Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.6. 2013
Fylgt úr hlaði
læknar að hafa hraðar hendur til að eiga
von um að aðgerðin skili tilætluðum ár-
angri. Að sögn Guðmundar Felix gera
læknarnir ráð fyrir að aðgerðin taki í
kringum fjörutíu klukkustundir. Hvorki
meira né minna.
Sérstakt skurðarborð, með kóngulóarlagi,
verður smíðað fyrir aðgerðina og voru mál
tekin af Guðmundi Felix í því augnamiði í
vikunni.
Hann fékk líka að fylgjast með mynd-
bandsupptökum frá æfingum læknanna,
þar sem látnir hafa eðli málsins sam-
kvæmt verið í lykilhlutverkum.
Mikil eftirvænting
„Fólkið og raunar allt umhverfið hérna er
mjög traustvekjandi. Læknarnir eru greini-
lega orðnir mjög spenntir fyrir aðgerðinni,
eftirvæntingin er eiginlega síst minni hjá
þeim en mér. Það er mjög gott að finna
fyrir þeim straumum,“ segir Guðmundur
Felix.
Hann var þegar búinn að læra frönsku í
fjórar annir hér heima en nú verður allt
gefið í tungumálanámið. „Það er mjög
mikilvægt að ég nái góðum tökum á mál-
inu, sérstaklega upp á samskipti mín við
það fólk sem kemur að meðferðinni eftir
aðgerðina. Það tala ekki nálægt því allir
ensku hérna. Ég er svo sem kominn með
ágætan grunn en mig vantar æfinguna.
Hún ætti að koma hratt fyrst ég er kom-
inn út.“
Lyon er stór borg og Guðmundur Felix
hlakkar til að kynnast lífinu og menning-
unni þar. „Ég hef aldrei búið í svona
stórri borg áður og það verður án efa
skemmtileg lífsreynsla. Maður þarf að
finna nýjan takt.“
Eldri dóttirin, Rebekka Rut, gefur föður sínum að borða. Stoðnetið er stórt hér heima.
Á spretti í Heiðmörk með Sunnu Hlín Jónsdóttur.
Álagið á hálsinn er mikið og gott að leita annað veifið til Magna Más Bernhardssonar kírópraktors.
Beðið eftir lyfjum – og höndum.
*Læknarnir erugreinilega orðnirmjög spenntir fyrir
aðgerðinni, eftirvænt-
ingin er eiginlega síst
minni hjá þeim en
mér.
Óli og strákarnir okkar
stjórna afslættinum!
ÍSL ??–RÚM ??
Markamunur liðanna ef Ísland vinnur + mörkin sem Óli skorar
veita lykilhöfum afslátt 17. júní hjá ÓB og Olís.PIPAR\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
19
10