Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 ingar um áframhaldandi velgengni samstarfsins. Hu Yue, varaforsætisráðherra Sianyang-héraðs, segir undirritun samningsins merkan áfanga í sam- vinnu Íslendinga og Kínverja á sviði jarðvarma og að mörg stjórnsýslu- stig í Kína bindi miklar vonir við samstarfið og muni gera stífar áætl- anir til að uppfylla samninginn. Undanfarin ár segir hann þróun efnahagslífsins í héraðinu hafa verið gríðarmikla. Hagvöxtur síðasta árs hafi til að mynda verið 12,9%. 240 milljónir ferðamanna Héraðið er að hans sögn mjög auð- ugt af jarðefnum á borð við jarðgas, kol en mikilvægustu auðlindina segir hann vera jarðhitann í héraðinu. Saga héraðsins teygi sig langt aftur í tímann, og vísinda- og menningar- starf sé þar mjög fjölskrúðugt. Á síðasta ári hafi þrjár og hálf milljónir ferðamanna sótt héraðið heim, en heildarfjöldi ferðamanna sem heimsækja Kína hvert ár séu um 240 milljónir. Í kjölfarið af þess- ari samningsundirritun og áfram- haldandi samstarfi Íslands og Si- nyang-héraðs segist Hu hlakka til enn nánara samstarfs og fjölgunar ferðmanna milli landanna á næstu árum. „Fyrir hönd héraðsins býð ég ykk- ur velkomin til Kína og þakka Ís- lendingum kærlega fyrir góðar við- tökur,“ segir Hu. Samningur um upp- byggingu í Kína  Orka Energy undirritaði í gær samning um frekari upp- byggingu jarðhitaverkefna í 38 milljóna héraði í Kína Morgunblaðið/Rósa Braga Samningur Han Hongqi og Haukur Harðarson, stjórnarformaður Orka Energy, undirrituðu í gær samstarfssamning um jarðhitaverkefni í Kína. Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Orka Energy (OE) undirritaði í gær samning við stjórnvöld í Sianyang- héraði í Kína og Sinopec Star Petr- olium Co. um nýtingu á jarðvarma í héraðinu. Haukur Harðarson, stjórnarfor- maður OE, og Han Hongqi, varafor- sætisráðherra héraðsins, undirrit- uðu samninginn. Eiríkur Braga- son, forstjóri OE, segir samninginn í aðalatriðum snúast um áfram- haldandi sam- starf um upp- byggingu á hitaveitum og orkuverum fyrir héraðið. „Þetta er 38 milljóna manna hérað og stærsta borgin telur um sex milljónir. Þetta getur því verið mjög stórt verkefni fyrir okkur. Núna höldum við áfram uppbyggingu, meðal annars með því að fara inn á ný jarðhitasvæði. Sam- hliða erum við að skoða arðsemi af nokkrum öðrum verkefnum,“ segir Eiríkur. Verkefni heimsbyggðarinnar Illugi Gunnarsson menntamála- ráðherra var viðstaddur undirrit- unina. Hann ávarpaði starfsmenn OE og fjölmenna sendinefnd á veg- um Sianyang-héraðs og kínverska sendiráðsins. „Þetta verkefni er mjög mikilvægt í áframhaldandi samstarfi Íslands og Kína,“ segir Illugi. „Þrátt fyrir mik- inn stærðarmun tel ég að samstarf Íslands og Kína sé dæmi um hvernig stór og lítil þjóð geti átt milli sín gott samstarf. Ísland hefur ýmislegt fram að færa á sviði jarðhitamála og það er gott tækifæri fyrir okkur að geta flutt út okkar þekkingu og sér- fræðiþekkingu.“ Illugi bendir á að hlýnun jarðar sé ekki vandamál ein- stakra þjóða, heldur heimsbyggðar- innar allrar. Þurfa að vinna saman „Til að takast á við þann vanda þurfa þjóðir heimsins allar að vinna saman, stórar og smáar. Undirritun þessa samnings er eitt skref í áttina að því að gera heiminn að betri stað og ég er fullviss um að þau verða fleiri,“ segir Illugi. Hann segir rík- isstjórn Íslands hafa miklar vænt- Orka Energy (OE) veitir hita til húsa í Kína sem samtals telja nærri átta milljón fermetra í gegnum fyrirtækið Sinopec Green Energy Geothermal Development Co. (SGEG). Fyrirtækið rekur 82 hitunar- stöðvar í þremur héröðum í Kína með alls 106 framleiðsluborholur. Félagið er því það stærsta á sviði húshitunar með jarðvarma í Kína. SGES á ennfremur í viðræðum um frekari verkefni á sviði umhverf- isvænnar orku í fleiri borgum og svæðum í Kína, en það rímar vel við yfirlýsta stefnu Kína um að draga úr útblæstri gróðurhúsaloftteg- unda. Auk Íslands og Kína starfar OE í Filippseyjum og Singapúr. Orka Energy víða um heiminn JARÐHITAVERKEFNI UTAN ÍSLANDS „Þetta fjárframlag er lausn til bráðabirgða og leiðrétting m.a. á niðurskurði og gjaldskrárhækk- unum. Hins vegar eru næstum 10 ár síðan leysa átti málið til frambúðar sem enn hefur ekki tekist,“ segir Valgerður Stefánsdóttir, forstöðu- maður Samskiptamiðstöðvar heyrn- arlausra og heyrnarskertra, spurð út í tillögu ríkisstjórnarinnar um 6 milljóna króna hækkun á framlagi vegna táknmálstúlkaþjónustu í dag- legu lífi. Um er að ræða greiðslu á túlka- þjónustu við ýmsar aðstæður við notendur á öllum aldri. M.a. túlka- þjónustu vegna atvinnuþátttöku og ýmissa annarra þátta sem falla utan opinberrar þjónustu eða samskipta við stjórnvöld eða dómstóla. Framlag til slíkrar túlkunar er 12,6 milljónir króna í fjárlögum yf- irstandandi árs. Hins vegar hækkaði gjaldskrá fyrir túlkaþjónustuna í maí sl. um 45% sem varð til þess að fjármagn til táknmálstúlkunar í dag- legu lífi er uppurið og „því er gerð tillaga um viðbótarframlag til að koma til móts við þarfir notenda til að njóta túlkunar í daglegu lífi,“ stendur í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2013. Valgerður bendir á að mikið vanti á þjónustu við heyrnarlausa og heyrnarskerta. Unnið hafi verið að tillögum til úrbóta frá árinu 2010. Um áramótin er gert ráð fyrir að framkvæmdanefnd um bætta þjón- ustu við heyrnarskerta og heyrn- arlausa skili tillögum til úrbóta. Hún bindur vonir við að tillögurnar feli í sér framtíðarlausn fyrir þennan hóp sem fær ekki eins góða þjónustu og t.d. blindir. thorunn@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Táknmál Fjármagn til táknmálstúlkunar í daglegu lífi er uppurið. Bráðabirgðalausn í táknmálstúlkaþjónustu Embætti landlæknis er enn að fara yfir erindi sem kom inn á borð þess í byrjun október vegna deilu milli lækna á Heilbrigðisstofnun Vest- fjarða, en fimm læknar við stofn- unina töldu veikindi fram- kvæmdastjóra lækninga gera honum ófært að sinna vinnu sinni. Málinu var vísað til landlæknis og farið fram á að lagt yrði faglegt mat á starfhæfi framkvæmdastjór- ans í kjölfar veikinda. Samkvæmt upplýsingum frá embætti land- læknis er verið að ljúka meðferð þessa máls. Málavextir eru þeir að í upphafi septembermánaðar sendu fimm læknar við Heilbrigðisstofnun Vest- fjarða bréf til framkvæmdastjórans þar sem kom fram að það væri sam- dóma álit þeirra að vegna veikinda framkvæmdastjóra lækninga væri réttast að hann framkvæmdi ekki aðgerðir né stæði skurðlæknavakt- ir þar til ljóst væri hvers eðlis veik- indin væru. Í lok september sendu þrír af þessum læknum aftur bréf til for- stjórans þar sem þeir óskuðu eftir því að framkvæmdastjóranum yrði vikið frá störfum þegar í stað vegna veikinda, dómgreindarleysis og áberandi minnistruflana. Fjórir af þeim fimm læknum sem fóru fram á matið hafa nú hætt störfum við stofnunina. Verið að ljúka meðferð málsins  Deilur lækna á HVest til skoðunar Mikið hefur verið að gera í póst- húsum landsins undanfarna daga enda síðustu forvöð að senda jóla- kort og jólapakka með flugpósti til Evrópu eigi sendingarnar að ná til viðtakenda fyrir jól. Brynjar Smári Rúnarsson, for- stöðumaður markaðsdeildar Pósts- ins, segir að álagið og magn send- inga hafi verið svipað og undanfarin ár. „Flestar sendingarnar hafa verið til Norðurlandanna og langmest til Danmerkur,“ segir hann. Jólakort sem send eru í B-pósti innanlands eða A-pósti innan Evr- ópu þurfa að berast Póstinum í síð- asta lagi á mánudag til að tryggja út- burð fyrir jól en síðasti skiladagur á jólakortum og jólapökkum innan- lands er fimmtudagurinn 19. desem- ber. Vegna aukins álags á þessum árs- tíma fjölgar Pósturinn starfsfólki og afgreiðslutími pósthúsa lengist auk þess sem jólapósthús hafa verið opn- uð í verslunarmiðstöðvunum í Kringlunni í Reykjavík, Smáralind í Kópavogi og á Gleráratorgi á Akureyri. steinthor@mbl.is Síðasti skiladagur og pósthús opin lengur Morgunblaðið/Rósa Braga Póstur Landsmenn senda marga pakka og mörg kort fyrir jólin. Eiríkur Bragason Hágæða LED útiseríur www.grillbudin.is Frá Svíþjóð 120 ljós 180 ljós 40 ljós 80 ljós 120 ljós 200 ljós 240 ljós 300 ljós 1000 ljós LED LED VELD U SEM E NDAS T OG Þ Ú SPAR AR JÓLA LJÓS Smiðjuvegi 2, Kópavogi | S. 554 0400 | Opið 11-16 laugardaga og 13-16 sunnudaga LED 50 ljós 100 ljós 120 ljós 150 ljós 200 ljós 300 ljós 1000 ljós Nýtt kortatímabil 10 og 20 ljósGamaldags Komdu og fáðu ráðleggingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.