Morgunblaðið - 28.06.2013, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013
KORTIÐ GILDIR TIL
30. september 2013
RA FYRIR ÁSKRIFENDUR– MEI
MOGGAKLÚBBURINN
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1100
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
MOGGAKLÚBBURINN
YFIR 20% AFSLÁTTUR Á
GOLFKORTINU TIL 15. JÚLÍ
Einstaklingskort: Almennt verð 9.000 kr.
Moggaklúbbsverð 7.000 kr.
Fjölskyldukort: Almennt verð 14.000 kr.
Moggaklúbbsverð 11.000 kr.
Golfkortið
Kortið veitir fría spilun á 28 völlum um
land allt og að auki gildir kortið sem
2 fyrir 1 á nokkra velli. Nú getur þú
eða fjölskyldan spilað á samtals
32 völlum án stórútgjalda í fríinu.
Hvernig nota ég afsláttinn?
Farðu inn á www.golfkortid.is. Veldu „Kaupa kort“ og
veldu kortategund. Smelltu á „Afsláttarmiði“ og í auða
reitinn slærðu inn: MBL. Afslátturinn birtist þá um leið.
1
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15 16
17
18
19
20
21
22 23
24
25
26
27
28
31
30
29
3
2
32
Allar nánari upplýsingar
eru á www.golfkortid.is
FRAMLENGTTILBOÐ!
Æðstu ráðamenn Evrópusam-
bandslanda munu funda í tvo daga,
m.a um þann vanda sem mörg lönd-
in glíma við, sem er að atvinnuleysi
er í hæstu hæðum. Í Evrópusam-
bandinu er um fjórðungur þeirra
sem eru á aldrinum 18 til 25 ára at-
vinnulaus. Í Grikklandi og á Spáni
er nærri helmingur þeirra sem eru
á þessum aldri atvinnulaus.
Verið er að íhuga að nýta sex
milljarða evra fyrr en ætlað var til
að undirbúa ungt fólk fyrir atvinnu-
lífið. Meðal þess sem rætt verður
um að bjóða unga fólkinu upp á eru
góðar lærlingsstöður eða vinna á
fyrstu fjórum mánuðunum eftir að
viðkomandi missti vinnuna eða
hætti námi. Þetta kemur fram í
frétt BBC.
Framkvæmdastjórn ESB viður-
kennir hins vegar að til þess að
auka atvinnusköpun þurfi ríkin að
gera vinnumarkaðinn sveigjanlegri,
örva þurfi vöxt og draga úr skatt-
heimtu á lítil og meðalstór fyrirtæki
og aðrar byrðar sem hamla rekstri
þeirra. Fram kemur í fréttinni að
um 99% fyrirtækja í ESB séu lítil
og meðalstór og 70% landsmanna
vinni fyrir þau.
Í drögum að því sem rætt verður
um á fundinum kemur fram að mik-
ilvægt sé að draga úr skattheimtu á
vinnuafl til að fjölga störfum og
auka samkeppnishæfni.
Takast á við atvinnuleysisvandann
AFP
Stoltur Þeir sem flagga ESB-fána
eru misánægðir með það.
Fjöldi ungs fólks atvinnulaus í ESB
Fjármálaráðherrar Evrópusam-
bandslandanna hafa gert með sér
drög að samkomulagi um hvernig
bjarga eigi bönkum sem glíma við
rekstrarvanda án þess að skatt-
greiðendur sitji uppi með reikning-
inn. Lánardrottnar og hluthafar
bankanna munu taka á sig fyrsta
höggið, því næst innstæðueigendur
sem eiga meira en 100 þúsund evr-
ur. Ef það verður ekki nóg, er kall-
að eftir ríkisaðstoð, segir í frétt
BBC.
Þetta muni leiða til þess að eitt
og sama regluverkið muni gilda um
hvernig bjarga skuli bönkum í Evr-
ópu. En mörgum bönkum í Evrópu-
sambandinu hefur verið bjargað á
kostnað skattgreiðanda á undan-
förnum árum. Næsta skref er að
Evrópuþingið taki málið á dagskrá.
AFP
Breyta og bæta Taka þarf til í efna-
hagsreikningi ýmissa banka.
Bjarga
bönkum
Eitt regluverk fyr-
ir björgunaraðgerðir
Í maímánuði voru nýskráð 189
einkahlutafélög, flest í fjármála- og
vátryggingastarfsemi. Til sam-
anburðar var nýskráð 151 einka-
hlutafélag í maí í fyrra. Fyrstu 5
mánuði þessa árs var fjöldi ný-
skráninga 853, en það er 15,7%
aukning frá sama tíma í fyrra þeg-
ar 737 fyrirtæki voru skráð, segir í
frétt frá Hagstofu Íslands.
Þá voru 105 fyrirtæki tekin til
gjaldþrotaskipta í maí, flest í bygg-
ingarstarfsemi og mannvirkjagerð.
Fyrstu 5 mánuði ársins var fjöldi
gjaldþrota 459, en það er tæplega
12% fækkun frá í fyrra.
15,7% fjölgun
nýskráninga
Í lok árs 2011
skulduðu fjöl-
skyldur á aldrin-
um 35-49 ára
mest allra ald-
urshópa. Saman-
lagðar skuldir
þeirra voru 809,3
ma.kr. sem sam-
svarar um 43% af
heildarskuldum og höfðu dregist
saman um 7,6% á milli ára. Um 19%
fjölskyldna skulduðu ekkert í árs-
lok 2011. Af skuldsettum fjölskyld-
um skuldaði helmingur 6 milljónir
króna eða minna og 90% skuld-
settra fjölskyldna skulduðu minna
en 31,4 m.kr. Samanlagðar skuldir
allra, að frátalinni hæstu skuldatí-
undinni, voru 1,1 ma.kr. eða 59%
heildarskulda. Fjölskyldur sem til-
heyrðu hæstu skuldatíundinni, þ.e.
þær fjölskyldur sem skulduðu
mest, skulduðu samanlagt 767
ma.kr., samkvæmt frétt á vef Hag-
stofunnar.
35-49 ára
skuldugust