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins
30 mínútur
Hringdu og fáðu frían prufutíma
Bjóðum einnig
upp á trimform
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Lýðræðislegi vinstriflokkurinn,
minnsti flokkurinn í samsteypu-
stjórninni í Grikklandi, hefur ákveð-
ið að ganga úr henni vegna óánægju
með þá ákvörðun að loka gríska
ríkisútvarpinu, ERT. Gríska
stjórnarandstaðan sagði að brott-
hvarf flokksins úr stjórninni veikti
hana og myndi torvelda henni að
knýja fram óvinsælar sparnaðar-
aðgerðir sem lánardrottnar Grikkja,
Evrópusambandið og Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn hafa krafist.
Lýðræðislegi vinstriflokkurinn
dró tvo ráðherra sína og tvo að-
stoðarráðherra út úr stjórninni en
hefur ekki enn tekið ákvörðun um
hvort hann styðji stjórnina áfram á
þinginu. Flokkurinn er með fjórtán
þingmenn og ef þeir hætta að styðja
stjórnina nýtur hún aðeins stuðn-
ings 153 þingmanna af 300.
Í stjórninni eru nú tveir flokk-
ar: Nýtt lýðræði, mið- og hægri-
flokkur Antonis Samaras forsætis-
ráðherra, og sósíalistaflokkurinn
Pasok. Leiðtogar sósíalista sögðust í
gær ekki ætla að slíta stjórnarsam-
starfinu.
Stjórnarflokkarnir tveir vonast
nú til þess að fá fjórtán óflokks-
bundna þingmenn til að lofa stjórn-
inni stuðningi. Allir þessir þingmenn
voru áður í stjórnarflokkunum.
Vilja ekki kosningar
Leiðtogar stjórnarflokkanna
tveggja og Lýðræðislega vinstri-
flokksins hafa sagt að ekki komi til
greina að rjúfa þing og boða til
kosninga. „Enginn vill kosningar
núna. Ár er nú liðið síðan stjórnin
var mynduð og hún verður við völd
út allt kjörtímabilið,“ sagði Sam-
aras.
Leiðtogar Lýðræðislega
vinstriflokksins reiddust forsætis-
ráðherranum fyrir rúmri viku þegar
hann tilkynnti að ríkisútvarpinu yrði
lokað í sparnaðarskyni og nær 2.700
starfsmönnum þess yrði sagt upp
störfum. Evrópusambandið og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa lagt
fast að stjórninni að segja upp 4.000
ríkisstarfsmönnum fyrir lok ársins.
Embættismenn Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins hafa þó neitað því að þeir
hafi lagt til að ríkisútvarpinu yrði
lokað.
AFP
Deilt um uppsagnir Lokun gríska
ríkisútvarpsins mótmælt í Aþenu.
Gríska stjórnin veikist
vegna deilu um ERT
Lýðræðislegi vinstriflokkurinn gengur úr stjórninni
Að minnsta kosti 556 manns hafa farist í flóðum
og aurskriðum á norðanverðu Indlandi eftir
monsúnrigningar sem hófust óvenjusnemma í
ár. Óttast er að fleiri hafi látið lífið þar sem
með sér mörg hús, jafnvel heilu þorpin, að sögn
indverskra yfirvalda. Á myndinni eru börn í búð-
um í Nýju-Delhí fyrir fólk sem hefur þurft að
flýja heimili sín vegna vatnavaxta.
margra er enn saknað. Yfirvöld hafa kallað út
þyrlur og þúsundir hermanna til að bjarga
50.000 manns sem urðu innlyksa á flóðasvæð-
unum. Ár hafa flætt yfir bakka sína og hrifið
AFP
Hundruð manna hafa farist í flóðum á Indlandi
Menningarmála-
stofnun Samein-
uðu þjóðanna,
UNESCO, hefur
sett ítalska eld-
fjallið Etnu á
heimsminjaskrá.
Etna er hæsta
eldfjall Evrópu
og eitt af þeim
sem gjósa oftast.
Sagan segir að
eldvirknina í fjallinu megi rekja til
þess að guðinn Seifur fangelsaði
Typhon, föður allra skrímsla, undir
Etnu en þar liggi hann í rekkju sem
eilíft klórar bak hans.
Til eru ritaðar heimildir um Etnu
frá því fyrir 2.700 árum, að sögn
embættismanna UNESCO.
Ekkert eldfjall í heimi hefur verið
jafnítarlega rannsakað og Etna, sem
er á Sikiley, og hafa þær rannsóknir
skilað gríðarlega miklum fróðleik í
eldfjallarannsóknir.
Á meðal annarra staða sem settir
voru á heimsminjaskrá UNESCO á
ársfundi stofnunarinnar í gær eru
forn virki í Rajasthan á Indlandi,
sandöldurnar í Namib-eyðimörkinni
í Namibíu, Pamir-fjöll í Tadsjikistan
og Tianshan-fjallgarðurinn í Kína.
UNESCO íhugar að bæta um 30
stöðum til viðbótar við heims-
minjaskrána, meðal annars Fuji-
fjalli í Japan.
Etna sett
á heims-
minjaskrá
Eldgos í Etnu á
síðasta ári.
Stúlkan var í San Pedro-
fangelsinu í La Paz ásamt for-
eldrum sínum sem afplána fang-
elsisdóma. Í fangelsinu eru um 500
börn með foreldrum sínum.
Samkvæmt opinberum tölum eru
alls 1.500 börn og unglingar neydd
til að dvelja í fangelsum landsins
með foreldrum sínum. Þau eru lát-
in dvelja þar vegna þess að þau
eiga enga aðra ættingja sem geta
annast þau meðan foreldrarnir af-
plána fangelsisdómana.
Fangelsi í Bólivíu eru alræmd
fyrir slæmar aðstæður. Þau voru
hönnuð til að hýsa 3.740 fanga en í
þeim eru alls 13.840 fangar.
Mál tólf ára stúlku, sem var nauðg-
að árum saman í fangelsi, hefur
vakið mikla reiði í Bólivíu og um-
ræðu um slæmar aðstæður barna
sem eru látin dvelja í fangelsum
landsins með dæmdum foreldrum
sínum.
Yfirvöld í Bólivíu segja að stúlk-
an sé barnshafandi eftir að faðir
hennar, frændi og guðfaðir hefðu
nauðgað henni margsinnis í fang-
elsinu frá því að hún var átta ára.
„Stúlkan er komin tvo mánuði á
leið,“ sagði Ramiro Llanos, yfir-
maður fangelsa landsins, og bætti
við að stúlkan væri nú í umsjá
barnaverndaryfirvalda.
Reiði vegna barnsnauðgunar
AFP
Ömurlegar aðstæður 1.500 börn
dvelja í fangelsum í Bólivíu.