Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Side 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2013 B orgarastyrjöld geisar í Sýrlandi. Líb- anon er sundurtætt. Hugrakkur kóngur heldur Jórdaníu á floti enn sem komið er. Friður á milli Ísrael og Palestínu er jafnfjarlægur og endranær. Sumri hallar eftir vor í Túnis. Afganistan verður brátt skilað aftur til talíb- ananna og þeir sem þar dreyptu á dropum frelsis og nútíma lífs, ekki síst konur, horfa framan í ógn og skelfingu. Pakistan, sem hélt verndarhendi yfir Osama bin Laden í rúman áratug, er kraumandi pottur og innhald hans er ekki kræsilegt. Þar og í endurnýjuðu ríki talíbana handan landamæranna hefst framleiðsla hermdarverkamanna brátt á ný. Klerkar stjórna enn Íran og mjakast landið hægt en örugglega í átt til kjarnorkusprengjunnar og þess oflætis og sjálfstrausts sem henni fylgja, þrátt fyrir efnahagsþvinganir og brotthvarf Ahmadinejad af forsetastóli. Og bílsprengjur farga óbreyttum borg- urum í Írak enn sem fyrr. Og svo er það Nílarland Enn brenna eldarnir í Egyptalandi, þremur árum eftir fall Mubaraks. Sjálfskipuð samviska heimsins, Bandaríkin, sem tóku sér það hlutverk vegna þess að enginn annar reis undir því, er sögð hafa lokað alþjóðlegu neyðar- og næturvaktinni með kjöri Obama sem forseta. Fullyrt er að forsetinn hafi beðið Mubarak að stíga til hliðar er mótmæli fóru vaxandi og þegar hann tók ekki þeim tilmælum hafi egypski herinn fengið skýr skilaboð úr Hvíta hús- inu. Það leysti ekkert. Herinn ákvað að gera lýð- ræðislega tilraun um leið og réttað væri yfir Mub- arak herbróður á sjúkrabörunum. En lýðræðisstiklingar þurfa frjóan jarðveg til að skjóta rótum. Eina aflið sem tilbúið var í þessa lýðræð- istilraun á þessu augnabliki var Bræðralag músl- íma. Það var óneitanlega sérstætt því lýðræð- isskipan er ekki keppikefli eða endamark þeirrar hreyfingar. Lítill vafi er á að Morsi hafi verið rétti- lega kjörinn fyrsti lýðræðislegi forseti Egyptalands. En málinu lauk ekki þar. Stjórnkerfi, sem byggist á lýðræði, var ekki til staðar og sú agaða stjórnskipun með aðhaldsstofnanir, sem lýðræðislega kjörnir valdamenn búa við annars staðar, var ekki fyrir hendi. Morsi forseti hóf að breyta stjórnarskránni á átt að stefnumiðum Bræðralags múslíma. Þegar honum óx ásmegin gaf hann út tilskipun um að óheimilt væri að andæfa sjónarmiðum forsetans og steig síð- an fleiri skref í þá veru. Þeir, sem höfðu bundið við það vonir að lýðræðisleg glufa væri að opnast í Egyptalandi, sáu að nú stefndi óðfluga í illt efni. Og þótt það væri beiskur biti að kyngja, þá blasti við, að herinn einn var fær um að grípa í taumana. Og þótt ráðamenn, jafnt í Bandaríkjunum sem Evrópu, væru hættir að standa vaktina og komnir í alþjóð- legan frígír önduðu þeir léttara á golfvöllunum, þeg- ar aftur tók að glitta í herinn í Kaíró. Vissu þeir ekki betur? En pólitískt óraunsæi einkenndi því miður alla þeirra afstöðu. Engu var líkara en þessir valdamenn hafi trúað því, að Bræðralag múslíma, sem var búið að koma sér fyrir í sjálfri forsetahöllinni í Kaíró og það með eins lögmætum hætti og skilyrði voru til, myndu hverfa frá nýfengnum völdum vandræða- laust. Áskoranir voru birtar í helstu höfuðborgum þar sem skorað var á deiluaðila að setjast niður og finna lausn. Bræðralag múslíma sagðist aðeins sætta sig við eina lausn. Hún væri sú að Morsi yrði skilað aft- Her kann á byssudót og dreka en ræður ekki endilega við framhaldið Reykjavíkurbréf 16.08.13

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.