Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Page 24
*Heimili og hönnunHjón í Hlíðunum ætluðu að endurnýja baðkarið en enduðu með að taka alla íbúðina í gegn »26
Mig langar í ...
... Í garðinn
Mig langar í stórt tré og rólu eða jafnvel
hengistólinn hennar Nönnu Ditzel. Hann er
örugglega jafn þægilegur og hann er fallegur.
... Í stofuna
Flaglinestolen eftir Wegner er draumamublan mín!
Ég geri mér ekki miklar vonir um að eignast hann en
í villtum draumi sit ég í honum og spekúlera.
Óska hér með eftir slíkum stól ef ein-
hver vill nauðsynlega losna við
hann.
... Í barnaherbergið
Mig langar í leikfimirimla inn til sonarins. Ég held að hann og vinir hans hefðu gaman af þeim
og svo ímynda ég mér að hinir í fjölskyldunni tækju þar léttar og skemmtilegar leikfimiæfingar
af og til.
... Í útópískri veröld
Heimsfriður og harmonía fyrir alla - eða hús eftir Sigvalda.
... Á baðherbergið
Þar vantar mig þang í gluggann eða Algue,
hönnun Bouroullec-bræðranna frá 2004.
Mér finnst þetta alltaf jafn fallegt og hef
átt svona lengi, mig langar bara í meira og
meira.
... Í eldhúsið
Nú er kominn tími á nýja eldhús-
innréttingu. Bráðabirgðabúggíið þar
er alveg að gera okkur gráhærð.
Vonandi vann ég í Lottóinu í gær.
ÓLÖF JAKOBÍNA ERNUDÓTTIR HÖNN-
UÐUR ER MIKIL SMEKKMANNESKJA.
ÓLÖF ER INNANHÚSSARKITEKT AÐ
MENNT OG STARFAR SEM STÍLISTI OG
BLAÐAMAÐUR Á TÍMARITINU GEST-
GJAFANUM OG VINNUR EINNIG AÐ
ÝMSUM HÖNNUNARVERKEFNUM, MEÐAL ANNARS POSTULÍNU SEM
ER SAMSTARFSVERKEFNI HENNAR OG GUÐBJARGAR KÁRADÓTTUR
EN ÞÆR HLUTU HÖNNUNARSTYRK AURORU FYRR Í SUMAR. ÓLÖF
HEFUR EINSTAKT AUGA FYRIR FALLEGUM MUNUM EN SUNNU-
DAGSBLAÐ MORGUNBLAÐSINS FÉKK AÐ HEYRA HVAÐ HANA
LANGAR Í INN Á HEIMILIÐ.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
... Í svefnherbergið
Ég væri til í ný rúmföt, maður á
aldrei nóg af fallegum rúmfötum.
Ég gæti t.d. alveg hugsað mér þessi
frá HAY, eins og svo margt annað
frá þeim framleiðanda.
... Í forstofuna
Ég var að kaupa mér fjóra Dropit
snaga frá Normann Copenhagen
en þeir eiga að fara upp við fyrsta
tækifæri. Mér finnast þetta
skemmtilegir snagar sem mætti
jafnvel nota sem veggskraut –
hálfgerð synd að fela þá með
yfirhöfnum.