Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Síða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.6. 2013 B andaríkjamenn segjast nú loks sann- færðir um að Sýrlandsstjórn hafi beitt efnavopnum í baráttu sinni gegn uppreisnarmönnum. Bretar taka undir þessar fullyrðingar og segja að ríkar sannanir séu nú fyrir hendi. Þess vegna standi líkur til þess að bandamenn muni senn beita sér með virkari hætti í átökunum í Sýrlandi en hingað til. Bretar með því að koma vopn- um til uppreisnarmanna og Bandaríkin með svokall- aðri loftrýmisgæslu. Slík gæsla var framkvæmd af Nato í Líbíu, með samþykki öryggisráðsins, en varð fljótlega annað og meira en það, án nokkurra eft- irkasta. Merkilegt mat Átökin í Sýrlandi eru þegar talin hafa kostað nærri 100 þúsund manns lífið. Ekki er lengur um það deilt að efnavopn hafi komið þar við sögu. Lengi vel þótti þó ekki ótvírætt, hvor stríðsaðiljanna það var sem beitt hefði efnavopnum, hersveitir einræðisherrans eða þeirra sem reyna að velta honum. Það er ekki heldur um það deilt, að einungis lítill hluti fallinna eða særðra týndi lífi eða limum vegna beitingar efna- vopna. En samkvæmt flóknum siðferðislegum mæli- kvörðum, sem varða stríð og þau voðaverk sem þeim fylgja, gildir eitt um byssukúlur, handsprengjur, jarðsprengjur eða loftárásir með sprengjum sem jafna hús og hverfi við jörðu, svo fátt eitt sé nefnt, og annað um efnavopn. Með þeim dilkadrætti morðtóla fylgja útfærðar röksemdir og ályktanir á þeim byggðar. Efnavopn munu heyra til flokksins um ger- eyðingarvopn (weapons of mass destruction). Það breytir ekki þeirri skilgreiningu í Sýrlandi þótt svo sem 99.500 hafi fallið fyrir viðurkenndum vopnum, en „aðeins“ t.d. 500 fyrir efnavopnum, að þau síðar- nefndu teljast til gereyðingarvopna en hin fyrrnefndu ekki. Þó virðist fordæming á beitingu slíkra vopna og viðbrögðin við þeim einnig fara nokkuð eftir því hver beitir slíkum vopnum og gegn hverjum þeim er beitt. Þekkt dæmi Vitað er að Saddam Hussein beitti slíkum vopnum gegn Kúrdum og sá handlangari hans og frændi, Efnavopna-Ali, um útfærsluna. Talið var sannað að um 300 þúsund manns (sem Íslendingar a.m.k. hljóta að telja umtalsverðan fjölda) hefðu legið í valnum og þar á meðal þúsundir barna. Viðbrögðin við þessu óg- urlega hryðjuverki voru takmörkuð, þótt það væri vissulega samviskusamlega tínt til þegar loks var ákveðið að fara gegn Saddam og ljúka verkinu sem hófst eftir innrás hans í Kúveit. En efnaárásin gegn Kúrdum var þó ekki ákvörðunarástæðan sem herför- in gegn Saddam Hussein og klíku hans var byggð á. Meginröksemdin var sú, að sannað þótti, umfram skynsamlegan vafa, að Saddam væri búinn að koma sér upp gereyðingarvopnum eða væri við það að full- komna það ætlunarverk sitt. Sagan og nýlegir at- burðir eins og árásin á turnana tvo í New York sönn- uðu að slík vopn í slíkum höndum sköpuðu hættu á heimsvísu. Hryðjuverkaárásin ógurlega á minni- hlutahóp Kúrda sannaði vissulega að einvaldur Íraks væri óður morðhundur sem til alls væri vís, en atriði eins og eitt stykki þjóðarmorðstilraun af því tagi dugði þó ekki öllum í öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna. Slátrunin á þrjúhundruð þúsundunum staðfesti Jafnvel morðtól geta verið annaðhvort góðkynja eða illkynja *Stríðið við Íran stóð í tæp átta árog var óhemju blóðugt og týndinærri ein milljón manna lífi áður en yfir lauk. Í því stríði beitti Saddam Hussein sannanlega efnavopnum (sinnepsgasi) gegn her Írans. Þetta stríð og beiting efnavopna þar fékk lítil viðbrögð og aum og er sjaldan nefnt til sögunnar. Hvers vegna? Reykjavíkurbréf 14.06.13

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.