Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Side 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Side 56
Kápumyndin er af Þóri, móðurbróður höf- undar, sem drukknaði átta ára gamall. Sérðu harm minn, sumarnótt? er nýbók eftir Bjarka Bjarnason sem lýsirefni hennar með þessum orðum: „Sagan gerist á Austurlandi, einkum á Norðfirði, á fyrri hluta 20. aldar. Afi minn og amma voru þaðan og móðir mín ólst þar upp. Þetta er saga þeirra og þess sam- félags sem þau lifðu og hrærðust í. Það var gamla bændasamfélagið sem nú er liðið undir lok. Tækniframfarir urðu örar á þessu tímaskeiði, til að mynda kom raf- magn, sími, bílar og dráttarvélar til sög- unnar og ég tengi þessar breytingar við sögu ættingja minna.“ Hvar leitaðir þú heimilda? „Mjög víða; meðal annars komst ég í dagbækur afa míns. Þær fönguðu athygli mína, bæði það sem hann skrifaði og það sem hann skrifaði ekki. Honum verður tíð- rætt um veðurfar og skepnuhöld en ekki er mikið talað um svokallað tilfinningalíf. Ég kynnti mér líka fjölmargar prentaðar heim- ildir, til dæmis Norðfjarðarsögu eftir Smára Geirsson; tók einnig viðtöl við marga eldri Norðfirðinga. Ég byggi allt á sagn- fræðilegum grunni þannig að bókin verður blanda af sagnfræði og skáldskap. “ Hvernig kemur skáldskapurinn inn í verkið? „Ég breyti engum nöfnum og þarna eru ljósmyndir af sögupersónunum en oft skapa ég atburðarás og samtöl. Mér finnst heillandi að velta fyrir mér hvað sé sagn- fræði og hvað skáldskapur þegar allt kemur til alls. Margir hafa spurt mig hvað sé satt og hvað skáldað í bókinni en ég hef ekki gefið kost á svörum við slíkum spurn- ingum.“ Hvaða persónur koma við sögu í bókinni, auk ættmenna þinna? „Þær eru býsna margar. Jósep Jósepsson bóndi í Fannardal í Norðfjarðarsveit og Ragnhildur Jónasdóttir ráðskona hans eru þar fremst í flokki. Jósep varð umtalaður á sinni tíð, meðal annars vegna þess að hann hafði barist við indíána vestanhafs og Ragn- hildur varð allþekkt eftir að Jónas Árnason ritaði endurminningar hennar, Undir Fönn, árið 1963. Ég segi frá sumardvöl móður mín í Fannardal, hún var þá á ferming- araldri og lærði þar að slá með orfi og ljá, hlustaði á indíánasögur hjá Jósep og drakk kaffi með kamfórudropum hjá Ragnhildi.“ Bókartitillinn Sérðu harm minn, sum- arnótt? er sérstakur, hvaðan kemur hann? „Hann kemur úr kvæði eftir Ragnhildi. Ljósmyndin framan á bókinni er af Þóri móðurbróður mínum sem drukknaði sum- arið 1935, átta ára gamall. Á þessum tíma voru stundum ort erfiljóð í orðastað að- standenda og Ragnhildur gerði það í orða- stað ömmu minnar. Ég birti hluta af kvæð- inu sem hefst þannig: Hvort sérðu harm minn, sumarnótt? Minn sonur dáinn er. Mér fannst þetta magnaðar andstæður, annars vegar sumarnóttin ljúfa og hins veg- ar hinn myrki harmur.“ BÓK SEM ER BLANDA AF SAGNFRÆÐI OG SKÁLDSKAP Magnaðar andstæður „Margir hafa spurt mig hvað sé satt og hvað skáldað í bókinni en ég hef ekki gefið kost á svörum við slíkum spurningum,“ segir Bjarki Bjarnason. BJARKI BJARNASON ER HÖFUNDUR BÓKARINNAR SÉRÐU HARM MINN, SUMARNÓTT? 56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2013 BÓK VIKUNNAR Aðdáendur Jo Nesbø geta ekki verið þekktir fyrir annað en að lesa fyrstu bók hans um Harry Hole sem er afar góð verðlaunaspennusaga. Bækur KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR kolbrun@mbl.is Ég hef gaman af metsölulistum, er- lendum jafnt sem innlendum, og skoða til dæmis alltaf metsölulista Sunday Times og ef ég sé þar kunnugleg nöfn kinka ég samþykkjandi kolli. Síðast þegar ég kíkti var vinur okkar Jo Nesbø þar ofarlega á lista með bók sína Leðurblökuna sem einnig gerir það gott hér á landi. Sérfræðingarnir á Sunday Times segja að aðalpersónan í bókum Nesbø, Harry Hole, sé ein af þekktustu persónum nútímaglæpa- sagna. Það er sko alveg rétt hjá þeim. Sá sem veit ekki hver Harry Hole er getur ekki talist vel upplýstur maður. Ég fer einstaka sinnum til London í bókabúðir og í hvert sinn er ég svo einföld að halda að ég muni ekki sjá þar bækur sem eru á vinsældalista hér á landi. Mér er alltaf komið á óvart. Í fyrra gekk ég inn í bókabúð í London og þar blasti við mér rekki með metsölubók vik- unnar í þeirri versl- un, sem var Gaml- inginn sem skreið út um gluggann og hvarf. „Heill og sæll, gamli vinur,“ sagði ég í huganum við bókakápurnar sem blöstu við mér. Svo greip ég upp myndavél og mynd- aði þær, rétt eins og ég hefði rekist á gamlan félaga. Þetta gerði ég í hrifn- ingarvímu sem lítil skynsemi var í enda hef ég ekki haft nokkurt not af myndinni sem ég tók. Ég geri mér vonir um að næst þegar ég fer til London sjá ég hinn hornótta Ove. Mér þykir vænt um Ove og finnst að hann eigi skilið að verða þýddur á ensku. Kannski er búið að því. Áður en ég gleymdi mér út af Gaml- ingjanum og Ove var ég að skrifa um Sunday Times, sem reyndar hrósaði Gamlingjanum á sínum tíma – enn eitt dæmið um það hvað menn eru smekk- vísir á Sunday Times. Það er gaman að lesa þetta góða blað sem fjallar svo vel um nútímabókmenntir. Menn þar á bæ eru heldur ekki snobbaðir því þeir gera spennusögum iðulega hátt undir höfði. Þar hef ég oftar en einu sinni rekist á lofsamlegar umsagnir um Arnald Indriðason. Nýlega tók svo Sunday Times Yrsu Sigurðardóttur upp á arma sína og lofar hana mjög. Mikið væri gaman að sjá íslenska spennubók á metsölulista Sunday Times. Orðanna hljóðan KUNNUG- LEG NÖFN Á LISTA Arnaldur Indriðason Gamlinginn vakti athygli í Bretlandi. Bækur hreyfa mismikið við mér en Bláa kannan sem ég las sem barn vekur enn hjá mér sérstaka til- finningu því endirinn var enginn ævintýraendir, svo- lítið eins og óvænt endalok. Ég á erfitt með að gera upp á milli Gerplu og Íslandsklukkunnar eftir Halldór Laxness en þær eru báðar í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Snilld Laxness liggur ekki hvað síst í sterkum kvenpersónum, rétt eins og í Íslend- ingasögunum. Fimmta barnið eftir Doris Lessing er magnað verk um ódælt barn og getur bókin komið hverjum sem er í uppnám. Það má túlka hana með afar ólíkum hætti, eins og kom í ljós í leshringnum mínum. Bækur Auðar Övu Ólafsdóttur eru heill heimur út af fyrir sig, enda afburðahöfundur á ferð. Ég naut til dæmis hverrar setningar í Undantekningunni. Önnur bók sem hefur skipt mig máli er Fjarri hlýju hjónasæng- ur eftir Ingu Huld Hákonardóttur. Ekki bara öðru vísi Íslandssaga heldur opnaði hún augu manns fyrir högum fólks og því hvernig saga okkar er samofin atburðum og straumum í Evrópu. Stöðu vinnu- manna er til dæmis lýst þar með ákaflega eftirminnilegum hætti. Svo verð ég að nefna bókina um Ólöfu eskimóa, eftir Ingu Dóru Björnsdóttur. Ólöf eskimói var einn merkilegasti Íslendingur sög- unnar. Hvernig gat fátæk dvergvaxin stúlka frá Íslandi orðið frægur og ríkur fyrirlesari í Vesturheimi? Það hlýtur að verða gerð stórmynd í Hollywood byggð á ævi hennar. Loks eru það bækur snillings spennusagnanna, Yrsu Sigurð- ardóttur. Fáir standast henni snúning í að búa til góðar fléttur auk þess sem hún er einstaklega næm á tíðarandann. Í UPPÁHALDI RAGNHEIÐUR ELFA ÞORSTEINSDÓTTIR LÖGMAÐUR Ódælt barn og frægur dvergur eru meðal þess sem heillar lestrarhestinn Ragnheiði Elfu Þorsteinsdóttur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Halldór Laxness

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.