Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Síða 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2013, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.6. 2013 Ásdís Stross fiðluleikari og Ásta Haralds- dóttir píanóleikari halda tónleika í Selinu á Stokkalæk á sunnudag klukkan 16. Á efnis- skrá tónleikanna eru tilbrigði eftir Mozart, útsetningar Helga Pálssonar á fjórum íslensk- um þjóðlögum, „Rómönsu“ eftir Árna Björnsson og „Húmeresku“ eftir Þórarin Jónsson. Auk þess leikur Ásta þrjú lög fyrir píanó eftir Grieg, „Gamlar dansvísur“ eftir Bartók og tvö stutt verk eftir Jón Leifs sem byggð eru á íslenskum þjóðlögum. Ásdís starfaði um árabil í Sinfóníuhljóm- sveit Íslands og var þá um skeið þriðji kons- ertmeistari hljómsveitarinnar. Ásta starfar sem organisti, kennari og píanóleikari. Miðapantanir eru í síma 864 5870. FIÐLA OG PÍANÓ Á STOKKALÆK TILBRIGÐI Í SELINU Ásta Haraldsdóttir píanóleikari og Ásdís Stross fiðluleikari koma fram í Selinu á sunnudag. Ljósmynd/Þóra Mínerva Hreiðarsdóttir Verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur verða flutt á Stofutónleikum á Gljúfrasteini á sunnudag. Morgunblaðið/Heiddi Flutt verða verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur tónskáld á fyrstu Stofutónleikum sumarsins á Gljúfrasteini en þeir hefjast klukkan 16 á sunnudag. Flytjendur eru Marta G. Halldórs- dóttir sópran, Pamela De Sensi flautuleikari og Páll Eyjólfsson sem spilar á gítar. Á meðal verkanna sem flutt verða eru „Tvö tré“, sem samið var sérstaklega að beiðni Pamelu og verður frumflutt á Íslandi á tónleikunum. Þar að auki verður frumflutt nýtt sönglag við ljóð Halldórs Laxness, „Dáið er alt án drauma“. Stofutónleikar á Gljúfrasteini hófust árið 2006 og hafa um 180 listamenn komið fram. TÓNLEIKAR Á GLJÚFRASTEINI VERK ELÍNAR Heimili bandaríska mynd- listarmannsins Donalds Judds (1928-1994), 101 Prince Street í SoHo í New York, hefur verið opnað gestum sem áhuga hafa á að sjá hvernig þessi heimskunni myndlistar- maður og hönnuður, sem hefur verið verið kallaður einn af helstu meisturum mínimalismans, þótt hann hafi harðneitað að tengjast því hugtaki, bjó sér ból. Húsið er fimm hæðir, grindin steypt úr pottjárni, og Judd keypti þetta fyrsta hús sem hann eignaðist fyrir lítið fé 1968. Hann lagaði það að hugmyndum sín- um um hvernig ætti að lifa lífinu, á einfaldan en stílhreinan hátt, og smám saman setti hann upp verk eftir samherja í listinni sem hann dáði. Börn Judds hafa eytt mörgum ár- um í að gera húsið upp, án þess að raska neinu, og nú geta þeir skoðað sem vilja. MERKILEGT HÚS OPIÐ GESTUM HEIMILI JUDDS Donald Judd Nýr sýningarsalur, Anarkía, verður opnaður í dag, laug-ardag klukkan 15 með tvískiptri sýningu Bjarna Sig-urbjörnssonar myndlistarmanns. Anarkía er að Hamra- borg 3 í Kópavogi og er á vegum ellefu listamanna. Í tilkynningu frá þeim segir að hópurinn Anarkía hafi „kosið að taka málin í sínar hendur og skapa sér sjálfir tækifæri til að koma verkum sínum á framfæri á eigin forsendum. Mælistikur og stofnanir „listheimsins“ látum við okkur í léttu rúmi liggja, en leggjum áherslu á milliliðalaust erindi listamanns- ins við listnjótendur…“ Þá segir að Anarkía hafi þetta húsnæði til umráða, til sýninga á verkum hópsins „… sem og annarra listamanna sem vilja taka þátt í þessari tilraun og finna sam- hljóm með hugmyndunum sem að baki liggja“. Í Anarkíu eru tveir sýningasalir og setur Bjarni upp í þeim tvær sýningar sem hann kallar „Að flá fiðrildi“ og „Svífa svartir skurðir“. Bjarni segist líta á fiðrildið í þessu samhengi sem tákngerving málverksins, sem vissulega sé illfláanlegt, en hann er kunnur fyrir átakamiklar abstraktmyndir, ekki síst málaðar á plexigler. „Hvað gerist þegar fegurðin er skorin upp?“ spyr hann og býð- ur gestum á sýninguna að velta því fyrir sér. NÝR SÝNINGARSALUR, ANARKÍA, Í KÓPAVOGI Innviðir og nekt málverksins „Hér er fengist við nekt málverksins, innviði þess og grunnforsendur: Hvað gerist þegar fiðrildið sjálft er flegið?“ spyr Bjarni Sigurbjörnsson. Morgunblaðið/Rósa Braga BJARNI SIGURBJÖRNSSON OPNAR TVÍSKIPTA SÝNINGU Á NÝJUM MÁLVERKUM Í ANARKÍU. Menning S kemmtileg viðbót við safnaflóru Siglufjarðar birtist fólki þjóðhátíð- ardaginn, 17. júní. Þar er um að ræða Saga Fotografica að Vetrar- braut 17. Tilgangur safnsins er varðveisla á tækjum til ljósmyndunar og ljós- myndavinnslu frá ýmsum tímum, sýning þeirra og kynning, auk þess sem staðið verður fyrir kynningu á sögu ljósmyndunar og mis- munandi aðferðum við ljósmyndavinnslu, sem og sýningum á myndverkum. Stofnendur safnsins eru hjónin Baldvin Ein- arsson og Ingibjörg Sigurjónsdóttir, bæði úr Reykjavík en þau tóku ástfóstri við Siglufjörð fyrir nokkrum árum. Á fyrstu sýningu safns- ins eru Siglufjarðarmyndir Vigfúsar Sigur- geirssonar, sem lengi starfaði sem forseta- ljósmyndari, en hann tók margar eftirminni- legar myndir, m.a. á síldarárunum. Paradís fuglaljósmyndara? Baldvin og Ingibjörg eiga ljósmyndavöru- og þjónustufyrirtækið Beco í höfuðborginni og hið nýja safn má að einhverju leyti rekja til áhugasams fuglaljósmyndara og viðskipta- vinar fyrirtækisins, John Wilkins, starfsmanni breska sendiráðsins. Hann hafði heyrt af því að Siglufjörður væri paradís fuglaljósmynd- ara, langaði að komast þangað og þau Baldvin og Ingibjörg sáu um að sá draumur rættist. „Systir Ingu bjó á þessum tíma á Siglufirði en að öðru leyti höfðum við engin tengsl við bæ- inn. Hún útvegaði okkur gistingu á fallegum stað í miðjum Siglufjarðarbæ, við renndum norður með hjónin og urðum heilluð,“ segir Baldvin. Þau höfðu áður komið til bæjarins en við allt önnur skilyrði. „Þá var napurt og Siglu- fjörður hálfgerður draugabær. Systir Ingu var með gesti svo við tjölduðum í lítilli laut sunn- arlega í bænum – það var ekki draumanótt- in!“ segir Baldvin og hlær. Hjónin gistu með Bretunum, John Wilkins og Margreth eigin- konu hans, „í yndislegu húsi við Hverfisgötu, áttum góða kvöldstund og vöknuðum í ótrú- legri blíðu; fuglarnir sungu, sjórinn var speg- ilsléttur og bátarnir að fara út. John myndaði mikið enda dagurinn fullkominn til þess og ég sagði við konuna mína, að þetta væri staður þar sem ég vildi eiga heima.“ Að þeim orðum sögðum rúllaði af stað bolti sem enn hefur ekki stöðvast. Þau búa þó í Reykjavík og annað stendur ekki til, en eiga afdrep fyrir norðan. Í kaffiboði hjá fólki við Suðurgötu lýsti Baldvin því yfir, í þessari sömu ferð, að hann langaði að eignast hús í bænum. Þegar þau Baldvin gengu niður götuna að boðinu loknu losnaði skóþvengur hans og eina ráðið var að setjast niður og reima. Hann tyllti sér í tröpp- urnar við Suðurgötu 30 og segir þá við Ingu að hann væri til í að eiga þetta hús. Nokkrum mánuðum síðar höfðu þau keypt umrædda fasteign. Vinur þeirra, sem svipaðist um eftir húsi fyrir þau, benti á þetta því eigendurnir væru lítið á Siglufirði, Baldvin hringdi í viðkomandi, sá hafði ekki hugsað sér að selja en skipti um skoðun nokkru síðar. Húsið var illa farið en hjónin dunduðu í frí- stundum næstu misserin við að gera það upp. Um langan veg var að fara að heiman og erf- itt að ferðast með verkfæri og annað sem til þurfti. Þau festu því kaup á bílskúr þar sem hægt var að vinna ákveðin verk en þegar hann varð of lítill keyptu þau gamla skemmu við Vetrarbraut, á eyrinni. Í kaupunum fylgdi sambyggt hús, sem þau höfðu reyndar hafnað að kaupa árið áður því það var svo illa farið. „Það var samt heillandi að ganga inn í húsið og það á sér merkilega sögu.“ Þau ákváðu að gera húsið upp og þar verður safnið senn opnað. Um endurhönnun hússins sá Guðmundur Gunnlaugsson arkitekt og eru þau afar ánægð með hvernig til tókst. Á árum áður var í húsinu vinnustofa tré- smiðs og síðar höfðu Síldarverksmiðjur ríkisins það til umráða og notuðu sem rann- sóknarstofu. Þegar hjónin kynntu sér sögu hússins betur kom í ljós að þar höfðu áhuga- ljósmyndarar haft aðstöðu á tímabili og Krist- ján Möller, samgönguráðherra í síðustu ríkis- stjórn, m.a. kennt ungum Siglfirðingum fyrstu handtökin við að framkalla filmur. 101 norðursins Meðan á vinnu stóð við að gera húsið upp kviknaði hugmyndin að safninu. „Við höfum starfað við að þjónusta ljósmyndara og ljós- myndaiðnaðinn í 34 ár og erum með áráttu fyrir því að safna búnaði og ýmsu öðru sem tengist ljósmyndurum á Íslandi; höfum t.d. safnað verkfærum þeirra frá fyrstu tíð til dagsins í dag og vegna starfsins hafa okkur hlotnast margar góðar gjafir. Á seinni árum hefur gamalt fólk, sem við höfum þjónustað lengi, jafnvel komið með hluti til okkar vegna þess að þeir voru ekki notaðir lengur og fannst þeir eiga heima í Beco. Þannig hafa ýmsar gersemar komist í okkar vörslu.“ NÝTT SAFN OPNAÐ Á SIGLUFIRÐI Myndarlegu ljósi varpað á söguna á Vetrarbrautinni HVERT SAFNIÐ ÖÐRU MERKILEGRA HEFUR VERIÐ SETT Á STOFN Á SIGLUFIRÐI Á SÍÐARI ÁRUM. ÞAR ER SÍLD- ARSAGAN VITASKULD Í HÁVEGUM HÖFÐ, EN EINNIG ÞJÓÐLAGIÐ OG LJÓÐIÐ – OG NÚ LJÓSMYNDUNIN. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Baldvin Einarsson og Ingibjörg Sigurjónsdóttir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.