Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Qupperneq 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2013 Kirkjulistahátíð var sett í gær með hátíð- ardagskrá í Hallgrímskirkju og stendur til 25. ágúst undir yfirskriftinni Frá uppsprettum til himindjúpa. Á hátíðinni verður boðið upp á átta tón- leika, myndlistarsýningu, listasmiðju barnanna, fyrirlestur og hátíðlegt helgihald. Um 400 listamenn koma fram, búist er við að alls 4000 manns muni sækja dagskrá há- tíðarinnar í þá tíu daga sem hún stendur. Þetta er í þrettánda sinn sem Kirkjulistahá- tíðin er haldin, en segja má að hún sé dótt- urfyrirtæki Listvinafélags Hallgrímskirkju. UPPSPRETTUR OG HIMINDJÚP KIRKJULISTAHÁTÍÐ Hörður Áskelsson er listrænn stjórnandi. Morgunblaðið/Golli Janne Laine, til vinstri, og Stefán Boulter. Sýning á verkum listamannanna Janne Laine og Stefáns Boulter verður opnuð í Listasafn- inu á Akureyri í dag, laugardag, kl. 15. Báðir eru fæddir 1970. Stefán hefur verið virkur þátttakandi innan hinnar svonefndu Kitsch- hreyfingar, bæði sem einn af boðberum hennar og sterkur áhrifavaldur. Heimspeki listlíkisins (kitsch) hefur haft að leiðarljósi að skapa hugmyndafræðilegan grundvöll sem leggur m.a. áherslu á vandað handverk með aðferðum gömlu meistaranna, húmanísk við- horf, hluthyggju og fegurð hins ljóðræna. Laine fæst við náttúruna og nálgast hana með hefðbundnum og nútímalegum hætti í senn. LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI TVEIR Á AKUREYRI Næst síðasti viðburður tónlistarhátíðarinnar Engl- ar og menn fer fram á morgun, sunnudag kl. 13 í Strandarkirkju í Selvogi. Meðal þeirra sem stíga á stokk á morgun er Hulda Jónsdóttir, 21 árs fiðluleik- ari. Hún lauk diplómanámi frá Listaháskóla Íslands vorið 2009 og lauk B. Mus. gráðu í Julliard tónlistarháskólanum í New York síðastliðið vor. Í haust heldur hún í mastersnám í sama skóla. Björg Þórhallsdóttir, sópransöngkona, er listrænn stjórnandi og framkvæmdarstjóri hátíðarinnar. Hún segir hátíðina hafa fallið vel í kramið og ávallt sé fullt út úr dyrum. Upp- skerumessa hefst í kirkjunni kl. 14 þar sem séra Svavar Stefánsson, sóknarprestur í Fella- og Hólakirkju þjónar, kór Þorlákskirkju syngur og organisti er Hannes Baldursson. Hulda mun flytja tónlist frá kl. 13.40 til 14 ásamt því að flytja tónlistaratriði í messunni. Með henni koma einnig fram Gyða Halldórs- dóttir á orgel og Ragnar Jónsson á selló. STRANDAKIRKJA VINSÆL HÁTÍÐ Hulda Jónsdóttir Á málþinginu verður sjónum beint að þætti kennslu og hóp-starfs í listsköpun Magnúsar Pálssonar, og velt upp skörunþessara tveggja greina. Lagt er upp með að erindi fræði- og listamanna opni umræðuna fyrir ólíkum sjónarhornum á þennan lið í listsköpun Magnúsar. Samkoman stendur frá kl. 13 til 16 í dag, laugardag. Í Hafnarhús- inu stendur nú yfir sýningin Magnús Pálsson: Lúðurhljómur í skó- kassa, og boðar Listasafn Reykjavíkur til málþingsins í tengslum við hana. Þingið fer fram á íslensku og er öllum opið. Flutt verða fram- söguerindi og síðan fara fram pallborðsumræður. Þátttakendur eru Baldvina Sigrún Sverrisdóttir, Gunnar J. Árnason, Hulda Há- konardóttir, Ingvar Högni Ragnarsson, Kristján Steingrímur Jóns- son, Jón Proppé og Hanna Styrmisdóttir, sem stjórnar málþinginu og er sýningarstjóri ásamt Jóni. Magnús hóf að kenna við Myndlistar- og handíðaskólann 1975 og kom á fót Nýlistadeild með aðstoð Hildar Hákonardóttur sem þá var skólastjóri. Í deildinni var sett upp metnaðarfull námsskrá, þó Magn- ús væri fyrst um sinn eini kennarinn; þar kynntust nemendur helstu nýjungum í listinni: Bókagerð, vídeólist, gjörningum og hugmyndal- ist. Magnús stýrði deildinni til 1984 en úr henni útskrifaðist stór hóp- ur listamanna sem hafa látið mikið að sér kveða síðustu áratugi. Næstu ár kenndi Magnús við ýmsa listaháskóla jafnframt því að starfa að eigin listsköpun. Á sama tíma fór hann að semja ýmiss kon- ar gjörninga og endurnýja kynni sín af leikhúsinu. Verk af þessu tagi hafa verið gildasti þátturinn í listsköpun Magnúsar síðan og má sjá nokkur þeirra á sýningunni sem nú stendur yfir í Hafnarhúsi. Við samningu gjörninga sinna notar Magnús ýmsar aðferðir og má rekja sumt til leikhússstarfa en margt kann frekar að tengjast reynslu hans af kennslu og hópstarfi. LÚÐURHLJÓMUR Í SKÓKASSA Málþing um Magnús Magnús Pálsson myndlistarmaður á heimili sínu við Þingholtsstræti. Morgunblaðið/Einar Falur MAGNÚS PÁLSSON VERÐUR Í BRENNIDEPLI Á MÁL- ÞINGI Í HAFNARHÚSINU Í DAG, LAUGARDAG. Menning F riðrik Karlsson er einn þeirra sem koma fram á Jazzhátíð Reykja- víkur sem hófst á fimmtudaginn og lýkur 22. ágúst. Hljómsveit Friðriks heldur tónleika í kvöld, laugardagskvöld, í Silfurbergi í Hörpu og eru það fyrstu tónleikar hans hér á landi í sautján ár. Spurður hvað fékk hann til að taka þátt í hátíðinni segir Friðrik: „Ég hef búið í Bretlandi síðastliðin sautján ár en hef samt alltaf verið með annan fótinn á Íslandi. Á þeim tíma hef ég ekki haldið neina tónleika hérlendis undir eigin nafni og datt því í hug að það væri góð hugmynd að gera þetta núna. Ég setti því saman hljómsveit og tel þetta vera tilvalið tækifæri til að koma fram á skemmtilegri hátíð. Það er til svo mikið af frábæru tónlistarfólki á Íslandi svo þetta verður örugglega mjög gaman,“ segir hann. Unnið með stórum nöfnum Friðrik hefur löngum verið kenndur við hljómsveitina Mezzoforte en hefur síðustu ár starfað í Bretlandi sem gítarleikari, upp- tökustjóri og útgefandi. Friðrik hefur unnið með fólki eins og Madonnu, José Carreras og Ronan Keating svo eitthvað sé nefnt, ásamt því að vinna að stofnun útgáfufélags í Bretlandi. „Ég er búinn að vera að vinna í Bretlandi sem hljóðversgítarleikari og mikið í raunveruleikasjónvarpsþáttum eins og X-Factor. Svo hef ég gert sólóplötur í Bretlandi sem ekki hafa verið gefnar út á Íslandi. Í Bretlandi er útvarpsstöð starf- rækt sem heitir UK Jazz Fm radio og er mjög vinsæl. Lögin mín hafa mikið verið í spilun þar og því er gaman að geta notað það efni hér á landi,“ segir Friðrik en á tónleikunum mun hann flytja efni af fyrri sólóplötum ásamt nýju efni með eigin hljómsveit. Spilar með gömlum félögum Hljómsveitin sem kemur fram með Friðriki um helgina mun spila tónlist í svipuðum stíl og Mezzoforte er þekkt fyrir, þ.e. blöndu af djass, rokki og fönki. Hljómsveitin sam- anstendur af Róberti Þórólfssyni á bassa, Pétri Grétarssyni á slagverk, Sigfúsi Ótt- arssyni á trommur og Þóri Úlfarssyni á hljómborð. „Við erum búnir að vera að æfa saman undanfarið og þótt mjög gaman. Þetta eru gamlir félagar og við höfum þekkst í langan tíma. Mér þótti þeir henta vel í verkið og þetta hefur bara komið mjög vel út,“ segir Friðrik. Ferðaðist um alla Ástralíu Friðrik lauk nýverið hljómleikaferðalagi um Ástralíu með enskri uppfærslu af Jesus Christ Superstar sem fékk frábærar við- tökur en Friðrik hefur á síðustu árum ver- ið nokkurs konar hirð-gítarleikari Andrews Lloyds Webbers og Nigels Wrights sem starfar sem tónlistarstjóri Andrews og Sim- ons Cowells. Sýningin var sett upp í öllum helstu borgum Ástralíu. „Það var uppselt á JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR Fyrstu tón- leikarnir í sautján ár TÓNLISTARMAÐURINN FRIÐRIK KARLSSON KEMUR FRAM Á JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR AÐ ÞESSU SINNI. HANN HEFUR BÚIÐ OG STARFAÐ Í LONDON Í 17 ÁR, UNNIÐ ÞAR MEÐ MÖRGUM HEIMSFRÆGUM LISTA- MÖNNUM EN BÍÐUR SPENNTUR EFTIR AÐ STÍGA Á SVIÐ HÉR HEIMA. Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.