Morgunblaðið - 14.12.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég er mjög stolt og ánægð því ég
tel að réttlætinu hafi verið fullnægt
í þessu máli. Þetta sýnir íslensku
þjóðinni að það tók því að rannsaka
það sem gerðist,“ sagði Eva Joly,
þingmaður á Evrópuþinginu og
fyrrverandi ráðgjafi Ólafs Þórs
Haukssonar, sérstaks saksóknara, í
viðtali við Morgunblaðið í gær.
Hún hafði fengið fréttir af niður-
stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í
fyrradag þar sem kveðnir voru upp
þyngstu dómar í efnahagsbrota-
málum hér á landi sem sögur fara
af. Fjórir fyrrverandi Kaupþings-
menn voru dæmdir í allt frá þriggja
ára fangelsi til fimm og hálfs árs
fangelsisvistar.
„Ég var mjög viss um að hópur
Ólafs [Þórs Haukssonar, sérstaks
saksóknara, innsk. blm.] myndi
ljúka rannsókninni og gefa út
ákæru. Einnig tel ég að Ísland eigi
að nýta sér og vera stolt af þeirri
staðreynd að það er eina landið sem
er raunverulega að saksækja brot-
lega bankamenn (banksters).“
Eva Joly tók tæmi af Bandaríkj-
unum þar sem sýnt var fram á
margskonar misferli, til dæmis hjá
fjármálastofnunum á borð við JP
Morgan og Goldman Sachs. Þar var
refsingin háar fjársektir. „Ég held
að það verði engin breyting á vinnu-
brögðum fyrr en þeir sem bera
ábyrgð þurfa að gjalda fyrir með
frelsi sínu og eignum,“ sagði Eva.
Telur hún að fangelsisdómar séu
mikilvægir í málum sem þessum?
„Já, þeir eru mikilvægir,“ sagði
Eva. „Ég tel að heimurinn líti til
ykkar. Þetta sýnir að það er mögu-
legt að efna til alþjóðlegrar rann-
sóknar með góðum árangri. Ég vil
einnig benda á að þessi alþjóðlega
rannsókn hefur farið fram á
skemmstum mögulegum tíma. Upp-
hafið var 2008 og dómurinn féll
fimm árum síðar. Það er nokkuð
gott. Það er í rauninni mjög gott.“
Eva Joly kvaðst vera þess fullviss
að fleiri mikilvæg mál varðandi
efnahagshrunið ættu eftir að koma
til kasta dómstóla hér á landi.
„Þetta er leið til að segja íslensku
þjóðinni að réttlætinu hafi verið
fullnægt. Það voru framin afbrot og
fólk er dæmt, það kemst ekki upp
með þetta. Menn ollu hruninu, það
datt ekki af himnum ofan og varð
ekki heldur af náttúrulegum orsök-
um. Það var manngert,“ sagði Eva
Joly.
Hún kvaðst telja að ástæða sé til
að fagna niðurstöðu héraðsdóms.
„Það hefur verið átak fyrir íslensku
þjóðina að borga fyrir þessar rann-
sóknir. Árangur hefur náðst fyrir
tilstilli íslenskra laga og reglna og
líka vegna alþjóðlegara sáttmála
sem Ísland á aðild að. Þetta er mjög
mikilvægt og sýnir stöðu ykkar í
heiminum,“ sagði Eva Joly.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eva Joly Hún telur að heimurinn muni líta til Íslands vegna dóms yfir bankamönnum. Það sé eina landið sem raun-
verulega sæki bankamenn til saka í tengslum við efnahagshrunið.
Telur að réttlætinu
hafi verið fullnægt
Eva Joly lýsir yfir ánægju með dóminn í Al-Thani málinu
Hörður Felix Harðarson, verjandi
Hreiðars Más Sigurðssonar, segir að
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
Hreiðari verði áfrýjað. Hann segir að
það hafi verið auðveld ákvörðun.
Hreiðar Már var á fimmtudag dæmd-
ur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir
umboðssvik og markaðsmisnotkun.
„Við erum ósammála forsendum
og niðurstöðum dómsins í öllum at-
riðum,“ sagði Hörður.
Í dómi héraðsdóms er komist að
þeirri niðurstöðu að viðskipti með
5,01% hlut í Kaupþingi hafi verið
blekking að stofni til og verulegt fjár-
tjón hafi hlotist af. Hörður segir að
það sé upplýst í þessu máli að kaup-
andi bréfanna, Al Thani, hafi undir-
ritað 12,8 milljarða sjálfskuldar-
ábyrgð, sem leiddi síðar til þess að
hann gekkst undir uppgjör á þessari
ábyrgð. „Slitabók Kaupþings er bet-
ur sett svo milljörðum skiptir, vegna
þessara viðskipta. Slitastjórnar-
mennirnir komu fyrir dóm og svör-
uðu spurningum um þetta og stað-
festu að þetta er rétt.“
Hörður benti á að slitastjórn hafi
heimild til að rifta gerningum sem
þessum og það hafi verið gert í ýms-
um málum eins og fram hafi komið í
fréttum. Þeir hafi hins vegar sagt fyr-
ir dómi að það hafi ekki komið til álita
að rifta þessum viðskiptum, enda hafi
þau verið hagfelld fyrir bankann.
„Samt er skrifað inn í þennan dóm að
þetta hafi verið blekking og að þetta
hafi leitt til fjártjóns fyrir bankann.
Þetta er bókstaflega rangt.“
„Sigurður er mjög ósáttur við dóm-
inn og telur hann vera rangan,“ segir
Ólafur Eiríksson, verjandi Sigurðar
Einarssonar en sigurður var dæmdur
í 5 ára fangelsi. Hann hefur ákveðið
að vísa málinu til Hæstaréttar.
egol@mbl.is
Ætla að áfrýja Al
Thani-dómnum
„Ósammála öllum forsendum dómsins“
Morgunblaðið/Rósa Braga
Dómsuppsaga Verjendur í Al Thani-málinu voru viðstaddir dómsuppsögu í
málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Sakborningar mættu ekki sjálfir.
Samningur Evu Joly, fyrrver-
andi rannsóknardómara í
Frakklandi, við embætti sér-
staks saksóknara var undirrit-
aður í mars 2009. Hún veitti
embættinu ráðgjöf og eins sér-
fræðingar á hennar vegum,
m.a. um meðferð réttarbeiðna
milli landa og eins um tengsl
við erlenda sérfræðinga á ýms-
um sviðum. Eva Joly lét af
störfum fyrir embætti sérstaks
saksóknara haustið 2010 þeg-
ar hún ákvað að fara í forseta-
framboð í Frakklandi.
Gro Eva Farseth fæddist í
Noregi 1943. Hún flutti tvítug
að aldri til Parísar og giftist
Pascal Joly. Hún notaði mið-
nafnið sitt og tók upp ættar-
nafn eiginmannsins.
Eva Joly las lögfræði með
vinnu og varð rannsóknadóm-
ari. Hún sérhæfði sig í efna-
hagsbrotum og leiddi
rannsóknir stórra efnahags-
brotamála.
Sérstakur
ráðgjafi
EVA JOLY, FYRRVERANDI
RANNSÓKNARDÓMARI
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak-
sóknari, segir að dómurinn í Al
Thani-málinu sé upplýsandi fyrir
ákæruvaldið. Dómurinn geri vinnu
embættis sérstaks saksóknara
markvissari í þeim málum sem eru
enn til meðferðar.
„Í dómnum er í reynd fallist á
kröfur og málatilbúnað ákæruvalds-
ins. Dómurinn er langur og ítarlega
rökstuddur. Forsendur hans eru
nokkuð skýrar og þar af leiðandi er
hann upplýsandi fyrir ákæruvaldið
og gefur skýrar vísbendingar um til
hvaða atriða dómstóllinn horfir. Það
gerir okkar vinnu markvissari í þeim
málum sem við erum rannsaka,“
sagði Ólafur.
Ólafur sagði að það yrði að hafa í
huga, þegar talað væri um fordæm-
isgildi dómsins, að ekki væri kominn
dómur í Hæstarétti í þessu máli.
„Mér finnst þó dómurinn vera mjög í
samræmi við fyrirliggjandi dómafor-
dæmi hvað varðar umboðssvikaþátt-
inn, eins og t.d. í Exeter-málinu. Sá
kafli í Al Thani-dóminum sem snýr
að markaðsmisnotkun er mjög at-
hyglisverður og mjög gott að fá
hann,“ sagði Ólafur, en stór mark-
aðsmisnotkunarmál eru til meðferð-
ar hjá dómskerfinu. egol@mbl.is
Upplýsandi dómur
fyrir ákæruvaldið
Ánægður með dóminn í Al Thani-málinu
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt karlmann í 12 mánaða fang-
elsi, þar af níu mánuði skilorðs-
bundið, fyrir skilasvik með því að
hafa tekið til sín mestan hluta lagers
eftir að félag sem hann átti og rak
hafði verið úrskurðað gjaldþrota.
Maðurinn var jafnframt dæmdur
til að greiða þrotabúinu skaðabætur.
Hann var sýknaður af bókhalds-
broti þar sem ósannað var að bók-
haldið hefði verið á ábyrgð hans þeg-
ar það hvarf. Maðurinn var hins
vegar dæmdur til að greiða 2⁄3 hluta
alls sakarkostnaðar.
Í ákæru var maðurinn sakaður um
hafa frá því í desember 2009 til loka
febrúar eða
byrjun mars
2010 skotið
undan eða ráð-
stafað stærst-
um hluta
óseldra birgða
félagsins. Sölu-
verðmæti
þeirra var áætl-
að rúmar 46 milljónir kr.
Fram kemur að maðurinn hafi
skert rétt lánardrottna félagsins til
að öðlast fullnægju ef eignum félags-
ins og miðaði háttsemi hans að því að
eigur þrotabús félagsins kæmu lán-
ardrottnum þess ekki að gagni.
Tók birgðir gjald-
þrota fyrirtækis
Eigandi dæmdur fyrir skilasvik