Morgunblaðið - 28.06.2013, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
1.695
frá 2.995
Sonax vörur
í úrvali
1.799799
2.995
995
399 10 stk
1.895
Barnaskóflur 795 stk
1.795
250
9.995
Tilboð
14.995
4.995
frá 1.695
Skóflur og garðáhöld
í miklu úrvali
málning, penslar
og íblöndunarefni
ótal stærðir
9.895
Trönur
á gólf
Allt til listmálunar Blindrammar
Mikið úrval listavara
Lækjargötu og Vesturgötu
Í dag 28. júní hefst alþjóðlega rat-
hlaupamótið ICE-O sem stendur
einnig 29. og 30. júní. Þetta er í
fjórða sinn sem mótið er haldið.
Hlaupið verður víða á höfuðborg-
arsvæðinu og keppt verður í ýms-
um flokkum, fyrir alla aldurs- og
getuhópa. Allir eru velkomnir.
Ókeypis er í byrjendabrautir og
hægt að skrá sig á staðnum.
Nú er upplagt tækifæri til að sjá
alvöru rathlaupakeppni og taka
jafnvel þátt, segir í tilkynningu.
Í dag er ræst frá náttúrufræða-
húsi Háskóla Íslands, Öskju, milli
18.00-19.00. Á laugardag er ræst
við Furulund í Heiðmörk milli 11.00
og 13.00. Á sunnudag er ræst við
Nauthólsvík milli 10.00 og 12.00.
Nánari upplýsingar má fá á
heimasíðu rathlaupafélagsins
Heklu, rathlaup.is.
Morgunblaðið/Kristinn
Rötun Í rathlaupum fá hlauparar kort og
nota það til að rata milli stöðva.
Allir velkomnir á
mót í rathlaupum
STUTT
Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra segir að hjá íslenskum
stjórnvöldum sé engin formleg eftir-
grennslan hafin í tengslum við meint
eftirlit bandarískra og breskra
stjórnvalda með íslenskum borgur-
um. „Íslensk stjórnvöld taka þessa
umræðu alvarlega.“
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pí-
rata, hóf sérstaka umræðu um málið á
Alþingi í gær. Hún sagði að enn hefðu
ekki komið fram neinar yfirlýsingar
frá íslenskum stjórnvöldum í
tengslum við leka þá sem bandaríski
uppljóstrarinn Edward Snowden
bæri ábyrgð á að hefðu komið fyrir
sjónir almennings.
„Í því ljósi langar mig að spyrja
hæstvirtan innanríkisráðherra hver
hennar afstaða sé gagnvart þeim
möguleika að um íslenska borgara
hafi verið njósnað. Hefur ráðherrann
sent bandarískum og breskum yfir-
völdum fyrirspurn um hvort fylgst
hafi verið með Íslendingum á sama
hátt og fylgst hefur verið með öðrum
borgurum í Evrópu? Hefur ráð-
herrann hæstvirtur farið fram á svör
við því hvort að Íslendingar séu líka
fórnarlömb NSA-prógrammsins og
starfshátta bresku njósnastofnunar-
innar GCHQ? Ef svarið er nei þá spyr
ég hvort ráðherrann telji ekki nauð-
synlegt að fá fram þessar upplýsing-
ar? Þögn og andvaraleysi íslenskra
yfirvalda er yfirþyrmandi ef hafður er
í huga alvarleiki málsins,“ sagði Birg-
itta.
Fylgjast með umræðunni
Hanna Birna sagði að fréttir af
uppljóstrunum Snowdens hefðu
hvorki verið ítarlegar né nákvæmar.
Heldur fjölluðu þær um það hvaða
tækni væri til staðar og hvernig hugs-
anlegt væri að nýta hana.
Hún sagði að nokkrar Evrópuþjóð-
ir, þar með talin framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, hefðu óskað
skýrra svara frá breskum og banda-
rískum yfirvöldum „um þessar óstað-
festu fréttir þess efnis að njósnastofn-
anir þeirra hleri ljósleiðara sem flytja
símtöl og netsamskipti,“ sagði ráð-
herra.
„Að sjálfsögðu fylgjast íslensk
stjórnvöld með þessari umræðu og
munu gera svo áfram. Það eru ís-
lenskir hagsmunir að netnotendur
geti treyst því að meginreglur ís-
lenskra laga um frelsi, mannréttindi
og persónuvernd sé fylgt. Verði til
rökstuddur grunur um að svo sé ekki
verður að sjálfsögðu leitað skýringa á
því,“ sagði Hanna Birna.
„Það er engin formleg eftirgrennsl-
an, formleg athugun eða rannsókn
hafin. En íslensk stjórnvöld munu í
kjölfar þeirra svara, sem frá Banda-
ríkjunum og Bretum berast við þess-
um ásökunum, og munu berast Evr-
ópusambandinu og öðrum þjóðum, þá
munu íslensk stjórnvöld ákveða hvort
ástæða sé til að skoða málið sérstak-
lega með hliðsjón af hagsmunum Ís-
lendinga,“ sagði hún og bætti við að
óskað yrði eftir nánari útskýringu frá
viðkomandi ríki.
Vilja efla net- og
upplýsingaöryggi
Hanna Birna sagði, að netöryggis-
sveit Póst- og fjarskiptastofnunar
ásamt Ríkislögreglustjóra og Per-
sónuvernd, fylgdist að jafnaði með því
að persónuvernd og netöryggi væri
sem best tryggt á Íslandi. Ákveðið ör-
yggisnet væri nú þegar til staðar.
„Áður en þetta tiltekna uppljóstr-
unarmál kom upp hafði verið lagður
grunnur að skipan samráðshóps inn-
an stjórnkerfisins um eflingu netör-
yggis,“ sagði Hanna Birna og bætti
við að hópnum væri ætlað það verk að
vinna að bættu net- og upplýsinga-
öryggi. Stefnt væri að því að hópurinn
tæki til starfa í lok sumars.
Engin formleg eftir-
grennslan hafin
Þingmaður Pírata spurði hvort njósnað væri um Íslend-
inga Ráðherra segir stjórnvöld taka umræðuna alvarlega
Morgunblaðið/Eggert
Málshefjandi Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segir að málið sé ekki
einkamál bandarískra né breskra yfirvalda, þetta varði öll lönd heimsins.
Umferðaröryggisgjald sem inn-
heimt er við almenna skoðun öku-
tækis, skráningu ökutækis og
skráningu eigendaskipta mun um
mánaðamótin hækka úr 400 krón-
um í 500 krónur.
Í tilkynningu frá Samgöngustofu
kemur fram að kveðið sé á um
hækkunina í lögum sem sett voru
um Samgöngustofu í fyrra en koma
til framkvæmda 1. júlí.
Gjaldið hækkar úr
400 í 500 krónur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Jarðhitafélag Íslands veitir í ár ís-
lenskum háskólanemum, í fögum
tengdum jarðhita, styrki til að sækja
alþjóðlegar jarðhitaráðstefnur; einn
styrk til doktorsnema að upphæð
allt að 300.000 kr. og tvo styrki til
meistaranema að upphæð allt að
100.000 kr. hvorn. Nánari upplýs-
ingar er hægt að fá með því að senda
tölvupóst á gustaf@samorka.is.
Veitir styrki til að
sækja ráðstefnur