Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2013 Hlutirnir fara ekki alltaf eins og við ætlum. Tinna Hrafnsdóttir leikkona hefur brugðið sér í mörg hlutverk en árið 2006 tók hún ákvörðun, sem hún hélt að væri einföld, um að takast á við móðurhlutverkið. Í einlægu viðtali í blaðinu í dag lýsir hún þeim fimm árum sem tóku við þar sem hún og unnusti hennar reyndu að eign- ast barn en gátu ekki sökum ófrjósemi. Þau voru orðin vonlítil um að geta nokkurn tímann eignast barn en á síðasta ári fæddi Tinna svo tvíburadrengina Starkað Mána og Jökul Þór sem komu í heiminn eftir svokallaða smásjár- frjóvgun. Tinna ákvað að koma í viðtal og segja frá sinni upplifun af því að glíma við ófrjósemi því hún vill opna umræðuna, ófrjósemi eigi ekki að vera feimnismál. Vandann þurfi að ræða upphátt og opin- skátt, enda sé ófrjósemi að aukast hér á landi og annars staðar í heiminum. Tinna bendir á þann mikla kostnað sem fylgir því að reyna að eignast börn með aðstoð tækn- innar. Hún bendir á að margir ráði ekki við að greiða þann kostnað sem meðferðunum fylgi en annars staðar á Norðurlönd- unum sé fyrsta tæknifrjóvgunin, sem er dýrust, niðurgreidd. Hún skorar á velferðar- ráðherra að beita sér fyrir sams konar niðurgreiðslu til tilvonandi foreldra hér á landi. „Börn eru fjárfesting til fram- tíðar og skila sínu til baka til sam- félagsins,“ segir Tinna í viðtalinu. Það er alltaf jákvætt þegar hægt er að tala um hlutina, þótt þeir séu ekki eins og við héldum að þeir yrðu. Þótt þeir séu ekki alveg nákvæmlega eins og þeir „áttu“ að vera. Við ráðum ekki alltaf hlutverkum okkar á sviði lífsins. RABBIÐ Enga feimni Eyrún Magnúsdóttir Jamaíkumaðurinn Usain Bolt er ekki kallaður „Eldingin“ að ósekju. Hann hefur margsýnt fram á það að hann er fótfráasti maður í heimi, nú síðast á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum á dögunum. Þess utan merkir nafn hans, Bolt, elding á enskri tungu. Það að raunveruleg elding skyldi birtast á himni laust eftir að Bolt rann sitt skeið í Moskvu er stórmerkileg tilviljun – og ekki síður að Olivier Morin ljósmyndara AFP-fréttastofunnar skyldi ná þeim báðum á sömu mynd, það er eldingunum. Morin viðurkennir að hann hafi gælt við þennan möguleika fyrir hlaupið enda hafi himinninn yfir leikvang- inum verið búinn að belgja sig í um tuttugu mínútur á undan. Hann trúði þó ekki sínum eigin augum þegar þetta raunverulega gerðist. „Einstakt augnablik á 25 ára ferli,“ sagði hann, „enda þótt ég reyndi að endurtaka leikinn næstu 50 árin eru líkurnar hverfandi. Þetta var hrein heppni.“ AUGNABLIKIÐ AFP TVÖFÖLD ELDING USAIN BOLT VAR EKKI FYRR KOMINN Í MARK SEM ÖRUGGUR SIGURVEGARI Í 100 METRA HLAUPI KARLA Á HEIMS- MEISTARAMÓTINU Í FRJÁLSUM ÍÞRÓTTUM Í MOSKVU EN ELDING BIRTIST Á HIMNI. ÞAÐ ÞÓTTI VIÐ HÆFI. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? KÍTÓN, nýstofnað félag ís- lenskra kvenna í tónlist, heldur tónleika. Hvar? Viðeyjarstofu, Viðey. Hvenær? Sunnudag 18. ágúst kl. 16.00. Nánar: Miðaverð 2.700 kr. Sigling er innifalin. Tónhvörf í Viðey Hvað? Tónleikar með David Byrne og St. Vincent. Hvar? Háskólabíó. Hvenær? Sunnudag 18. ágúst kl. 20.00 Nánar: Parið spilar aðeins á völdum tónleikastöðum í Evrópu. Eyrnakonfekt Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Tónleikar til heiðurs Arvo Pärt. Hvar? Hallgríms- kirkja. Hvenær? Sunnudag 18. ágúst kl. 20.00. Nánar: Tónleikarnir eru helgaðir eistneska tónskáldinu Arvo Pärt en efnisskráin spannar stóran hluta höfundarferils hans. Eistneskir tónar Hvað? Tónleikar á Jazzhátíð Reykjavíkur, Dave Brubeck-In Me- moriam. Hvar? Fríkirkjan í Reykjavík. Hvenær? Sunnudag 18. ágúst kl. 20.00. Nánar: Miðar fást á midi.is og kosta 2.000. Djass í Fríkirkjunni Hvað? Fatamarkaður Ungmennaráðs UN Women. Hvar? Kaffibarnum. Hvenær? Laugardag- inn 17. ágúst frá 15-18. Nánar: Ungmennaráðið ætlar að safna pening fyrir starfið og vekja athygli á UN Women. Hægt er að gefa fötin sín til ráðsins sem verður með bás á staðnum eða borga 1000 krónur fyrir eigin bás. Selja föt fyrir málstaðinn Hvað? Borgunarbikarinn Hvar? Á Laugardalsvelli Hvenær? Laugardag 17. ágúst kl. 16.00 Nánar: Fram og Stjarnan í úrslitaleik í bikarkeppni karla í knattspyrnu. Úrslitaleikur * Forsíðumyndina tók Árni Sæberg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.