Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Qupperneq 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2013 Þ að er ekkert grín að standa fyrir framan Vinnie Jones. Augnaráðið og líkamstjáning hans er öll þannig að manni finnst maður vera í návist mafíuforingja sem er við það að fara að drepa einhvern. Enda þegar hann kveikti sér í sígarettu, andar inn og segir „Ok, let’s go,“ þá varð vandræðaleg þögn. Þögn sem engan endi ætlaði að taka. Undirritaður fraus á staðnum og kom ekki upp einu einasta orði. Svo við byrjuðum bara á; „How do you like Iceland?“ Maður sá að Vinnie var ekki hrifinn en eftir stutt andvarp fór hann allur á flug – sem betur fer. „Þegar ég fór hingað í Vík frá Reykjavík varð ég strax heillaður af landinu, þetta eru ótrúleg fegurð. Þegar framleiðendurnir sögðu mér að þetta væri þriggja klukkustunda akstur varð ég ekki beint hrifinn því ég fór frá Los Angeles til New York og þaðan til Íslands til að sitja í bíl í þrjá tíma. Ég hugs- aði margt og sagði margt sem er ábyggilega ekki prenthæft á Íslandi en þegar bíllinn fór af stað varð ég strax heillaður. Sat dáleiddur í þessa þrjá tíma og horfði bara út um gluggann.“ Jones hefur gífurlegan áhuga á laxveiði og golfi. Ætlar að nýta frídagana sína um helgina í veiði og þá hefur hann spilað golf- völlinn í Vík í Mýrdal. Skammt frá þar sem kvikmyndin sem hann leikur í er tekin upp. Hann segist vera með 10 í forgjöf. Engin ástæða er til að rengja það. Starfsliðið alltaf áhugasamt um hvað ég hef fram að færa Kvikmyndin sem um ræðir, Calculator, er rússnesk framtíðarmynd og leika Evgeniy Mironov og Anya Chipovskaya á móti honum í myndinni sem telst frekar lítil í sniðum mið- að við Hollywood. Mironov þessi er frægur í Rússlandi og hann er kallaður Tom Cruise þeirra Rússa. „Hann er frábær og mjög góður leikari. Það eru tvær hliðar á þessari mynd, hann hefur sína hlið og ég hef mína. Við mætumst svo og saga okkar tengist. Ég byrjaði í litlu óháðu kvikmyndunum. Ég er þolinmóður og ég skil að það þurfi að breyta og laga og aðlagast í hverri senu. Leikstjórinn og starfsliðið er að læra og ger- ir það af mér. Ég hef unnið í Ungverjalandi, Rússlandi og Kasakstan og starfsliðið er allt- af áhugasamt um hvað ég hef fram að færa.“ Jones hefur leikið í fjölda mynda, hann birtist heiminum fyrst á hvíta tjaldinu í mynd Guy Ritchie, Lock, Stock and Two Smoking Barrels, og fylgdu fjölmargar gæðamyndir í kjölfarið þar sem hann leikur yfirleitt sama karakterinn. Harðhaus sem er með mottóið, kýla berja, slá og farðu svo frá. Snatch, Gone in 60 Seconds, Mean Machine, X-Men: The Last Stand og Swordfish gerðu Vinnie Jones svo að stórstjörnu í Hollywood. Hann segir að allt hreyfist hraðar í litlu óháðu mynd- unum á meðan allt gerist á hraða snigilsins í stóru Hollywood-myndunum. „Leikaraliðið er alltaf mun minna þannig að fólki er ekki sama um útkomuna. Þegar ég gerði X-men sat ég stundum í hjólhýsinu mínu í marga klukkutíma án þess að gera neitt. Samt var ég búinn í förðun, búinn að fara í búninginn og sat svo bara í hjólhýsinu og beið. Stundum liðu dagarnir þannig. Maður verður pínu týndur í þessum myndum. Nema þú sért við toppinn eða aðal- leikarinn. Annars er maður bara eitthvert númer. Maður fær sínar senur og reynir bara að stela þeim ef maður getur. Reynir að láta taka eftir sér. En yfirleitt snýst þetta allt um stóru strákana og stelpurnar. Þegar ég gerði Swordfish þá tók ekki lang- an tíma að fatta að það snérist allt um Halle Berry, John Travolta og Hugh Jackman. Restin var bara partur af liðinu. Ég nýt þess meira að gera svona myndir eins og ég er að gera núna frekar en eitthvað risaverkefni frá Hollywood. Óháð kvikmyndagerð er eins og Wimbeldon, Hollywood er eins og Manchest- er United. Maður getur orðið týndur. Maður verður persónulegri við starfsliðið, þekkir alla í kringum myndina og þetta verður eins og liðsheild.“ 12 rauð spjöld á ferlinum Margir kannast við Vinnie Jones sem harð- jaxl úr fótboltanum. Hann var samt ekki bara harðjaxl. Hann var eiginlega bara gróf- ur og nánast hættulegur öðrum leikmönnum. Hann var rekinn út af í ensku deildinni 12 sinnum en átti trúlega að fá fleiri rauð á sín- um ferli. Einu sinni fékk hann gult spjald eft- ir þrjár sekúndur. „Ég hef trúlega verið eitt- hvað yfirspenntur því varla var ég of seinn. Það voru bara þrjár sekúndur liðnar.“ Vinnie Jones lék lengst af með Wimbeldon á sínum ferli. Stoppaði stutt hjá Leeds, Chelsea, Sheffield United og QPR. Hann var hluti af hinu fræga gengi, „The Crazy gang,“ sem saman stóð af Dennis Wise, John Fas- hanu, Vinnie og Lawrie Sanchez. Þeir spiluðu svokallaða leið eitt upp völlinn og báru ekki virðingu fyrir neinum. Jones var alltaf harðjaxlinn inni á vellinum og hikaði aldrei þegar þurfti að fara í tækl- ingu. Hann varð fyrst frægur fyrir ljósmynd sem birtist af honum þegar hann greip um hið allra heilagasta á Paul Gascoigne sem þá lék með Newcastle. Þar virtist hann kreista af öllum lífs og sálar kröftum þannig Gasco- igne engdist um. Flestir muna eftir honum sem harðjaxli úr boltanum en því ber að halda til haga að Wimbeldon með Vinnie Jones innan borðs vann FA-bikarinn eftir frækinn sigur á Liv- erpool. Er það eini titill Vinnie Jones á ferl- inum. Nútímafótboltamenn eru rokkstjörnur Fótboltamenn nútímans eru langt frá Vinnie Jones. Nú til dags þykir flott að fiska og þykjast vera meiddur. Hann er ekki alveg tilbúinn að segja sína skoðun á nútímafót- boltamanninum sem greiðir sér, er með tattú og band í hárinu og spilar í bleikum, bláum eða grænum skóm. Slíkt gæti komið honum í vandræði og því nennir hann ekki. En hann fékkst þó til að segja smá. „Það var ekki jafn mikið fylgst með leikmönnum í gamla daga. Núna eru leikmenn nánast eins og rokk- stjörnur – þeir eru ekki fótboltamenn. Þeir geta ekki fært sig eitt um eitt skref þá er kominn ljósmyndari eða blaðamaður í andlitið á þeim. En skipulagið í kringum liðin er betra en það var og þetta er orðið miklu fag- legra sem er betra. Þetta var allt að koma þegar ég hætti í kringum aldamótin. Erlendu leikmennirnir voru að koma inn hjá Chelsea og ég held að dagarnir þar sem menn spiluðu leik og fóru svo út í góðan drykk um kvöldið séu liðnir.“ Fótboltafréttir í sumar hafa verið litaðar af þremur mönnum. Luis Suarez, Gareth Bale og Wayne Rooney. Allir vilja eða vildu kom- ast burt frá sínum félögum en Vinnie segir að grasið sé ekki alltaf grænna hinum megin. „Ég var í Ástralíu um daginn og sá leik Liv- erpool við Melborne. Ég er andlit Warrior sem sér Liverpool fyrir búningum. Suarez kom inn á og ég sá að hausinn var ekki rétt skrúfaður á. Hann var langt frá því þar sem hann vildi vera. Rooney virðist vera að upplifa það sama. Ég sá í fréttum um daginn að Moyes sagði að hann væri ekki til sölu. Ég hef gengið í gegnum þetta sem fótboltamaður. Ég var þá hjá Wimbeldon og hafði spilað vel. Birm- ingham vildi kaupa mig og allt svona tal, þetta ruglar mann í ríminu. Það gerir það. Ég vildi fara, fleiri áhorfendur, meiri pen- ingur og ég endaði eins og þeir. Að æfa einn, lenti upp á kant við stjórann og í rúmar sex vikur var hausinn ekki í lagi. En svo sá ég þetta var ekki til neins, náði fókus sturtaði Hollywood er eins og Manchester United EINN HELSTI FAUTI ENSKU KNATTSPYRNUNNAR, HARÐHAUSINN VINNIE JONES, HORFIR NÚ MEIRA Á GOLF EN FÓTBOLTA. HANN VILL FREKAR LEIKA Í LITLUM, ÓHÁÐUM MYNDUM SEM MINNA HANN Á GAMLA LIÐIÐ HANS, WIMBLEDON, EN STÓRUM HOLLYWOOD-MYNDUM SEM HANN LÍKIR VIÐ STÓRLIÐIÐ MANCHESTER UNITED. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Vinnie skartaði þessum forláta Íslandsgrifflum á settinu. Viðtal
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.