Morgunblaðið - 28.06.2013, Side 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta eru hátíðartónleikar í tilefni
þess að Verdi og Wagner hefðu báð-
ir orðið 200 ára á þessu ári,“ segir
Jóhann Smári Sævarsson bass-
barítónsöngvari, um tónleika sem
hann stendur fyrir í Stapanum í
Hljómahöllinni í Reykjanesbæ á
morgun kl. 16. Þar koma fram auk
hans þau Bylgja Dís Gunnarsdóttir
sópran, Elsa Waage kontraalt og
Jóhann Friðgeir Valdimarsson ten-
ór, en píanóundirleikur er í höndum
Helgu Bryndísar Magnúsdóttur.
Aðspurður um efnisskrána segir
Jóhann Smári að boðið verði upp á
aríur, dúetta, tríó og kvartetta úr
mörgum frægustu óperum meist-
aranna tveggja. Þeirra á meðal eru
Rigoletto, Don Carlos, La traviata,
Falstaff og Grímudansleikurinn eft-
ir Verdi og Hollendingurinn fljúg-
andi, Rínargullið, Lohengrin og Á
valdi örlaganna eftir Wagner.
„Þarna verður því stórskotalið
söngvara að takast á við fallegar
perlur,“ segir Jóhann Smári, sem
staðið hefur fyrir óperutónleikum
bæði norðan og sunnan heiða síð-
ustu árin á vegum félagsins Norður-
óp sem hann stofnaði 2000, má þar
nefna flutning á Toscu í Keflavík-
urkirkju sumarið 2011 og Évgení
Ónegín í fyrrasumar.
„Ég stofnaði Norðuróp til að búa
til verkefni á sumrin, því við erum
flest mikið upptekin á veturna bæði
hér- og erlendis,“ segir Jóhann
Smári. Sjálfur er hann nýkominn
heim frá Skotlandi þar sem hann fór
með hlutverk Hollendingsins fljúg-
andi í samnefndri óperu Wagners
hjá Skosku óperunni. „Þeir eru bún-
ir að bóka mig aftur í haust til að
syngja styttuna í Don Giovanni eftir
Mozart í leikstjórn sir Thomasar
Allens,“ segir Jóhann Smári og tek-
ur fram að hann sé nýbúinn að
senda myndir af sér frá öllum hlið-
um ásamt líkamsmáli til þess að
leikmunadeild Skosku óperunnar
geti búið til styttu sem líkist fyr-
irmyndinni. „Það væri gaman að fá
að taka styttuna með heim að sýn-
ingum loknum og hafa hana bara í
garðinum,“ segir Jóhann Smári
kíminn. „Síðan er ég í viðræðum við
þá um þrjú önnur hlutverk á ár-
unum 2014 og 2015, sem er of
snemmt að segja frá þar sem samn-
ingar eru ekki enn í höfn,“ segir Jó-
hann Smári leyndardómsfullur.
Af öðrum nýlegum verkefnum hjá
Jóhanni Smára má nefna einsöng
hans í sinfóníu nr. 8 eftir Mahler
með Berlínarsinfóníunni undir
stjórn Thomasar Hennigs í Berl-
ínarfílharmóníunni í beinni útvarps-
útsendingu, en þar tóku þátt 150
manna hljómsveit, 450 manna kór
og barnakór auk átta einsöngvara.
„Ég fékk þetta verkefni með mjög
skemmtilegum hætti. Umboðsmað-
urinn minn hafði sent mig í prufu
hjá Wagner-sérfræðingi í Berlín, en
hún er ráðgjafi fyrir umboðs-
skrifstofur, óperuhús og hljómsveit-
arstjóra. Ég var búinn að syngja
nokkrar aríur þegar síminn hennar
hringir. Í miðju símtali spurði hún
mig hvort ég hefði sungið 8. sinfóníu
Mahlers sem ég jánkaði og þar með
var ég ráðinn á staðnum. Þá hafði sá
sem tekið hafði að sér verkefnið
þurft að hætta við á seinustu stundu
þar sem hann treysti sér ekki, enda
gerir verkið miklar kröfur um bæði
breitt raddsvið og mikinn radd-
styrk,“ segir Jóhann Smári og rifjar
upp að hljómsveitarstjórinn hafi á
fyrstu æfingu spurt sig hvort hann
hefði ekki örugglega raddstyrkinn í
þetta því hljómsveitin spilaði sterkt
samkvæmt kröfu tónskáldsins.
Jóhann Smári fagnaði 20 ára óp-
eruafmæli á síðasta ári, en hann
þreytti frumraun sína í La Bohème
í Borgarleikhúsinu 1992 og hefur
síðan sungið í 63 uppfærslum í 22
óperuhúsum víðs vegar um heim.
„Ég náði aldrei að halda upp á af-
mælið í fyrra, en hyggst bæta úr því
25. ágúst nk. í Hljómahöllinni og fá
til mín ýmsa einsöngsvini mína,“
segir Jóhann Smári og bætir við:
„Ég hef verið mjög heppinn með
hlutverkin sem ég hef fengið og allt-
af ráðið vel við þau. Ég á það
Demma [Sigurði Demetz] mikið að
þakka, því hann brýndi alltaf fyrir
mér að fara mér ekki of geyst og
taka ekki að mér hlutverk nema ég
væri tilbúinn, enda væri fórn-
arkostnaðurinn mikill væri maður
að syngja hlutverk sem röddin réði
enn ekki við. Hann minnti mig líka
stöðugt á að röddin þyrfti að þrosk-
ast. Núna er þroskinn hins vegar
kominn, röddin er stabíl og tæknin
steinliggur, þannig að nú er upp-
skerutími.“
„Þetta er stórskotalið söngvara“
Hátíðartónleikar til heiðurs Verdi og
Wagner í Hljómahöll á morgun kl. 16
Morgunblaðið/Ómar
Listafólkið Jóhann Friðgeir, Helga Bryndís, Jóhann Smári, Elsa og Bylgja Dís hyggjast heiðra Verdi og Wagner.
Kynningarmiðstöð íslenskrar mynd-
listar (KÍM) kynnti á blaðamanna-
fundi í gær nýtt fyrirkomulag við val
á framlagi Íslands á Feneyjatvíær-
inginn í myndlist. Breytingin felst í
því að kalla eftir tillögum og er
stefnt að því að velja úr innsendum
tillögum þann listamann eða þá lista-
menn sem verða fulltrúar í þjóð-
arskála Íslands 2015.
„Með þessu fyrirkomulagi er horf-
ið frá því lokaða ferli sem hingað til
hefur verið viðhaft við val á fulltrúa
þjóðarinnar. Nú gefst fagaðilum inn-
an myndlistarheimsins tækifæri til
að koma á framfæri verðugum verk-
efnum sem eru vel rökstudd og hafa
burði til að vera landi og þjóð til
sóma í alþjóðlegu samhengi tvíær-
ingsins í Feneyjum,“ segir m.a. í til-
kynningu frá KÍM.
Á heimasíðu Kynningarmiðstöðv-
arinnar má finna nánari upplýsingar
um þær kröfur sem tillögurnar
þurfa að uppfylla.
KÍM hefur frá árinu 2007 haft um-
sjón með verkefninu samkvæmt
samningi við mennta- og menningar-
málaráðuneytið. Undanfarin ár hef-
ur fagráð KÍM staðið fyrir vali á full-
trúa landsins og þar áður var það
nefnd undir forystu forstöðumanns
Listasafns Íslands. „Hið nýja fyr-
irkomulag leysir fagráðið ekki af
hólmi en mun aftur á móti veita
mönnum tækifæri til að koma á
framfæri verðugum verkefnum og
taka þátt í ferli sem reynir bæði á
listræna sýn og fagmennsku við
framkvæmd. Það skal tekið fram að
Kynningarmiðstöð íslenskar mynd-
listar verður eftir sem áður ábyrgð-
araðili skálans, annast alla umgjörð
hans, kynningarmál og aðra fasta
verkþætti. Fagráðið vinnur síðan úr
þeim tillögum sem berast og er
stefnt að því að ljúka ferlinu fyrir lok
september nk. en frestur til að senda
inn tillögur rennur út þann 1. sept-
ember 2013,“ segir í tilkynningu.
Þar kemur jafnframt fram að það
sé ósk mennta- og menningar-
málaráðherra og stjórnar Kynning-
armiðstöðvar íslenskrar myndlistar
að þetta nýja fyrirkomulag megi
verða til þess að efla íslenska mynd-
list, opna umræðuna um það hver
skuli vera fulltrúi þjóðarinnar, skapa
tækifæri í myndlistarsamfélaginu og
áhuga í samfélaginu í heild.
Framlag Íslands valið
með nýjum hætti
Flísagólf Verk Katrínar Sigurð-
ardóttur, en hún er fulltrúi Íslands
í Feneyjum þetta árið.
Opnað fyrir umsóknir vegna Feneyjatvíæringsins 2015
„Mér þykir mjög vænt um þessa
viðurkenningu,“ segir Hulda Jóns-
dóttir fiðluleikari, sem í gær við há-
tíðlega athöfn í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar hlaut styrk úr Minning-
arsjóði um franska hljómsveit-
arstjórann og Íslandsvininn Jean-
Pierre Jacquillat. Þetta var í 22.
sinn sem veittur er styrkur úr
sjóðnum og nemur hann 750 þús-
undum króna.
„Minningarsjóður um Jean-
Pierre Jacquillat var stofnaður árið
1987, tæpu ári eftir að Jacquillat
lést í bílslysi í Frakklandi. Þá hafði
hann nýlokið sex ára starfi sem að-
alstjórnandi Sinfónuhljómsveitar Ís-
lands. Stofnandi sjóðsins var fjár-
mögnunarfyrirtækið Lind hf. sem
var í eigu Samvinnubankans, Sam-
vinnusjóðs Íslands og franska bank-
ans Banque Indosuez en Jacquillat
hafði átt vini í röðum stjórnar-
manna,“ segir m.a. í tilkynningu frá
sjóðnum.
Hulda Jónsdóttir hóf nám í fiðlu-
leik við Juilliard í New York árið
2009 þá aðeins 17 ára gömul og út-
skrifaðist þaðan með BA-gráðu fyrr
í sumar. Hún byrjar í meistaranámi
í fiðluleik við sama skóla næsta
haust. Aðspurð hvaða þýðingu
styrkveitingin hafi segir Hulda ekk-
ert launungarmál að hann komi að
góðum notum enda séu skólagjöldin
há. „Það hjálpar því allt til þegar
maður er í dýru námi. Svo felst í
þessu auðvitað góð viðurkenning á
því sem maður hefur verið að gera
og mikilvæg hvatning til að halda
áfram á sömu braut,“ segir Hulda.
Æfir 5-6 klst. á dag
Spurð hvort styrkveitingin hafi
komið sér á óvart svarar Hulda því
játandi. „Enda vissi maður ekkert
hversu margir væru að sækja um.
Ég reyndi því bara að senda eins
góða umsókn og ég gat,“ segir
Hulda. Hún tók að sjálfsögðu lagið
við afhendinguna í gær og mun
koma fram a.m.k. tvisvar hérlendis
áður en hún heldur út í haust. „Ég
verð með einleikstónleika í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar þriðju-
daginn 30. júlí og spila á kamm-
ertónleikum í Salnum sunnudaginn
11. ágúst ásamt Ragnari bróður
mínum sem leikur á selló og Jane
Sutarjo sem leikur á píanó,“ segir
Hulda og viðurkennir fúslega að
hún æfi sig daglega til að halda sér í
formi. „Ætli ég æfi mig ekki að
jafnaði um fimm til sex klukkutíma
á dag núna yfir sumartímann,“ seg-
ir Hulda að lokum. silja@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ánægð Hulda Jónsdóttir hlaut í gær styrk úr Minningarsjóði um franska
hljómsveitarstjórann og Íslandsvininn Jean-Pierre Jacquillat.
„Góð viðurkenn-
ing og hvatning“