Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Blaðsíða 53
16.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Nýtt myndbandsverk eftir
Rúrí hefur verið sett upp í
gestamóttöku Reykjavík
Natura-hótelsins, Loftleiða-
hótelsins. Verkið Blik ? Tetralogy er í
fjórum hlutum og viðfangsefnið er
upplifun listamannsins af íslenskri
náttúru, þar sem mosi er í forgrunni.
2
Myndlistarmaðurinn Hug-
inn Þór Arason, meðhöf-
undur Andreu Maack að
sýningunni Kaflaskipti sem
opnuð var í Listasafni Reykjavíkur á
Listahátíð, mun ásamt sýningarstjór-
anum Shauna Laurel Jones ræða um
hana við gesti á sunnudag klukkan 15.
Sýninginn snýst um mismunandi ilm-
tegundir.
4
Um helgina leikur hinn danski
Kristian Krogsøe, dóm-
organisti við Dómkirkjuna í
Árósum, á tvennum tón-
leikum á hátíðinni Alþjóðlegu orgel-
sumri í Hallgrímskirkju. Laugardag
klukkan 12 og sunnudag klukkan 17.
5
Leikfélag Fjallabyggðar sýnir í
Þjóðleikhúsinu á sunnudags-
kvöldið, áhugaleiksýningu
ársins Stöngina inn eftir
Guðmund Ólafsson sem einnig leik-
stýrir verkinu. Ástæða er til að hvetja
allt áhugafólk um leikhús til að sjá
þennan ærslafulla gamanleik sem lýst
hefur verið sem frábærri skemmtun
„út í gegn“.
3
Myndlistarkonurnar Guðrún
Hrönn Ragnarsdóttir, Þóra
Sigurðardóttir og Sólveig
Aðalsteinsdóttir opna for-
vitnilega samsýningu, sem þær kalla
„Ver“, í listasetrinu Kirkjuhvoli á
Akranesi á 17. júní klukkan 16.
MÆLT MEÐ
1
Saxófónleikarinn Sigurður Flosason oghinn kunni danski gítarleikari JacobFischer halda dúótónleika á Café Ro-
senberg við Klapparstíg á sunnudag klukkan
21. Á efnisskrá félaganna eru perlur úr „am-
erísku djasssöngvabókinni með lágmarks
undirbúningi,“ að sögn Sigurðar.
Jacob Fischer er talinn einn fremsti djass-
gítarleikari Dana og á meðal þeirra vinsæl-
ustu djassmanna. Hann hlaut mikla athygli
þegar hann byrjaði að spila með fiðluleik-
aranum Svend Asmussen, sem ungur maður,
en síðan hefur frægðarsól hans haldið áfram
að rísa. Fishcer er á leið í hljóðver vest-
anhafs og ákvað að koma við hér og spila
með Sigurði félaga sínum á þessum tón-
leikum, auk þess sem þeir munu nota dag-
part í að hljóðrita einhverja ópusa.
„Við spilum saman í bandi sem við Kjeld
Lauritsen orgelleikari öldum úti í Dan-
mörku,“ segir Sigurður. Nýútkominn diskur
sveitarinnar, Nightfall, hefur fengið afar
góða dóma í djassmiðlum víða um lönd, og
ekki síst dúóflutningur þeirra Sigurðar og
Fischers á „Skylark“ eftir Hoagy Carmicha-
el. „Við tókum það upp einu sinni, óæft,“
segir Sigurður og bætir við að þannig verði
þetta á tónleikunum á sunnudag, þeir verði
búnir að ræða efnisskrána en haldi síðan af
stað í ferðalagið sem lögin bjóða upp á.
„Jacob er rosalega flinkur spilari, á svo
mörgum sviðum. Hann hefur feiknarlega
yfirgripsmikla þekkingu á djassbókmennt-
unum og þekkir allar hjáleiðir. Hann spilar
með ólíkum flytjendum djass dag eftir dag
og nýtur afar mikilla vinsæla. Hann telst lík-
lega frekar hefðbundinn djassgítarleikari en
á mjög háu plani. Öllum finnst gaman að
hlusta á hann,“ segir Sigurður. Þetta verður
í fyrsta skipti sem þeir Fischer leika einir og
óstuddir saman á tónleikum.
efi@mbl.is
SIGURÐUR FLOSASON OG JACOB FISCHER LEIKA DJASSPERLUR Á SAXÓFÓN OG GÍTAR
„Þekkir allar hjáleiðir“
SIGURÐUR FLOSASON OG JACOB
FISCHER SPINNA ÚT FRÁ BANDA-
RÍSKU DJASSSÖNGVABÓKINNI Á
TÓNLEIKUM Á SUNNUDAG.
„Jacob er rosalega flinkur spilari, á svo mörgum sviðum. Hann hefur feiknarlega yfirgripsmikla
þekkingu á djassbókmenntunum,“ segir Sigurður Flosason um gítarleikarann og félaga sinn.
Samsett mynd/Karolina Zapolska
Opnunarsýning safnsins er á verkum
Vigfúsar Sigurgeirssonar sem fyrr segir. „Við
erum afar þakklát Gunnari Vigfússyni forseta-
ljósmyndara fyrir að leyfa okkur að sýna
myndir föður hans, þessi gömlu meistaraverk,
sem tekin eru á Siglufirði.“
Margir spyrja Baldvin og Ingibjörgu hvers
vegna í ósköpunum þau hafi ákveðið að opna
safnið á Siglufirði. Á móti er spurt: Hvers
vegna ekki? „Þegar við byrjuðum að gera upp
kotið okkar við Suðurgötu mættum við mikilli
velvild og hjálpsemi. Fólk hefur lagt mikið á
sig til að gera Siglufjörð að einum fallegasta
bæ á Íslandi og með aðkomu Róberts Guð-
finnssonar og annarra að uppbyggingu Siglu-
fjarðar er framtíðin sannarlega björt. Bærinn
verður mikið augnayndi og í mínum huga er
Siglufjörður nú þegar orðinn 101 norðursins!“
Opið hús verður í safninu við Vetrarbraut
frá kl. 13 til 17 þann 17. júní.
Ein af hinum frægu Siglufjarðarljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar. Oft var fjöldi skipa í firðinum, eins og þegar þessi mynd er tekin, árið 1926.
Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson
Safnið við Vetrarbrautina er stílhreint og fallegt. Þar kennir ýmissa grasa úr sögu ljósmyndunar.