Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.6. 2013 HEIMURINN TO lungum. Þe orðinn er 9 aðber. Stjórnv biðja fyrir ráðki lanÉg er hvor r Bandaríkja wden sem lak u t eftirlit bandarísk a- og netnotkun. athyg jö Rece n forsætisráðherra s r að hann muni taka til skoðunar að boð l þjóðar- atkvæðagr ðslu um fyrirh æmkv - stendurg en til armið- vegna ð BRETLAND LUNDÚNIR Sa uá brúnkukremin St.Tropez hefur tekið kipp eftir a ofurfyrirsætan ateK Moss sat nakin fy í auglýsingum fyr framleiðandann. Að sö St.Tro salan t í jafnfr Allir Tim Mathieson er 55 ára gamall hárgreiðslumaður. Þau Julia Gillard hafa verið par frá árinu 2006 en eru ógift. Mathieson er þriggja barna faðir. Fyrsta barnið eignaðist hann á táningsaldri en tvö hin síðari með fyrrverandi eigin- konu sinni, Diane Stark. Mathieson bjó um árabil í Kaliforníu en eftir að hann flutti aftur til Ástralíu fyrir um áratug rak hann fyrst hár- greiðslustofu í Shepparton og Melbourne. Eftir að Gill- ard varð forsætisráð- herra 2010 hefur hann eingöngu sinnt ólaunuðum störfum, einkum á sviði góð- gerða- mála. Ástralskir útvarpshlustendursperrtu upp eyrun áfimmtudaginn þegar for- sætisráðherra landsins, Julia Gill- ard, fékk óvænt þá spurningu í viðtali við útvarpsstöðina 6PR í Perth hvort sambýlismaður henn- ar, Tim Mathieson, væri hommi. Rök spyrilsins voru af rýrari gerð- inni. „Nú, hann er hárgreiðslumað- ur.“ Gillard trúði ekki sínum eigin eyrum og vísaði þessu alfarið á bug. „Þetta er fáránlegt,“ sagði hún hneyksluð. Spyrillinn, Howard Sattler að nafni, var þó hvergi af baki dott- inn. „En þú hefur heyrt þetta. Hann hlýtur að vera hommi, hann er hárgreiðslumaður. Það er ekki ég sem er að halda þessu fram.“ Útilokað að alhæfa svona Nú var Gillard allri lokið. Ekki nóg með að Sattler hefði borið á borð fyrir hana dylgjur og getgátur um sambýlismann hennar heldur hafði hann í leiðinni fellt sleggjudóm um heila stétt manna. „Sjáðu nú til, Howard,“ hélt hún áfram. „Ég veit ekki hvort allskyns vitleysa verður núna borin undir mig en hvað ertu að segja um alla hárgreiðslumenn- ina þarna úti, þeirra á meðal þá sem eru að hlusta? Að mínu viti er útilokað að alhæfa svona um heila stétt manna, gjörólíkar mann- eskjur. Þetta er fáránlegt.“ Enn þekkti Sattler ekki sinn vitjunartíma. „Geturðu staðfest að hann sé ekki hommi?“ Svar Gillards við þeirri fyrir- spurn var stutt og laggott: „Æ, Howard minn, láttu ekki eins og kjáni. Auðvitað ekki. Leyfðu mér að jarðtengja þig, maður.“ Engum sögum fer af viðbrögðum ráðherrans eftir að slökkt hafði verið á hljóðnemanum en fróðlegt hefði verið að vera þar fluga á vegg. Viðtalið vakti strax mikla hneykslan og útvarpsstöðin 6PR sagði Sattler í framhaldi upp störf- um. Bað stöðin Gillard og Mathie- son formlega afsökunar, þar sem fram kom að spurningar Sattlers hefðu verið móðgandi og óviðeigandi. Sjálfur situr Sattler við sinn keip, telur spurningar sínar alls ekki hafa verið óviðeigandi, hann hafi aðeins verið að gefa ráð- herr- anum tækifæri til að bregðast við orð- rómi í þjóð- félaginu. Hann íhugar að stefna stöðinni fyrir ólögmætan brott- rekstur. Þessi uppákoma vekur upp ýms- ar spurningar. Fyrst má auðvitað velta fyrir sér siðferði og almennri kurteisi í fjölmiðlum. Eiga fjöl- miðlamenn ekki að halda sig við staðreyndir í stað aðdróttana? Er við hæfi að spyrja manneskju svo nærgöngular spurningar? Gildir þá einu hvort hún er forsætisráðherra eða ræstitæknir. Hefði karlmaður fengið samskonar spurningu? Ástralskir fjölmiðlar veltu því einn- ig fyrir sér í gær hvort Gillard hefði fengið þessa spurningu vegna þess að hún er kona. Hefði Sattler hjólað með sama hætti í karlkyns ráðherra. „Afsakið herra minn en er eiginkona yðar lesbía?“ Einu ummælin sem Gillard hefur haft um málið enn sem komið er snerta einmitt á þessu. Hún tjáði fréttamönnum í gær að hún ótt- aðist að atvik af þessu tagi græfu undan konum í stjórnmálum og fældu þær frá þátttöku í þeim. Það væri stórt skref aftur á bak. „Ég vil ekki sjá skilaboð af þessu tagi send til ungra stúlkna. Ég vil að ungum stúlkum og kon- um almennt finnist þær eiga fullan rétt á því að taka þátt í opinberu lífi án þess að þurfa að standa and- spænis spurningum eins og ég varð að gera í gær.“ Að öðru leyti neitaði Gillard að tjá sig um málið. Margir hafa þegar fordæmt uppátæki Sattlers, þeirra á meðal Kevin Rudd, fyrrverandi forsætis- ráðherra. Annars hefur Gillard átt betri vikur. Fyrr í vikunni lak út mat- seðill frá veitingastað í Brisbane, þar sem gert er kynferðislegt grín að forsætisráðherranum. Réttir meðal annars nefndir eftir vissum líkamspörtum. Vertinn hefur þegar beðist vel- virðingar á seðlinum, honum hafi ekki verið ætlað að koma fyrir sjónir almennings, heldur hafi ver- ið um innanhússgrín að ræða. Einmitt. Er maðurinn yðar hommi? UMRÆÐA UM SIÐFERÐI OG ALMENNA KURTEISI Í FJÖL- MIÐLUM HEFUR GOSIÐ UPP Í ÁSTRALÍU EFTIR AÐ FOR- SÆTISRÁÐHERRA LANDSINS, JULIA GILLARD, VAR SPURÐ AÐ ÞVÍ Í ÚTVARPI HVORT MAÐUR HENNAR VÆRI HOMMI. Hjónaleysin Julia Gillard og Tim Mathieson. ÞRIGGJA BARNA FAÐIR Julia Gillard forsætisráðherra Ástralíu átti viðburðaríka viku. Hún þótti halda reisn sinni andspænis gölnum spurningum. AFP * Ég hefði ekki átt mikla möguleika í bandarískumstjórnmálum, trúlaus, einhleyp og án barna.“Julia Gillard í nýlegu viðtali. AlþjóðamálORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.