Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Í leikhópnum Lottu leynast matgæðingar en hópurinn hefur verið á fleygiferð í allt sumar »32 S igurbjörn segist hafa sérlega gaman af því að elda saltfisk. „Ég nota jafnan fisk frá Elvari vini mínum í Ektafiski, úrvalshráefni, og þessi réttur er í raun sáraeinfaldur.“ Hann segir eitt hnakkastykki, um það bil 180 grömm, passlegt fyrir hvern og einn. „Ég hita ólífuolíu á pönnu ásamt ferskum chili-pipar og ferskum hvítlauk, strái svo- litlum hvítlaukspipar á fiskinn, báðum megin, og bregð honum á pönnuna í stutta stund til að fá smá húð á báðar hliðar. Legg svo fiskinn til hliðar og útbý sósu úr ýmiskon- ar rótargrænmeti. Það getur í raun verið hvað sem er, eft- ir efnahag og smekk, en í þetta skipti notaði ég gulrófur, gulrætur, kartöflu, grasker – sem er sérstaklega gott með fiskinum – rauðlauk og blaðlauk. Skar þetta allt í litla bita, ca 3 mm á kant; það er kallað brunoise á fagmáli.“ Grænmetið er steikt á pönnu, kryddað með salti, pipar og hvítlaukspipar. „Út í það set ég töluvert af Teryaki sósu og engifersósu [e. ginger glace], slettu af sojasósu og sætri chili-sósu. Magnið fer bara eftir smekk, en grænmet- ið þarf að geta flotið, því þetta er sósan með fiskinum. Ég leyfi grænmetinu að malla á pönnunni góða stund.“ Sigurbjörn notar heilt, ferskt fennel með fiskinum. Tekur innan úr því rótina og sker í fernt og ber einn bita fram á hverjum diski (sjá stóru myndina). Hann bakar fennelið og konfekttómata í 25 mín. í ofni við 180 gráðu hita, en lækk- ar hitann í 140 gráður síðustu 7 til 9 mínúturnar og setur þá fiskinn í ofninn. Sá tími fer eftir þykkt stykkjanna. „Áður en ég set fiskinn í ofninn helli ég ofan á hvítlauks- og rósmarín dressingu frá Maxi, sem gefur mjög gott bragð.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson MATGÆÐINGUR Á AKUREYRI Saltfiskur í uppáhaldi SIGURBJÖRN SVEINSSON Á AKUREYRI ER LÆRÐUR ÞJÓNN OG HEFUR LENGI STARFAÐ Í VEITINGABRANSANUM. HANN BÝÐUR UPP Á EINFALDAN EN MJÖG GÓÐAN SALTFISKRÉTT. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Sigurbjörn útbýr grænmetissósuna á stórri pönnu. Sigurbjörn Sveinsson var árum saman einn eigenda veitingahússins Greifans á Akureyri og starfaði þar. Að þeim kafla loknum var hann í hópi manna sem eignuðust KEA- hótelin og var hótelstjóri flagg- skipsins, hótels KEA á Akureyri, þar til fyrir nokkrum misserum að flestir seldu sinn hlut. Nú starfar Sigurbjörn hjá Ásbyrgi Flóru. „Ég er lærður þjónn og var lengi í veitingabransanum,“ segir hann við Sunnudagsblað Morgunblaðsins. Áhugi á mat og matreiðslu hefur fylgt Sigurbirni lengi og hann segist ekki síst hafa gaman af því að elda fisk, sérstaklega saltfisk. „Hann er frábært hráefni og mér finnst best að drekka með honum gott, spænskt rauðvín.“ Þegar Morgun- blaðið hitti Sigurbjörn var hann með nokkrum vinum. „Ég get ekki neitað því að það kemur fyrir að ég er beðinn um að elda í góðra vina hópi; að minnsta kosti að vera með í því að elda,“ sagði hann. Gjarnan fenginn til að elda í góðra vina hópi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.