Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Blaðsíða 23
16.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
ILLA FARNIR FÆTUR
STJARNANNA
Fyrrverandi kryddpían og tískuí-
konið Victoria Beckham þjáist af
afbrigði sem nefnist Hallux Val-
gus. Það sem gerist er að stóri
tábergsliðurinn, eða beinkúlan
út frá stóru tánni, fer að
ganga út. Beinkúlan fer að
færast í átt að hinum fætinum
en stóra táin sjálf færist í átt
að litlu tánum. Þetta getur
verið einstaklega óþægilegt,
sér í lagi þegar beinkúlan fer
að nuddast upp við skóinn og
mynda núningssár.
Háu hælarnir
á hilluna
Leikkonan Sarah Jessica
Parker, sem fór með hlut-
verk Carrie Bradshaw í hin-
um vinsælu þáttum Sex and
the City, er eflaust hægt að titla drottningu
háa hælsins. Leikkonan er þekkt fyrir að
valsa um á himinháum hælum við öll tæki-
færi án þess að blása úr nös. Hún hefur
hjálpað hönnuðum á borð við Manolo Bla-
hnik og Jimmy Choo að verða að stór nöfn
í skóbransanum en hún lofaði þá mikið í
umræddum þáttum.
Nú hefur komið á daginn að fætur leik-
konunnar eru mjög illa farnir og er henni
ráðlagt af lækni sínum að setja hælana á
hilluna. Samkvæmt lækninum hef-
ur brokkið á háu hælunum
orðið til þess að glænýtt
bein tók að myndast í
fæti Parker, bein sem á
alls ekki heima þar. Leik-
konan gengur nú að-
allega í flatbotna skóm
en tekur þó hælana fram
við sérstök tilefni, t.d.
þegar rauði dregillinn
kallar.
Þ
að er staðreynd að háum hælum
fylgir kvenleiki og bera þeir gjarnan
merki um íburð og þokka. Ásmundur
Arnarsson, sjúkraþjálfari hjá Flexor,
segir að fjöldi kvenna heimsæki hann reglu-
lega vegna verkja í táberginu, stundum er
hægt að tengja þessi vanda-
mál við háhælaða skó, en
alls ekki alltaf. „En það eyk-
ur auðvitað líkurnar á fram-
tíðarvandamálum verulega
að ganga mikið á háum hæl-
um,“ segir Ásmundur. Hann
segir háhælaða skó setja
þrýsting á liði sem eru ekki
gerðir til þess. Oft byrji
þetta með smá bólgum sem
þróast síðan út í slæmar breytingar á liðum,
skekkjur og kreppur sem verða vandamál
þegar fram í sækir.
Það er ljóst að vandamálin sem geta fylgt
notkun hárra hæla eru ansi víðtæk, enda
breyta þeir allri líkamsstöðunni. Álagið á
hnén breytist og staðan á mjöðmunum breyt-
ist og þar með leiðir það einnig upp í bak,
sem er mjög algengur kvilli. Það er ekki
jafnvægi á líkamanum nema að fóturinn sé
flatur.
Margar konur eru þó duglegar að þramma
um á háu hælunum og það skiptir oft litlu
máli þótt verkir í táberginu láti kræla á sér.
Níu af tíu upplifa vandamál
„Fyrir þær sem ganga mikið í hælum er allt-
af önnur staða á kálfahálsinum og smám
saman styttir þetta kálfavöðvana,“ segir Ás-
mundur. „Hingað til mín koma konur sem
hreinlega geta ekki verið í flatbotna skóm,
þær geta ekki staðið eðlilega á gólfinu vegna
þess að það hafa orðið svo miklar styttingar í
kálfum og hásinum.“
Þetta eru auðvitað ekkert voðalega góðar
fréttir fyrir flestan kvenpeninginn enda
margar konur forfallnir skóunnendur. Að-
spurður hvort hófleg notkun sé í lagi segir
Ásmundur að það mætti alveg orða það svo,
bara svona til þess að ná einhverju jákvæðu
fram um hælaskóinn. „En er ekki bara
spurning um að reyna nýtt tískutrend fyrir
konur, svo að þær þurfi ekki að þjást svona.“
Nýleg könnun hefur sýnt að háhælaðir
skór valda konum óþægindum og geta leitt til
varanlegra meiðsla. Á bakvið könnunina
stendur erlendur snyrtiskóli og ýmsir fóta-
sérfræðingar. Í könnuninni kemur fram að
margar konur velja fallegt skópar frekar en
heilbrigða fætur. Það er því nokkuð ljóst að
konur sem klæðast háum hælum eru að setja
líkama sinn í ákveðna hættu í nafni tísk-
unnar. Könnunin sýnir fram á að níu af
tíu konum hafa upplifað einhverskonar
vandamál eftir notkun hárra hæla
og að það getur leitt til alvarlegra
meiðsla að troða sér í of litla skó.
Um þær sem eru tregar til
að láta sér segjast á
hið erlenda
orðatiltæki
„beauty is
pain“ ágæt-
lega við í
þessu tilviki.
MARGAR KONUR GETA EKKI STAÐIÐ EÐLILEGA EFTIR MIKLA NOTKUN HÁRRA HÆLA SEGIR SJÚKRA-
ÞJÁLFARI. MIKIÐ ÁLAG Á TÁBERGIÐ GETUR LEITT TIL VARANLEGRA MEIÐSLA. STÓRSTJÖRNUR HAFA
NEYÐST TIL AÐ LEGGJA HÆLANA TIL HLIÐAR.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
„Ég veit ekki hver fann upp hæla-
skó, en allar konur eiga viðkom-
andi margt að launa,“ sagði Mari-
lyn Monroe forðum daga.
HÁIR HÆLAR HÆTTULEGIR
Háski í nafni tískunnar
Ásmundur
Arnarsson
Sarah Jessica
Parker
Sarah Jessica
Parker og Victoria
Beckham í vanda
vegna hælanna
Hér sjást afleiðingar Hallux Valgus.
Victoria
Beckham