Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 59
UMRÆÐAN 59Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
Merkisafmæli Morgunblaðsins hrær-
ir svo sannarlega upp í gömlum minn-
ingum. Veturinn 1967-’68 bauðst mér,
af blaðbera nokkrum á vegum blaðs-
ins, að leysa af í sama hverfi og ég bar
út hin blöðin í,
Meðalbraut í
Kópavogi, er náði
frá Hafnarfjarð-
arvegi, Borg-
arholtsbraut að
Urðarbraut og til
sjávar. Blaðapok-
inn hans var þó
sýnu bólgnari en
minn og talsvert
þyngri í þokkabót
(Morgunblaðið mun hafa verið 24 síð-
ur jafnan en þó oft 32 síður), allþungt
fyrir ellefu ára patta, fremur past-
urslítinn og því var umboðsmaður
blaðsins (enn ein stórkostlega konan
sem ég hef hitt á lífsleiðinni) hikandi
við að trúa stráknum fyrir ábyrgð-
inni, jafnvel þótt ég hefði borið út hin
blöðin þrjú, frekar auðveldlega,
þarna haustið á undan og rataði orðið
vel um hverfið.
Þau sálugu dagblöð, Tíminn, Al-
þýðublaðið og Þjóðviljinn, voru til
samans færri, þynnri og léttari en
Morgunblaðið, hvert þeirra 8-16 síður
minnir mig – og miklu var það erf-
iðara að innheimta hjá áskrifendum
þeirra blaða en Morgunblaðsins – því
sú skylda hvíldi þá illu heilli á blað-
berunum að ná inn áskriftargjaldinu.
Manni er ekki ljóst hvort þetta var
óvenju harður vetur, hann var alla
vega nógu erfiður – og þótt ég reyndi
að halda blöðunum þurrum komu of
oft bleytublettir í sum eintökin, ekki
síst ef brjótast þurfti í gegnum
tveggja metra háa skafla eða hærri,
frekar en að taka á sig langan krók.
Lengsta lykkjan var að paufast alla
leið niður að Kópavogsbænum sjálf-
um með einn Mogga, hálfan kíló-
metra líklega fram og til baka, svo
minnisstætt er það skipti er ég tvísté
uppi á Kópavogsbraut, óviss hvort
óhætt væri að leggja í heimreiðina að
bænum. Það virtist hafa snjóað 20-30
cm með skafrenningi um nóttina og
þrátt fyrir logn leist mér þarna illa á
blikuna.
Þá var ánægjulegt að sjá mann
snarast út um útidyrnar, slá snjóinn
af hálfri framrúðunni á jeppa og setja
í gang með svörtum reykmekki. Þeg-
ar hann komst loks upp á götu og tók
við Morgunblaðinu brostum við báðir
jafn breitt. Maður var fljótur að losa
sig við þessi fáu blöð sem eftir voru
og kominn loks of seinn í annan tím-
ann í skólanum. Blautur upp í klof
varð ykkar einlægur feginn að vera
rekinn heim af kennaranum (les:
kennslukonunni) „til að fara beint
undir sæng“.
Barnaþrælkun var lítið rætt hug-
tak hérlendis í þá daga og átti þarna
engan veginn við – en frábært er að
sjá allar framfarirnar í dreifingunni
nútildags, einkum þessar flottu litlu
kerrur undir blaðið sem orðið er oft
ótrúlega þykkt, fullorðið fólk verður
helst að bera það út – laust við inn-
heimtuna sem nú er orðin rafræn í
flestum tilfellum. Gott að tækninni
fleygði svona fram og Morgunblaðið
verður sífellt betra, stærra og glæsi-
legra, þótt prentvillupúkinn sjálfur
verði samt seint kveðinn alveg í kút-
inn, býst ég við.
PÁLL PÁLMAR DANÍELSSON,
leigubílstjóri.
Fyrrverandi blaðberi
leysir loks frá skjóðunni
Frá Páli Pálmari Daníelssyni
Páll Pálmar
Daníelsson
Samkvæmt Mbl. 7/12 2013 þá vekur
mikil netverslun furðu einhverra, en
ekki endilega þess almennings sem
kynnst hefur erlendum netfyr-
irtækjum og þar með fengið sam-
anburð. Það má margt segja um fá-
ránleika íslenskrar verðlagningar
sem ljóslega er okkur ekki til góðs, en
hverju þar er um að kenna er ekki
mitt að segja. Þó má ætla að löggjaf-
inn gæti þar um nokkuð lagað. Dani
sem kaupir frá Þýskalandi, þarf ekki
að borga svo mikla fragt, en það er
sama hvaðan við
kaupum, flutn-
ingskostnaður er
oft meiri en það
sem hluturinn
kostaði og gjöld
leggjast svo á
þann kostnað og
því meiri sem við
erum lengra frá
Reykjavík. Fyrir
hvað eru stjórnvöld hér uppi á Íslandi
að verðlauna sig með því að refsa
okkur Íslendingum fyrir að þrjóskast
til að vera hér? Fyrir hvað eru kaup-
menn sumir að verðlauna sig með
margföldunartöflunni í trausti þess
að það er langt til næstu landamæra?
En um leið og þetta er sagt þá þakka
ég aðstandendum bókabúðar (reynd-
ar allt mögulegt-búðar) hér við
Grundarfjörð sem nú hefur verið nið-
urlögð. Ég þakka fyrir ókeypis ráð-
gjöf, sem og gott viðmót og þjónustu
sem hefur oft skilað betra verði en í
Reykjavík þrátt fyrir flutnings-
kostnað. Hvernig var það hægt?
HRÓLFUR HRAUNDAL,
vélvirki.
Hvað er að undrast?
Frá Hrólfi Hraundal
Hrólfur Hraundal
Athyglisverð er frásögn Ögmundar
Jónassonar í sunnudagsblaðinu 1.
desember af umræðum í Strassborg
um lýðræði (Lýðræði á tímamótum).
Þar var tekist á
um, hvort ráða
ætti málum til
lykta í almennri
atkvæðagreiðslu
frekar en tíðkast
hefur. Ögmundur
hélt því fram.
Hann benti á, að
þátttaka í þing-
kosningum dvín-
aði ört. Lokaorð hans í blaðinu voru
þau, að það væri ráð að sjá til þess, að
fulltrúalýðræðið nýtti sér tækni til að
víkka út landamæri lýðræðisins.
Ögmundur heldur því fram, að
flokkarnir geti ekki lengur leyft sér
að vera þröngt valdaafl. Þess verður
þá einnig að geta, að þátttaka í al-
mennri atkvæðagreiðslu er oft ekki
almenn, þar sem slíkt fyrirkomulag
er oftast tíðkað, nefnilega í Sviss. Því
er ekki víst, að almenn atkvæða-
greiðsla leiði af sér vítt valdaafl.
Þau vandkvæði, sem Ögmundur lýs-
ir með því að halda því fram, að flokk-
arnir séu þröngt valdaafl, eyðast fyr-
irsjáanlega í sjóðvali. Ef beitt er
sjóðvali á þingi kemur nefnilega fram
hver vinnur að hverju og með hve
miklu afli atkvæða, en reglur sjóðvals
leiða til þess, að til lengdar verður eng-
inn alltaf undir, valdaaflið í þinginu
verður almennt. Þá má gefa óbreyttum
kjósendum kost á að taka þátt í sjóð-
vali þingmála. Það gerist þannig, að at-
kvæðastyrkur þingmanns er sam-
anlögð atkvæði, sem hann hlaut, þegar
hann var kjörinn. Atkvæði hvers kjós-
anda eru færð út af fyrir sig í heildar-
atkvæðastyrk (atkvæðasjóð) þing-
mannsins. Heimila má kjósanda að
taka fram fyrir hendur þingmannsins í
atkvæðagreiðslu. Ef kjósandi býður at-
kvæði á mál gengur atkvæðaboð þing-
manns hans ekki á atkvæðasafn kjós-
andans. Þátttaka kjósandans er undir
sama aga og þátttaka þingmanns í
sjóðvali. Þess vegna má kjósandi vita,
að það getur gengið á atkvæðasjóð
hans, ef hann býður atkvæði og reynist
standa á bak við niðurstöðu málsins.
Með þessu fyrirkomulagi verður að
veruleika ábending Ögmundar um að
nýta tækni til að víkka út landamæri
lýðræðisins. Meira máli en tæknin
skiptir þó hugsunin, sem sjóðval gerir
gilda og lesa má úr því, sem hér hefur
verið sagt.
Starfsmenn Lýðræðissetursins
kynntu sjóðval svo til öllum alþingis-
mönnum, sem kosnir voru 2007 og
2009, í samtölum við þá einn eða tvo í
einu (sömuleiðis varaþingmönnum).
Margvíslegt efni um sjóðval og raðval
er nú aðgengilegt í skjáritum á ýms-
um tungumálum. Það væri ráð fyrir
þá, sem fara til útlanda til lýðræðis-
umbóta, að kynna sér fyrst efni Lýð-
ræðissetursins um raðval og sjóðval
með lestri og samtölum við starfs-
menn setursins.
BJÖRN S. STEFÁNSSON,
stendur fyrir Lýðræðissetrinu.
Lýðræðisumbætur: Meira en tækni
Frá Birni S. Stefánssyni
Björn S. Stefánsson
Vertu vinur á
við elskum
skó
Dömuskór
21.990 kr.
Dömu-
stígvél
35.990 kr.
Dömu-
stígvél
35.790 kr.
Dömuskór
24.990 kr.
Dömuskór
32.990 kr.
Dömuskór
21.990 kr.
Dömu-
stígvél
29.990 kr.
Skór 18.990 kr.
Veski 7.990 kr.
Dömu-
stígvél
29.990 kr.
VELKOMIN Í SMÁRALIND
Skoðið úrvalið á bata.is