Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Blaðsíða 59
16.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Leppur, en hvað hann er vel af hendi leystur á sinn hátt.
(12)
5. Veiði gef til örrar. (7)
8. Verka tinnuna af yndinu. (7)
9. Gerir grín að hlutum húss? (5)
11. Ísstykki knattspyrnufélags lenda í bát. (7)
12. Arflausan aga einhvern veginn í frásögn. (12)
15. Sagt er að lóðin valdi leiðindum hjá klaufanum. (8)
16. Sá síðasti margfaldar ull á möndli. (5)
17. Vond eftir rykið frá hópnum. (1,6)
18. Samhangandi verður lyktandi. (7)
21. Skaffa D-kló í einhvers konar byl. (10)
25. Tinna fór úr barnaleikritunum út af húsgögnum. (11)
27. Öndvegissykrað hjá stórfjölskyldu. (8)
28. Æðibunu gat lokið við og borðar nú vesalingur. (9)
30. Búningurinn sem þú skalt laga. (6)
32. Ha, gala með bið út af dýrinu. (10)
33. Var ekki etin aftur enda drykkur. (6)
35. Þjóðflokkur, óvinveittur Gyðingum, sem var á beit í móum.
(8)
36. Úr vökva kemur ráðning. (7)
37. Stoppið hjartarkollu við handrið. (7)
LÓÐRÉTT
1. Ekki alveg brúnir heldur með galla. (9)
2. Ein saumi handa fáráðum. (9)
3. Pen hjá Inga er laus við fjármuni. (11)
4. Er yðvar innilega verndaður. (9)
5. Kjammi á krá reynist vera ólíki líkamshlutinn. (7)
6. Boltar hóps eru í líkama okkar. (8)
7. Grískur stafur fer að velta í þvottatæki. (8)
10. Grannur með Öddu flækist með stuð frá skrækastri. (12)
13. Fíli og tel aftur í hóglífi. (7)
14. Stútar skrúfu í friðsemd (7)
19. Eftirherma á hegðun fugla í her. (10)
20. Sjúkdómur úr kolefni leggst á sjávarlífveru. (9)
21. Jörgen fær eina krónu til að búa til valfag. (9)
22. Tóm hylur undirgefnar. (10)
23. Drapst hópur við aðgerðaleysið. (5)
24. Ganga með ost. (4)
26. Blaut að tegund í vinnuaðferð tölvu. (9)
29. Ekki öruggur samlandi er samt styrkjandi. (7)
31. Bandarísk drusla er fljótfær. (6)
34. Dýratemjari að stynja. (4)
Hannes Hlífar Stefánsson erÍslandsmeistari 2013 eftirdramatíska lokaumferð Ís-
landsmótsins í Turninum við Borg-
artún. Hannes var með vinnings-
forskot fyrir lokaumferðina en
tapaði fyrir Héðni Steingrímssyni
og á svipuðum tíma vann Björn
Þorfinnsson Braga bróður sinn og
komst upp að hliðinni á Hannesi.
Aukakeppni, tvær at-skákir, fór
fram samdægurs og Hannes vann
1½ : ½ . Að útkljá baráttuna um
titilinn með tveim at-skákum verð-
ur að telja snubbóttan endi á Ís-
landsmóti sem að þessu sinni bauð
ekki uppá nægilegar góðar að-
stæður fyrir keppendur. Mótshald-
arinn, SÍ, fékk húsnæðið til umráða
rétt tilbúið undir tréverk og leysti
mörg erfið tæknileg viðfangsefni
prýðilega. Ljósu punktarnir voru
þeir að margir ungir skákmenn
náðu afbragðs árangri og fyrsti
stórmeistaraáfangi hins vinsæla
skákmanns Björns Þorfinnssonar
gladdi menn. 70 skákmenn hófu
keppni og í efstu sætum urðu:
1. – 2. Hannes Hlífar Stefánsson
og Björn Þorfinnsson 8 v. (af 10) 3.
– 4. Héðinn Steingrímsson og
Hjörvar Steinn Grétarsson 7½ v.
Teflt var um Íslandsmeistaratitil
kvenna og varð Lenka Ptacnikova
Íslandsmeistari, hlaut 6½ vinning
úr 10 skákum. Fyrir lokaumferðina
var hún jöfn Jóhönnu Björgu Jó-
hannsdóttur að vinningum, fékk
heldur viðráðanlegri andstæðing að
kljást við en Jóhanna, sem tapaði.
Sigur Lenku kom ekki á óvart, hún
ber höfuð og herðar yfir skákkonur
okkar.
Hvað varðar taflmennsku Ís-
landsmeistarans, Hannesar Hlífars,
er varla hægt að segja að þar hafi
margt komið á óvart. Sigrar hans
voru flestir öruggir og áreynslu-
lausir, hann fékk hvítt í sex skák-
um af tíu, samdi stutt jafntefli þeg-
ar hann tefldi við Hjörvar Stein og
Henrik Danielssen og bauð Héðni
Steingrímssyni jafntefli snemma
tafls í lokaumferðinni, Héðinn hafn-
aði og afleik Hannesar í lokin má
skrifa á reikning taugaspennu sem
er eðlilegur fylgifiskur loka-
umferðar. Í áttundu umferð vann
hann mikilvæga skák gegn Stefáni
Kristjánssyni:
Stefán Kristjánsson – Hannes
Hlífar Stefánsson
Ítalskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4.
c3 Rf6 5. d3 O-O 6. Bb3 d5 7. De2
Stefán teflir ítalska leikinn
gjarnan með þessum hætti.
Kannski leggur hann það á sig að
læra nýja byrjun næst þegar hann
sest að tafli.
7. … h6 8. h3 Be6 9. g4!?
Þessa leikaðferð með framrás g-
peðsins sá ég fyrst í blindskák
Kasparovs við Helga Áss Grét-
arsson árið 1995.
9. … dxe4 10. dxe4 Rh7 11.
Rbd2 He8 12. Rf1 Dd7 13. Re3
Bxe3 14. Bxe3 Bxb3 15. axb3
Had8 16. b4 a6 17. Rd2 De6 18. h4
Dg6 19. O-O-O Rf8 20. Df3 Re6 21.
g5?!
Hví ekki 21. Df5 eða 21. h5 Dh7
22. Df5.
21. …h5 22. Rf1?
Annar slakur leikur, betra var
22. Rb3, 222. Rc4 eða 22. Kc2. Nú
hrifsar svartur til sín frumkvæðið.
22. … Hxd1 23. Kxd1 Rf4! 24.
Rg3 De6 25. Bxf4 Db3+ 26. Ke1
exf4 27. Dxf4 Dxb2 28. Dd2 Db3
29. Kf1 Hd8 30. De3 Re5 31. Kg2
Rg4 32. Df4 g6!
– SJÁ STÖÐUMYND –
Það lá ekki alveg fyrir hvernig
best væri að halda á stöðu svarts
en Hannes fann bestu leiðina.
33. Dxc7
Hvítur á sér ekki viðreisnar von
eftir þennan leik. „Houdini“ telur
að eina vonin sé fólgin í stórfurðu-
legum leik, 33. Hh3.
33. … Hd2 34. Hf1 Re3 35. Kg1
Rxf1 36. Rxf1 Dd1 37. Db8 Kg7
38. De5 Kh7 39. Kg2 g4 40. Rg3
Hd3
– Stefán taldi vonlaust að halda
baráttunni áfram og gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
SKÁK
Hannes Hlífar Íslandsmeistari í tólfta sinn
Verðlaun eru veitt fyrir
krossgátu vikunnar.
Senda skal þátttökuseðil
í umslagi merktu:
Krossgáta Morgun-
blaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frest-
ur til að skila úrlausn
krossgátu 15. júní renn-
ur út á hádegi 21. júní.
Vinningshafi krossgát-
unnar 9. júní er Magnús
Pétursson, Lækjargötu
32 (220) Hafnarfirði.
Hann hlýtur bókina Hin-
ir réttlátu eftir Sólveigu
Pálsdóttur. Forlagið gefur bókina út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang