Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Síða 9

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Síða 9
18.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9 Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Borðplötur í öllum stærðum og gerðum • Swanstone • Avonite • Harðplast • Límtré Smíðað eftir máli og þínum óskum Washington Post fjallaði í vikunni um ritverk sem gerist á Íslandi en lítið hefur farið fyrir í umfjöllun hérlendis. Það er breskur verð- launarithöfundur, Sarah Moss, sem skrifar bókina, en hún kom út á síðasta ári vestanhafs. Bókin fær prýðisdóma á vefmiðli dagblaðsins í vikunni. Titill verksins er Names for the Sea: Stran- gers in Iceland og byggir Moss frásögnina á Íslandsdvöl sinni árin 2009-2010 en þá ákvað hún að flytja hingað til lands ásamt fjölskyld- unni. Gagnrýnandi Washington post segir frásögn rithöfundarins veita góða innsýn í hvernig það var að búa á Íslandi á þeim tíma, sem hafi greinilega ekki verið auðvelt í ljósi efnahags- kreppunnar. Áhugasömum er bent á að hægt er að nálgast bókina á Amazon.com en í gær, föstudag, voru einungis sjö eintak þar eftir í augnablikinu. Þá má nefna að Moss hefur einnig skrifað bækurnar Night Waking og Cold Earth en sú síðarnefnda fjallar um dvöl hennar á Grænlandi fyrir nokkrum árum. Bók um Íslandsdvöl Sjónvarpsþáttur vefsíðunnar fótbolti.net er sendur út á föstudögum bæði á rás 17 á af- ruglurum og á heimasíðu þeirra, fótbolti.net. Hefur Sólmundur Hólm stýrt þættinum með góðum gestum og er þátturinn mjög lifandi. Sólmundur er með puttann á púlsinum á sam- félagsmiðlinum Twitter sem segja má að sé aukagestur í þættinum. Hlustar á og tekur eftir hvað notendur eru að segja um þáttinn. Eitthvað var tæknin að stríða Sólmundi og fé- lögum í síðasta þætti því útsending á vefsíð- unni lá niðri og náðist aðeins þátturinn á af- ruglurum landsmanna. Umræður þáttarins snerust um enska bolt- ann og bikarúrslitaleikinn. Gestir að þessu sinni voru þeir Henry Birgir Gunnarsson og Sigurbjörn Hreiðarsson. Skyndilega öskraði Sólmundur með sinni þrumandi röddu. „Er ekkert hljóð á okkur á rás 17,“ þannig að gestir þáttarins hrukku við og settu upp undrunarsvip. Kom í ljós að einn notandinn á Twitter hafði kvartað undan hljóðleysi og tók Sól- mundur athugasemdina alvarlega með til- heyrandi látum. Hann hljóp víst aðeins á sig því notandinn áttaði sig síðar á að það var ekkert að hljóðinu í útsendingunni, viðkom- andi hafði bara verið með sjónvarpið sitt án hljóðs. Hljóð á rás 17 Sólmundur Hólm lét í sér heyra í beinni útsend- ingu á fótbolti.net. Morgunblaðið/Ómar Komandi sunnudag verðurstofnfundur ungmenna-félags Pírata haldinn í Stúdentakjallaranum. Stefán Vign- ir Skarphéðinsson situr í und- irbúningshóp að stofnun félagsins. „Meðalaldur flokksins er um 34 ár og því gætu tæp 69% flokks- ins einnig setið í unghreyfingu, sem er kannski ekki gáfulegt. Við ákváðum að setja mörkin við 30 ár, sem lækkar mögulegan fjölda niður í 42%,“ segir Stefán. „Með því að lækka meðalaldurinn sem hefur verið kallað eftir, erum við að setja ákveðið fordæmi.“ Píratar eru upprunalega frá Svíþjóð en fyrr í mánuðinum fóru fjórir einstaklingar frá Pírötum hér á landi á ráðstefnu þar sem Evrópusamtök ungra Pírata voru stofnuð, Young Pirates of Eu- rope. Ungu Píratarnir hefðu vilj- að taka þátt í samtökunum en fyrst þarf að stofna formleg ung- mennasamtök hér á landi. Píratar virðast því vera víða. „Píratar eru gríðarlega stórir í Svíþjóð en hafa þó ekki komist á þjóðþing þar ennþá, enda er tölu- vert hærri þröskuldur þar. Hins vegar eru þeir á ríkisþingum í Þýskalandi og Píratar náðu inn í öldungadeild á tékkneska þinginu. Við erum þó einu Píratarnir sem hafa náð inn á þjóðþing og er því mikið litið upp til okkar.“ Starfa vel saman Stefán segir að ávallt hafi hugs- unin verið að Píratar myndu festa sig í sessi sem stjórn- málaflokkur. „Það var alltaf hugs- unin frá því að við stofnuðum Pí- rata á sínum tíma að þetta yrði alvöru stjórnmálaflokkur. Það er alveg að sýna sig og sanna núna,“ segir hann en Píratar vilja fara óhefðbundnar leiðir hvað varðar uppbyggingu á stjórn- málaflokki. „Við ætluðum aldrei að fara þessa hefðbundnu leið að flokksuppbyggingu með þann flata strúktúr sem er enn til staðar.“ Píratar voru stofnaðir á þessu ári og er því ungur stjórn- málaflokkur en að sögn Stefáns gengur flokksstarfið vel. „Mjög fá okkar hafa verið í stjórnmálum áður en við virkum vel saman sem heild.“ Áhersla á málefni unga fólksins Að sögn Stefáns mun ungmenna- félag Pírata leggja ríka áherslu á málefni ungs fólks. „Það sem ein- kennir þetta félag umfram önnur ungliðafélög er að við erum ekki að fara að álykta um þjóðmál. Félagið mun einblína á málefni ungs fólks og verður áhersla lögð á samstarf við aðrar ungliða- hreyfingar hér á landi og erlend- is. Reynsla þeirra sem hafa eitt- hvað starfað í ungliðahreyfingum og koma að þessari stofnun er sú að litlu er komið í verk ef ávallt er verið að álykta um þjóðmál.“ Öllum er frjálst að mæta á stofnfundinn en aðeins meðlimir Pírata hafa atkvæðarétt. Um er að ræða fyrsta aðildarfélag Pírata en fleiri koma til með að vera stofnuð. gunnthorunn@mbl.is UNGLIÐAHREYFING STOFNUÐ Stefán segir að stofnun ungmennahreyfingar sér aðeins byrjunin en fleiri aðildarfélög koma til með að vera stofnuð. Morgunblaðið/Styrmir Kári Píratar þenjast út PÍRATAR ERU VIÐ ÞAÐ AÐ STOFNA UNGMENNAFÉLAG SEM VERÐUR FYRSTA AÐILDARFÉLAG FLOKKSINS. TALS- MAÐUR SEGIR ÞETTA AÐEINS BYRJUN Á FREKARI STÆKKUN EN STEFNT ER AÐ ÞVÍ AÐ STOFNA FLEIRI FÉLÖG.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.