Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Síða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Síða 16
*Ljósmyndari Morgunblaðsins var á ferð um Lissabon og myndaði iðandi mannlíf borgarinnar »18Ferðalög og flakk Íslenski hópurinn vekur þvílíka lukku hér á Evrópumóti KFUM í Prag þar sem er umtalað hvað við séum hress og skemmtileg. Það er líka mikið talað um hvað við séum mörg, enda 104 þátttakendur frá Íslandi. Á fyrsta deginum lentum við í svakalegum stormi rétt eftir að við komum á mótssvæðið sem orsakaði það að allar samgöngur voru í lamasessi næstu klukkutímana og það tók okkur fimm ævintýraríka klukkutíma að komast heim á hostel. Við reyndum að taka þeim raunum létt og sungum og sprell- uðum eftir götunum sem vakti mismikla ánægju meðal Pragbúa. Mótssvæðið varð einnig illa úti í storminum og því þurfti að fresta hátíðinni um einn dag meðan tekið var til. Veðrið er búið að leika við okkur síðan og mótið búið að vera alveg frábært. Biðjum að heilsa heim, héðan úr 35 stiga hitanum. Tinna Rós Steinsdóttir. Íslenski hópurinn að syngja og dansa á sporvagnastöð í Prag. Blaut í gegn eftir storminn. Frá Evrópumóti KFUM Brot af þátttakendum mótsins. PÓSTKORT F RÁ PRAG K anada er víðfeðmt og líklega endist fáum ævin til að skoða það stórbrotna land. En fyrir þá sem vilja byrja er gott að vita af sérlega aðgengilegu vefsvæði sem ferðamálayfirvöld í Kanada halda úti og hægt er að skoða með því að slá inn slóðina www.cana- da.travel. Á vefnum er að finna gagnlegar upplýsingar sem nýtast ferðalöngum. Hvort sem ætlunin er að heimsækja Íslendingaslóðir í Gimli eða fara í borgarferð til Toronto eða Halifax, en til þeirra borga eru bein flug frá Keflavík, þá er hægt að kynna sér málið á vefnum. Þegar vefurinn er heimsóttur er gott að byrja á að velja „Explore Canada“ á hvítri valslá efst til vinstri á upphafssíðunni. Þá er notanda stýrt inn á afbragðsgóða leitarsíðu. Með aðstoð leitarsíðunnar er hægt að þrengja hringinn og finna út hvaða svæði heillar, hvers konar ferð á að fara í eða hvað er mest spennandi að gera í Kanada. Hægt er að leita eftir svæðum og sérstökum áhugasviðum. Til dæmis er hægt að velja að skoða aðeins hvað er í gangi í Nova Scotia, sé förinni heitið þangað. Vilji notandi leggja áherslu á að kynna sér menningarlíf á því svæði er hægt að velja flokkinn listir og menning, eða „arts and culture“ af lista vinstra megin á síðunni og fá upp hug- myndir að stöðum til að heimsækja og ferðum sem tengj- ast listum og menningu. Ef staðsetningin skiptir ekki öllu máli og notandinn hef- ur ákveðnar hugmyndir um hvers kyns upplifun leitað er eftir, t.d. ævintýraferðum, er hægt að velja þann flokk en merkja ekki við sérstaka staðsetningu. Þá koma upp hug- myndir að stöðum til að heimsækja og tillögur að útivist- ar- og ævintýraferðum í Kanada. Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki vegabréfsáritun til að ferðast til Kanada sé dvölin skemmri en 90 dagar. Flogið er allt árið til Toronto með Icelandair en beint flug til Halifax er aðeins frá 1. júní til 4. nóvember. Hægt er að finna flug til Kanada á vefnum dohop.com. Einn kanadískur dollar jafngildir 115 íslenskum krónum. UPPLIFÐU KANADA Á VEFNUM ÁÐUR EN HALDIÐ ER AF STAÐ TIL AÐ SKOÐA LANDIÐ Vafrað um víðáttur Kanada FERÐAMÁLARÁÐ KANADA LEGGUR MIKIÐ UPP ÚR ÞVÍ AÐ GERA UPPLÝSINGAR UM LAND OG ÞJÓÐ AÐGENGILEGAR FYRIR MÖGULEGA FERÐALANGA. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.