Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Blaðsíða 39
16.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 S umarið 2013 var ég búin að sjá í hyllingum. Markmiðið var að flytja lögheimilið í Sundhöll Reykjavíkur þar sem ég ætlaði að flatmaga með sólarvörn, auðga andann með kiljulestri og auka ytri fegurð með því að skjóta á mig engiferskotum eins og eng- inn væri morgundagurinn. Þess á milli ætlaði ég að hjóla í vinnuna, berleggjuð í kjól, eins og maður gerir yfir sumartímann (allavega þegar allt er eðlilegt). Eitt besta spariguggutrixið í þessu veðurfari er án efa blessuð augn- háralengingin. Alvöru augnháralenging er framkvæmd á viðurkennd- um snyrtistofum en þar límir snyrtifræðingurinn gerviaugnhár við hvert einasta augnhár sem bæði þykkir og lengir okkar eigin augnhár. Ég ætla nú ekki að vera með neinn áróður en ég mæli ekki með því að konur láti gera þetta í heimahúsum. Það er nefnilega með þetta eins og svo margt annað í lífinu að það er betra að sleppa þessu en að láta gera þetta illa. Ég hef séð með eigin augum illa leikin augnhár eftir heimaæfingar amatöra. Það er nákvæmlega ekkert smart við það. Augnháralengingin er dálítið eins og himnasending í tíð sem þessari, þar sem rignir og rignir. Hún er líka góð fyrir sunddrottningar sem vilja vera töff í lauginni (eða heita pottinum) og auðvitað fyrir þær sem eiga það til að fella tár við og við. Konur með augnháralengingar þurfa nefnilega aldrei að hafa áhyggjur af því að maskarinn sé að leka niður á kinnar eða sé farinn að klínast við augabrúnirnar. Í hinu margbrotna lífi konunnar getur það verið lífsnauðsynlegt. Auk þess getur lífið kallað á þær aðstæður að konan þurfi sérstaklega á því að halda að vakna ekki eins og Grýla, heldur eins og Sophia Loren (þegar hún var upp á sitt besta). Konur með augnháralengingar eru alltaf eins og frú Loren, alla daga ársins, allan sólarhringinn … Konur með augnháralengingar spara auk þess heilmikinn tíma því þær þurfa ekki að mála sig jafnmikið um augun og hinar. Þetta kallar ekki á prófgráðu í bananaskyggingu og eyeliner-fræðum. Í versta falli er settur örlítill blýantur í kringum augun til að ramma inn augnsvæðið og gera það þokkafyllra. Það tekur reyndar í kringum tvo klukkutíma að fá augnháralengingu í fyrsta skipti en eftir það þarf að lagfæra augnhárin á nokkurra vikna fresti og þá tekur það í kringum klukkutíma. Og nú kemur játning. Ég er búin að vera með augnháralengingu svipað lengi og Óttar Proppé er búinn að vera með aflitað hár. Við erum í sama vítahringnum, einu sinni byrjað – þú getur ekki hætt! Það alversta af öllu er að geta ekki gert neitt á meðan augnhárin eru fixuð. Í þennan klukkutíma get ég ekki verið andlega fjarverandi eins og alla hina dagana – allan ársins hring. Það getur tekið á … martamaria@mbl.is Woman blue eye with extremely long eyelashes. Við Óttar Proppé í Bjartri framtíð erum í sama vítahring. Hver vill ekki vera eins og Sophia Loren allan ársins hring? Ég ætlaði að vera þessi týpa en því miður varð ekkert af því. Í sama vítahring og Óttar Proppé Það hefði verið svalandi að drekka engifer- skot við sund- laugarbakkann. Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is Allt fyrir gluggana á einum stað Úrval - gæði - þjónusta Mælum, sérsmíðum og setjum upp 4.900 5.300 6.500 6.400 6.600 8.500 7.950 12.000 7.950 7.300 Gjafir sem gleðja LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.