Morgunblaðið - 28.06.2013, Side 24
AFP
Pattstaða Sheremetyevo-flugvöllurinn í Moskvu þar sem Edward Snowden
hefur setið fastur síðustu sex daga. Snowden hefur leitað hælis í Ekvador.
Mál bandaríska uppljóstrarans
Edwards Snowdens er í pattstöðu
eftir að stjórnvöld í Rússlandi neit-
uðu að afhenda hann til verktaka á
vegum Þjóðaröryggisstofnunar
Bandaríkjanna (NSA), líkt og stjórn-
völd í Bandaríkjunum höfðu óskað
eftir með óformlegum hætti. Þetta
sagði ónefndur rússneskur embætt-
ismaður í samtali við rússnesku
fréttaveituna Interfax í gær. Sam-
kvæmt embættismanninum hafa
stjórnvöld í Bandaríkjunum ekki enn
farið fram á það með formlegum
hætti að Snowden verði framseldur.
Enn sem komið er situr Snowden
fastur á millilendingarsvæði á flug-
velli í Moskvu en í dag eru sex dagar
síðan hann lenti á vellinum um borð í
rússneskri farþegaþotu sem kom
þangað frá Hong Kong. Hann bíður
þess nú að stjórnvöld í Ekvador taki
afstöðu til hælisumsóknar hans. Að
sögn embættismannsins mun lausn
nást í málinu um leið og eitthvert ríki
veitir Snowden hæli. skulih@mbl.is
Snowden situr fastur
Kemst ekki af flugvelli í Moskvu
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013
Aðeins þrjú verð:
690 kr.390 kr.290 kr. kvöld í eyðimörk rétt vestan viðherflugvöllinn. Lögreglu- ogslökkviliðsmenn frá bæði herflug-
vellinum og smábæjum í næsta ná-
grenni brugðust við slysinu. Ekki
liggur enn fyrir hver orsök slyssins
var.
Í marsmánuði árið 1999 voru allar
F-16-orrustuþoturnar á Luke-her-
flugvellinum settar í flugbann eftir
að ein þeirra brotlenti í eyðimörk-
inni en þá höfðu fjórar aðrar þotur
af sömu gerð, síðan í október 1998,
lent í svipuðum óförum eftir að hafa
hafið sig til flugs af Luke-vellinum.
Bandarísk orrustuþota af gerðinni
F-16 Fighting Falcon hrapaði rétt
fyrir utan Luke-herflugvöllinn í út-
jaðri Phoenix-borgar í Arizona í
Bandaríkjunum í fyrrakvöld. Báðir
flugmenn þotunnar sluppu án
meiðsla en þeim tókst að skjóta sér
úr vélinni áður en hún lenti á jörð-
inni. Greint var frá þessu í gær á
vefsíðu bandaríska dagblaðsins The
Washington Post.
Flugmennirnir voru á reglubund-
inni æfingu þegar slysið átti sér
stað en þotan hrapaði til jarðar um
sjöleytið síðastliðið miðvikudags-
F-16-þota hrapaði
Báðir flugmennirnir lifðu af slysið
Orsök slyssins liggur ekki enn fyrir
www.wikipedia.org
Orrustuþota F-16 Fighting Falcon-orrustuþota á vegum Bandaríkjahers.
Suður-Afríkumenn söfnuðust saman í Soweto í
gærkvöldi til að biðja fyrir Nelson Mandela,
fyrrverandi forseta Suður-Afríku. „Honum líður
mun betur í dag en þegar ég heimsótti hann í
gærkvöldi,“ sagði Jacob Zuma, forseti landsins,
við fjölmiðla fyrr um daginn. Zuma lagði áherslu
á að læknar á hjartalækningadeild Mediclinic-
sjúkrahússins í Pretoríu, þar sem Mandela ligg-
ur þungt haldinn, ynnu framúrskarandi starf.
AFP
Beðið fyrir frelsishetjunni Mandela
Nelson Mandela lá enn þungt haldinn á sjúkrahúsi í gærkvöldi
Lögreglumenn í
borginni Bacoor
á Filippseyjum
björguðu í
fyrradag 29
konum sem selja
átti mansali til
Suður-Kóreu.
Þá voru fimm
handteknir
vegna málsins og hafa þeir verið
ákærðir fyrir að selja svokallaðar
póstbrúðir (e. mail order brides).
Hámarksrefsing fyrir mansal í
Filippseyjum er 20 ára fangels-
isvist.
Konurnar fundust við húsleit í
borginni en lögreglan hafði feng-
ið ábendingu um að í húsinu færi
fram mansalsstarfsemi. „Við höf-
um bjargað 29 konum sem voru
blekktar með loforðum um ríki-
dæmi ef þær giftust kóreskum
herramönnum,“ segir Reginald
Villasanta, yfirmaður sérsveitar á
vegum lögreglunnar sem rann-
sakar skipulagða glæpastarfsemi.
Björguðu
póstbrúðum
Filippseyjar
Tollverðir í
pólsku hafn-
arborginni
Gdynia hafa gert
upptæka rúm-
lega milljón fals-
aðra smokka sem
fundust í kín-
verskum skipa-
gámi. Smokk-
arnir voru ranglega merktir með
tékknesku vörumerki og er talið að
þeir hafi verið ætlaðir fyrir Evr-
ópumarkað. Auk smokkanna lögðu
tollverðirnir hald á alls kyns fals-
aðan varning, þ.á m. „iPhone“-síma
og „Gucci“-veski. Heildarvirði
varningsins er talið vera tæpar átta
milljónir íslenskra króna.
skulih@mbl.is
Lögðu hald
á smokka
Pólland