Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2013
Vegfarendur í gamla Vesturbænum í Reykjavík hafa
margir rekið upp stór augu undanfarið við að sjá stór
augu máluð á húsgafl á mótum Vesturgötu og Selja-
vegar. Það er atvinnulistamaðurinn Guido van Helten
frá Ástralíu sem nú vinnur að því að koma andliti á
vegginn. Þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að
garði var van Helten hátt uppi og graffaði af lífs- og
sálarkröftum.
Orri Freyr Finnbogason hefur hjálpað van Helten
hér á landi og segir að þeir félagar hafi bankað upp á,
beðið um að fá að skreyta vegginn og það hafi eigand-
inn leyft. Van Helten sérhæfir sig í andlitum og þegar
leyfið var komið í hús dró eigandinn upp mynd af afa
sínum sem byggði húsið og var listamaðurinn mjög
hrifinn. Svo hrifinn að eftir skamma stund mun andlit
afa húseiganda prýða gaflinn.
Van Helten hefur líka lífgað upp á hús víða um heim
með verkum sínum, allt frá Lundúnaborg til Skaga-
strandar. Að sögn Orra er van Helten hér á eigin veg-
um. „Hann er atvinnumaður í þessu fagi en hér á landi
borgar hann allt sjálfur. Þetta getur gert mikið fyrir
borgina okkar að fá svona stór nöfn til að lífga upp á
svæðið,“ segir Orri. Önnur verk van Heltens er hægt
að skoða á vef hans, guidovanhelten.com.
Verk van Helten frá Ástralíu vekur eftirtekt og flestir hægja ferðina þegar keyrt er framhjá.
Morgunblaðið/Eggert
ATVINNUGRAFFARINN GUIDO VAN HELTEN
Graffar afann á húsgafl
„Ég á tíkina Trínu. Hún er rúm-
lega tíu ára gömul, tíu og hálfs ef
maður á að vera nákvæmur. Trína
er það sem var kallað hundur í
gamla daga. Það er að segja,
blanda af íslenskum hundi og
Border Collie,“ segir Þórarinn
Eldjárn rithöfundur.
Þórarinn segir að ekkert sé vit-
að um ættir Trínu. „Þetta er hins-
vegar afskaplega góður hundur og
hún hefur staðið sig með sóma.
Hefur mikinn áhuga á bók-
menntum, það hefur oft komið í
ljós.“
Þórarinn var í stuttu fríi fyrir
norðan þegar Sunnudagsblað
Morgunblaðsins sló á þráðinn og
var Trína að sjálfsögðu með í för.
„Það er svo góð stemning í kring-
um svona dýr. Þau eru svo afslöpp-
uð. Það nægir að horfa á hana til
að slaka á.“ Þórarinn er einn af
okkar fremstu rithöfundum og á
að baki langan höfundarferil en
fyrsta ljóðabók hans kom út árið
1974. Bækur hans hafa jafnan not-
ið mikilla vinsælda og iðulega verið
á metsölulistum. Enda segir hann
Trínu vera góðan félaga þegar
kemur að skrifum. „Hún gefur góð
ráð,“ segir hann að lokum.
GÆLUDÝRIÐ MITT
Bók-
mennta-
hundur
Þórarinn og Trína.
Uppi á Oki síðasta
sumar.
200o
300o
400o
1000 m
500 m
Heitasti staðurinn
í sumar!
Gestastofur Landsvirkjunar eru opnar frá kl. 10-17 alla daga
í sumar:
Kröflustöð: Jarðvarmasýning í gestastofu
Búrfellsstöð: Gagnvirk orkusýning og vindmyllur á Hafinu
Fljótsdalsstöð: Gestastofa í Végarði og leiðsögn um Kárahnjúka
Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is/heimsoknir
Á ferð um Norðurland er upplagt að koma við á háhita-
svæðinu við Kröflu og kynnast brautryðjendaverkefni í
vinnslu jarðvarma. Gestastofan er opin alla daga og það
er alltaf heitt á könnunni.
2000 m
1500 m
500o
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Hárlitur Óttars Proppé þingmanns
Bjartrar framtíðar vekur ekki síður
athygli en mælska hans.
Engu er líkara en íkorninn sem
dansar á efstu trjátoppum hafi látið
aflita á sér skottið.
Rihanna tónlistarkona skartar
stundum ljósum lokkum þótt þeir
dökku gægist undan.