Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Síða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Síða 34
*Græjur og tækniGögn um PRISM upplýsingatækni sem Edward Snowden lak í fjölmiðla hafa valdið reiði »26 A ðgangur landsmanna að 3G dreifikerfinu er alltaf að aukast og nú næst þráðlaust netsamband um 3G kerfið á helstu ferða- mannastöðum landsins. Með til- komu 4G þjónustu á Íslandi verða þráðlausar tengingar enn hraðari. Nova bætir stórum sumarbústaða- löndum við í 4G þjónustu í sumar og Síminn og Vodafone leggja drög að uppsetningu 4G á næstu mán- uðum. „GSM-kerfið er orðið mjög út- breitt á Íslandi. Hluti af því kerfi gefur ákveðna kosti á netteng- ingum en þær eru ekki mjög hraðvirkar miðað við kröfur nú- tímans. Dreif- ingin á 3G netinu er svo alltaf að aukast þó svo að sú dreifing sé ekki orðin jafn víðtæk og á GSM-kerfinu. Það er þó óhætt að segja að 3G netið næst á helstu ferðamannastöðum lands- ins,“ segir Þorleifur Jónasson, for- stöðumaður tæknideildar Póst- og fjarskiptastofnunar. Mikil framför með 4G netinu 4G þjónustan var kynnt til sög- unnar á Íslandi fyrir tæplega ári. Sú tækni er hugsuð sem þráðlaus háhraða nettenging fyrir heimili, fyrirtæki og fólk á ferðinni. Þegar hraðatölur fyrir 4G eru skoðaðar er ljóst að mjög mikið stökk er tekið með þessum nýjasta meðlimi fjar- skiptafjölskyldunnar. Við bestu hugsanlegu aðstæður á 4G að geta náð hraða sem nemur um 100 megabitum á sekúndu en til að setja þetta í samhengi er það um tíu sinnum hraðara en það sem 3G- kerfið annar venjulega. „Þegar kemur að 4G netinu þá eru áform um að dreifa því víðar um landið en nú er dreifingin bund- in við höfuðborgarsvæðið. Það er nú eitthvað í það að dreifingin verði orðin almenn um allt land en mark- miðið er að hún eigi eftir að ná til 99,5% landsmanna,“ segir Þorleifur. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir er upplýsingafulltrúi Símans en hún telur stöðu ís- lenskra og er- lendra ferða- manna sem vilja komast á netið vera mjög góða. Hún segir stöð- una hafa batnað frá því í fyrra og bendir á að nú í vor hafi Síminn sett upp fjölda 3G senda til að þétta net Símans enn frekar. „Við settum m.a. upp 3G samband á Borgarfirði eystri, Raufarhöfn, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði. Við erum að skoða að setja upp 3G senda á Rifi á Snæfellsnesi, Súðavík og Úlfljótsvatni. Þá stefnum við að því að þétta netið jafnt og þétt um allt land. Til að mynda eykst flutningsgetan á Húsavík, sem á eftir að koma þeim mikla fjölda ferðamanna sem þang- að fara vel – sem og heimamönnum að sjálfsögðu,“ segir Gunnhildur en 4G þjónustan mun standa við- skiptavinum Símans til boða í haust. Nova fyrst til að hefja 4G þjónustu hér á landi Símafyrirtækið Nova var fyrsta fyrirtækið til að hefja 4G þjónustu hér á landi en að sögn Haralds Pét- urssonar, sölustjóra hjá Nova, fer það kerfi sístækkandi. „Höfuðborg- arsvæðið er orðið klárt og í sumar munum við bæta við Keflavík, Skorradal, Grímsnesinu og öðrum stórum sumarbústaða- löndum á Suður- landi,“ segir hann og bætir við að aðgengið að neti fyrir þá sem ferðist um landið sé orðið einfaldara en áður. „Við erum farin að sjá það að ferðamenn nýta sér að vera með netið í bílnum, pung eða hnetu eins og við köllum ferðabeininn sem hoppar á milli 3G og 4G eftir staðsetningu. Hneta er lítill wifi-beinir sem öll fjölskyldan getur tengst á ferðlaginu og staðan er orðin sú að fólk vill vera nettengt alls staðar sem það fer,“ segir Har- ald en Nova mun vinna að því á næstu árum að bjóða upp á 4G þjónustu á helstu þéttbýlisstöðum landsins með yfir 500 íbúa. Vodafone mun á næstu vikum setja upp senda fyrir 4G en að sögn Hrannars Péturssonar, fram- kvæmdastjóra hjá Vodafone, geta innlendir og erlendir ferðamenn bæði nota GSM-kerfi og 3G þjón- ustu fyrirtækisins til að nálgast net á þjóðvegum landsins. „Það er mis- munandi eftir svæðum hvaða far- símanet þú getur nýtt. Best er auð- vitað að nota 3G netið okkar en þar sem því sleppir notast fólk við EDGE- tæknina á hefð- bundna far- símanetinu, án þess þó að verða sérstaklega vart við það því snjall- tækin skipta sjálfkrafa milli kerfa. Gagnaflutningshraðinn er þó minni á EDGE en mestur er hann auðvit- að á 4G kerfinu okkar, sem er kom- ið í prufurekstur og verður opnað fyrir almenning í sumar,“ segir Hrannar Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Hrannar Pétursson Þorleifur Jónasson Harald Pétursson DREIFING Á NETI HEFUR BATNAÐ SEINUSTU ÁR Aðgangur landsmanna að þráð- lausu háhraða neti fer batnandi Á SUMRIN FJÖLGAR ÞEIM FERÐAMÖNNUM SEM FERÐAST INNANLANDS EN MARGIR ÞEIRRA GERA KRÖFU UM AÐGANG AÐ ÞRÁÐLAUSU NETI. AÐGANGURINN HEFUR BATNAÐ SEINUSTU ÁR EN ÞÓ ER ENN LANGT Í LAND Á MÖRGUM STÖÐUM. Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Vatnajökull Ísafjörður Síminn Nova (Vodafone) Grunnkort/Loftmyndir ehf. Reykjavík Akureyri Egilsstaðir 3G Útbreiðsla 3G dreifikerfis

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.