Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Page 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Page 49
16.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 Þ að var blendin tilfinning að kveðja landið. Ég hef verið með stórt net í kringum mig og það verður undarlegt að sjá það góða fólk ekki í mánuði eða jafnvel ár. Ég á eftir að sakna margra,“ segir Guðmundur Felix Grét- arsson í símasamtali frá Lyon, þar sem hann er nú að koma sér fyrir. Guðmundur Felix bíður, sem kunnugt er, eftir því að fá græddar á sig hendur og mun aðgerðin fara fram á sjúkrahúsi í borginni á næstu mánuðum. Það var í mörg horn að líta hjá Guð- mundi Felix síðustu vikuna áður en hann hélt utan og Kjartan Þorbjörnsson, Golli, ljósmyndari Morgunblaðsins, fékk að fylgja honum eftir. Guðmundur Felix þurfti meðal annars að hitta lækninn sinn, sækja hálfs árs skammt af lyfjum í apótek og hitta kírópraktor en eðli málsins samkvæmt hreyfir hann háls- inn öðruvísi og meira en við flest. Það er því ómetanlegt að láta hnykkja á sér ann- að slagið, jafnvel þótt það kalli fram eina og eina grettu. Þess utan þurfti Guðmundur Felix vita- skuld að kveðja vini og vandamenn, hreyfa sig til heilsubótar og láta skoða bílinn sinn sem lagður er af stað á eftir honum með Norrænu. Bíllinn er mikið þarfaþing enda sérútbúinn fyrir Guðmund Felix. Að stikna úr hita Aðdragandinn að vistaskiptunum er langur og Guðmundur Felix hafði farið í þrígang til Lyon áður en hann flutti búferlum. „Þetta lítur ljómandi vel út, fyrir utan það að ég er að stikna úr hita,“ segir hann léttur í bragði. Spurður um hitastigið dæs- ir hann og segir það öfugum megin við þrjátíu gráðurnar. Eins og fram hefur komið verður Guð- mundur Felix í bráðabirgðahúsnæði fyrsta mánuðinn en leit að varanlegum samastað er þegar hafin. Foreldrar hans, Guðlaug Þórs Ingvadóttir og Grétar Felixson, fóru utan með honum, ásamt yngri dóttur hans, Diljá. Grétar í því skyni að hjálpa þeim að koma sér fyrir en þær langmæðgur gera ráð fyrir að dveljast hjá Guðmundi Felix eins lengi og hann þarf að vera í Lyon. Hann hefur þegar fundið fyrir góðum stuðningi frá ræðismanni Íslands í borginni og eins úr sendiráði Íslands í París. Fólk sé boðið og búið að leggja honum lið. Fjörutíu klukkustunda aðgerð Guðmundur Felix hefur þegar hitt lækna- teymið sem hyggst framkvæma aðgerðina. „Ég hef verið í ströngu prógrammi alla vikuna síðan ég kom hingað og þetta lítur allt mjög vel út. Undirbúningur er þegar hafinn enda þótt ég fari líklega ekki form- lega inn á listann hjá þeim fyrr en í haust. Eftir það getur biðin eftir gjafa ver- ið einn dagur, hún getur líka verið margir mánuðir. Það er ómögulegt að segja,“ segir Guðmundur Felix. Um gríðarlega flókna aðgerð er að ræða en gjafinn þarf að vera á staðnum og eftir að hann er úrskurðaður látinn þurfa Guðmundur Felix Grétarsson á ekki í vandræðum með að svara í símann með tungunni. Guðlaug Þórs Ingvadóttir, móðir Guðmundar Felix, hjálpar syni sínum að pakka fyrir ferðalagið. Kvittað undir skoðunarskýrslu á bílnum sem nú er á leiðinni til Frakklands. Hann er þarfaþing.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.