Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2013 Heilsa og hreyfing Á heildina litið er yfir- skrift helgarnámskeiða sem nú er boðið upp á að Sólheimum í Gríms- nesi. Lögð er rík áhersla á að sameina heilbrigði líkama og sálar með ljúffengum og hollum mat, hreyfingu, hugleiðslu og jóga ásamt fjölbreyttum fyrirlestrum um heilbrigði og næringu. Það eru þau Margrét Alice Birgisdóttir, NLP heilsumarkþjálfi, Gyða Dröfn Tryggvadóttir, lýð- heilsufræðingur og jógakennari, og Albert Eiríksson, matreiðslumaður og ástríðukokkur, sem standa að námskeiðunum. Þau koma úr ólík- um áttum en eiga það sameig- inlegt að hafa brennandi áhuga á heilbrigði í sinni stærstu mynd ásamt þeirri trú að hvert og eitt okkar geti lagt heilmargt af mörk- um til góðrar eða bættrar heilsu. Berum ábyrgð á eigin heilsu „Við teljum að þetta sé frábært tækifæri fyrir fólk til að staldra við og skoða með opnum huga stöðu þeirra þátta sem líf okkar allra byggir á. Með því að varpa ljósi á heildarmyndina og gildin í lífinu er auðveldara að horfa fram á veginn og láta drauma sína ræt- ast,“ segja þau og Margrét bætir við: „Þarna nýtist ólík menntun okkar, þekking og reynsla vel en við höfum öll öflug verkfæri í kistu okkar sem mynda sterka heild.“ „Við viljum horfa á heild- armyndina en með því skapast tækifæri til að ná sem mestu og bestu jafnvægi í lífinu. Sveiflurnar í lífsstíl okkar eru nefnilega oft og tíðum óþægilega miklar og alls ekki nóg að sinna bara einum þætti,“ segir Gyða. „Við þurfum að ná jafnvægi á milli þessara grunn- þátta og leiðin til þess er að vera besta útgáfan af okkur sjálfum. Þegar öllu er á botninn hvolft ber hvert og eitt okkar nefnilega ábyrgð á eigin heilsu.“ Fleira er matur en feitt kjöt Á Sólheimum verður boðið upp á hreint grænmetisfæði og mikið lagt upp úr að maturinn sé jafn fallegur og bragðgóður og hann er næringarríkur. „Líkamleg næring er eldsneytið sem drífur okkur áfram en matur hefur líka mikil áhrif á svo marga aðra þætti lífs okkar,“ segir Albert og heldur áfram: „Okkur er það hjartans mál að sannfæra þátttakendur um að matur getur verið einstaklega ljúffengur á sama tíma og hann er fullkomin næring í dagsins önn. Fleira er matur en feitt kjöt eins og sagt var,“ segir Albert og kím- ir. Setja sér markmið „Hver þátttakandi fer heim með tólf mánaða markmið,“ segir Mar- grét og bætir við: „Við erum markvisst að vinna að því á helg- unum góðu með því að draga styrkleikana fram í dagsljósið sem svo styðja við þær hliðar sem þurfa þess frekar með. Markmiðin eru mörg og misjöfn en eiga það oftast sameiginlegt að hafa verið lengi á teikniborðinu hjá hverjum og einum. Það sem þau áttu kannski sameiginlegt var að þau voru svo stór,“ segir Margrét. Fjárfesta í heilbrigði „Okkar markmið er að þátttak- endur fari heim endurnærðir á lík- ama og sál og tilbúnir til að halda áfram ferðalagi sínu á vit heilsu- samlegri hátta. Það er nefnilega ekki til betri fjárfesting en í eigin heilbrigði,“ segir Gyða og það seg- ir kannski allt sem segja þarf. „Stóri draumurinn okkar er að fá þjóðina með, hér á Íslandi er frábært grænmeti og ódýr orka til að rækta, hreint loft og hreint vatn,“ segja þau. Næstu námskeið verða í september og má fræðast meir um þau á fésbókarsíðunni „Á heildina litið“. SYNDSAMLEGA HOLL HELGI FYRIR LÍKAMA OG SÁL Líf í jafnvægi HEILSUSÉRFRÆÐINGAR AF ÝMSUM TOGA HAFA TEKIÐ HÖNDUM SAMAN OG HALDA NÚ HELGARNÁMSKEIÐ Á SÓLHEIMUM Í GRÍMSNESI. ÞAU LEGGJA ÁHERSLU Á HEILBRIGÐAN LÍFSSTÍL OG VILJA AÐ FÓLK SETJI SÉR MARKMIÐ Í LÍFINU. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Margrét Alice Birgisdóttir mark- þjálfi, Albert Eiríksson ástríðu- kokkur og Gyða Dröfn Tryggva- dóttir lýðheilsufræðingur, jógakennari og hugleiðslu- iðkandi, standa fyrir heilsu- helgum á Sólheimum. Gott er að vera úti í náttúrunni á Sólheimum. Lögð er áhersla á hollan og gómsætan mat. Haustið nálgast óðfluga og fara margir að huga betur að heilsunni. Grillmatur, bjór eða hvítvínsglas í sólinni fara að heyra sögunni til í bili og fríin taka enda. Margir uppgötva þá að fötin hafa þrengst örlítið um mittið. Þá er bara að bretta upp ermarnar og byrja að taka á sumarvömbinni. Hér eru sex ráð sem gætu reynst vel. 1Svefn er mjög mikilvægur ef þú ætl-ar að brenna kviðfitu og mælt er með að minnsta kosti sjö tíma svefni. Fólk á það til að borða meira ef það vakir of lengi og hormónin fara úr skorðum. 2 Farðu í „plankann“ í 30 sekúndur ísenn 3-4 sinnum á dag og vertu duglegur að standa upp og ganga um. 3 Borðaðu hollt og forðastu sykur.Stráðu smá kanil út í kaffið þitt á morgnana eða út á grautinn, það hjálp- ar til að halda blóðsykri réttum og minnkar hungurtilfinningu. 4 Borðaðu mat sem inniheldur C-vítamín, eins og kiwi, papriku og appelsínur. C-vítamín hjálpar líkamanum að breyta fitu í orku. 5 Borðaðu holla fitu sem finna má ímat eins og laxi, lárperum og val- hnetum. 6 Reyndu að hægja á önduninni.Dragðu andann djúpt og hugsaðu um að minnka stress. SEX GÓÐ RÁÐ Burt með bumbuna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.