Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.6. 2013 Ferðalög og flakk B eint áætlunarflug Icelandair til St. Pétursborgar í Rússlandi hófst laugardaginn 1. júní síðastliðinn. Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á beint áætlunarflug á milli Ís- lands og Rússlands og því um tímamót í íslenskri samgöngusögu að ræða. Flogið verður tvisvar í viku til 17. september, á laugardögum og þriðjudögum. Þráðurinn verður svo tekinn upp að nýju næsta vor. Það var mikil viðhöfn á Pulkovo-flugvelli í St. Pétursborg þegar fyrsta flugvélin renndi í hlað. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, og Volker Wenderfeuer, framkvæmdastjóri flugvall- arins, klipptu á borða og mörkuðu þar með upphaf áætlunarflugs milli Íslands og Rússlands, að viðstaddri áhöfn fyrsta flugsins og fjölmörgum gestum, íslenskum og rússneskum. Rússland vaxandi markaður Að sögn Birkis Hólm er hugmyndin með þessu áætlunarflugi að opna íslenskri ferðaþjónustu nýja leið inn á Rússlands- markað, sem er afar stór og vaxandi ferðamannamarkaður. „Um leið erum við að bjóða Íslendingum nýjan og spennandi áfangastað í beinu flugi,“ segir Birkir. Hann segir að rússneskum ferðamönnum hafi fjölgað jafnt og þétt hér á landi sem í öðrum Evrópulöndum á undanförnum ár- um og það skapi grundvöll fyrir þessu beina áætlunarflugi. Að sögn Birkis Hólm lofa bókanir í flugið góðu en hann segir markmið Ice- landair vera að byggja upp þessa flugleið á komandi árum. Íslenskum blaðamönnum gafst kostur á að kynna sér St. Pétursborg á dögunum ásamt stjórnendum Icelandair og nokkrum fleiri gestum. Óhætt er að segja að borgin hafi komið verulega á óvart, jafnvel þótt maður hafi vitað fyrirfram að hún státaði af merkum byggingum, stórkostlegum söfnum og afar merkri sögu. Borgin stendur við botn Finnlandsflóa inn af Eystrasalti og áin Neva er áberandi í borgarlandslaginu. Íbúar eru um fimm milljónir og erlendir ferðamenn voru mjög áberandi í miðborginni. Stjórnmálasamband í 70 ár Það er alveg stórmerkilegt að nú fyrst, árið 2013, skuli í fyrsta sinn hafið beint flug milli Íslands og Rússlands. Mikil við- skipti hafa verið milli landanna tveggja í áratugi og í haust verður þess minnst að 70 ár eru síðan þessi tvö ríki tóku upp stjórnmálasamband. Sovétríkin voru, eins og menn muna, lokað land en eftir að þau liðu undir lok árið 1991 hefur orðið gíf- urleg breyting í frjálsræðisátt. Bragurinn í St. Pétursborg er alveg eins og maður á að venjast í vestrænni borg. Ekki var annað að sjá en hótel borgarinnar stæðu jafnfætis flottustu hótelum Vesturlanda og veitingastaðir eru margir hverjir alveg framúrskarandi. St. Pétursborg er óumdeilt mesta menningarborg Rússlands. Í fyrsta fluginu heim var 40 manna hópur frá Íslandi sem hafði verið í borg- inni nokkra daga. Af bókunum má einmitt sjá að vinsælt er að hópar ætli þangað í ferðir. Það fyrirkomulag með reyndum far- arstjórum er án efa mjög heppilegt. En auðvitað getur fólk farið þangað á eigin vegum ef það kýs. Þegar dvalið er í St. Pétursborg í tvo daga er vitaskuld aðeins hægt að sjá brot af því sem borgin hefur upp á að bjóða. Sjö hæðir er hámark Það var Pétur mikli sem stofnaði borgina árið 1713 og hann fyrirskipaði að engin hús mættu vera hærri en sjö hæðir og aðeins kirkjur mættu vera hærri. Einnig mælti hann fyrir um að útliti húsamætti ekki breyta. Enn í dag er þessi regla í gildi fyrir miðborgina. Skoðunarferð um miðborgina er nokkuð sem allir ferðamenn ættu að fara í. Ef fólk er áhugasamt um að sjá kistur fyrrverandi keisara Rússlands verður það að leggja leið sína í Peter and Paul For- tress sem er elsti hluti St. Pétursborgar. Þetta er eyja með virkisveggjum á alla kanta og í miðjunni er stórglæsileg kirkja með háum gullturni. Í kirkjunni eru lík- amsleifar keisaranna og fjölskyldna þeirra í íburðarmiklum steinkistum. Þarna eru meira að segja líkamsleifar Nikulásar II keisara og fjölskyldu, sem líflátin voru í kjölfar byltingar kommúnista 1917. Keisarar Rússlands voru duglegir að reisa hallir og kirkjur. Í Vetrarhöllinni í St. Pétursborg er að finna mesta lista- verkasafn Rússlands, Hermitage. Sagan segir að ef fólk eyði einni mínútu fyrir framan hvern grip í þessu safni taki það viðkomandi 12 ár að skoða þá alla! Allir ferðamenn sem leggja leið sína til borg- arinnar verða að skoða þetta safn en um þrjár milljónir manna heimsækja það ár- lega. Katrín mikla stofnaði safnið árið 1764 og það var svo opnað almenningi 1852. Síðan þá hafa margir munir bæst í safnið. Þarna er að finna allar gerðir lista- verka og merkra muna. Það er með ólík- indum að ganga herbergi eftir herbergi þar sem hanga á veggjum hundruð verka- eftir mestu málara heimsins, svo sem Da Vinci, Goya, Picasso, Rubens, Rembrandt, Renoir, Monet, Van Gogh og Gauguin, svo nokkrir séu nefndir. Þarna stendur maður í návígi við málverk sem myndu seljast á milljarða króna hvert og eitt ef þau væru boðin upp á uppboðum. Fyrirmyndin sótt til Versala Peterhof er staður sem íslenskir ferða- menn verða að heimsækja ef þeir hafa tök á. Þetta er stórglæsilegur garður með fjölda gullhúðaðra gosbrunna sem Pétur mikli hóf að reisa á átjándu öld við sum- arhöll sína. Fyrirmyndin er sótt til Ver- sala í Frakklandi. Óhætt er að segja að þarna sé sjón sögu ríkari. Garðurinn er um 30 kílómetra utan borgarinnar en hann er vissulega heimsóknarinnar virði. Kirkjurnar í St. Pétursborg eru hver annarri glæsilegri. Af þeim kirkjum sem við skoðuðum var kirkja St. Ísaks án efa tilkomumest enda stærsta kirkja rétttrún- aðarkirkjunnar í Rússlandi. Bygging hennar hófst árið 1818 og hún var ekki fullkláruð fyrr en 1858, eða 40 árum seinna. Samt unnu menn að bygg- ingu hennar allt að 14 tíma á dag alla daga ársins. Þegar maður stendur inni í kirkjunni er ekki hægt annað en undrast hvernig menn gátu reist slíkt mannvirki með þeirra tíma tækni en turn kirkjunnar er rúmlega 100 metra hár. Segja má að listaverk þeki nánast hvern einasta fer- metra í þessari glæsilegu kirkju. Margt fleira hefur þessi sögufræga borg, St. Pétursborg, ferðamönnum upp á að bjóða. Það verður að bíða næstu heim- sóknar að skoða þá staði. Munið að sækja um áritun Ef Íslendingar hafa hug á að heimsækja Rússland verða þeir að hafa í huga að ferðin þarfnast undirbúnings. Enginn kemst til Rússlands nema hafa vegabréfs- áritun. Sækja þarf um slíka áritun í sendi- ráði Rússlands á Túngötu 14 í Reykjavík. Þar er opið milli klukkan 9 og 12 virka daga. Það tekur nokkra daga að fá áritun og kostar hún tæpar sex þúsund krónur. Áður en komið er inn í landið þarf einnig að fylla út blað með persónuupplýsingum í tvíriti sem landamæraverðir yfirfara og stimpla ef allt er í lagi. Annað eyðublaðið varðveitir ferðamaðurinn og afhendir við brottför úr landinu. Mikilvægt er að fólk varðveiti blaðið vel. Ljósmynd/Guðjón Arngrímsson. ST. PÉTURSBORG Sagan er við hvert fótmál RÚSSLAND HEFUR EKKI VERIÐ Í ALFARALEIÐ ÍSLENSKRA FERÐAMANNA, EN MEÐ BEINU FLUGI ICELANDAIR TIL ST. PÉTURSBORGAR OPNAST ÝMSIR FERÐAMÖGULEIKAR Í RÚSSLANDI. ST. PÉTURSBORG ER MESTA MENNING- ARBORG LANDSINS OG ÞAR ER SAGAN VIÐ HVERT FÓTMÁL. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Það er vinsælt hjá hópum að fara í ferðir til St. Pétursborgar. Einn slíkur mun fara þangað 25. júní n.k. undir forystu Árna Þórs Sigurðs- sonar alþingismanns og munu flestir í hópn- um dvelja í borginni í viku. Að sögn Árna er hann í vinahóp sem hefur lengi talað um að gaman væri að fara til St. Pétursborgar. „Þegar auglýst var að Icelandair ætlaði að hefja beint flug til borgarinnar var drifið í að panta flugmiða og skipuleggja ferðina. Svo spurðist þetta út og fleiri bættust í hópinn,“ segir Árni. Eiginlega má segja að Árni verði þarna á heimavelli. Hann stundaði nám í Moskvu á sínum tíma og talar rússnesku. Síð- an var hann um hríð fararstjóri hjá norskri ferðaskrifstofu og fór með marga hópa til St. Pétursborgar. Að sögn Árna Þórs ætlar hópurinn að skoða það markverðasta í borginni og verða leiðsögumenn þá með í för. Einnig verður farið í dagsferð út fyrir borgina. Þá ætlar Árni að leiða bókmenntagöngu þar sem hópurinn getur lifað sig inn í 19. öldina í gegnum hin stórkostlegu verk rússnesku skáldjöfranna. Árni segir að þetta sé tilvalinn tími til að heimsækja borgina því nú er bjartasti tíminn, hvítar nætur eins og Rússarnir segja um það sem við Íslendingar köllum bjartar nætur. „St. Pétursborg er algjör perla og hópur- inn er orðinn mjög spenntur. Við ætlum að fá eins mikið út úr þessari ferð og við getum,“ segir Árni Þór. Árni við standmynd af Anton Tsjekhov sem er tekin í borginni Tomsk í Rússlandi. „Hópurinn orðinn mjög spenntur“ Segja má að listaverk þeki nánast hvern einasta fermetra í hinni glæsilegu kirkju St. Ísaks.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.