Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 41
FRÉTTIR 41Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 | SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660
Hálsmen
10.800 kr.
Eyrnalokkar
10.800 kr.
Eyrnalokkar
12.700 kr.
Eyrnalokkar
4.900 kr.
Eyrnalokkar
17.700 kr.
Eyrnalokkar
17.000 kr.
Eyrnalokkar
4.500 kr.
Eyrnalokkar
7.500 kr.
Hálsmen
5.700 kr.
Hálsmen
6.300 kr.
Hálsmen
13.000 kr. Hálsmen
5.600 kr.Hálsmen
5.800 kr.
Gjafir sem gleðja
Glæsilegir skartgripir í
jólapakkann á frábæru verði.
Líttu við og sjáðu úrvalið
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Rannsóknarsendinefnd Sameinuðu
þjóðanna hefur komist að þeirri
niðurstöðu að efnavopn hafi verið not-
uð að minnsta kosti fimm sinnum í
borgarastyrjöldinni sem nú geisar í
Sýrlandi. Í skýrslu nefndarinnar er
vísað til trúverðugra sannana og
sannana sem benda til að efnavopn
hafi líklega verið notuð í Ghouta,
Khan al-Asal, Jubar, Saraqeb og As-
hrafieh. Í skýrslunni kemur ekki fram
hver hafi staðið að baki notkun efna-
vopnanna, þar sem það var ekki á for-
ræði nefndarinnar að komast að því.
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands,
hefur viðurkennt að herir hans hafi
efnavopn undir höndum og hefur
heitið því að afhenda vopnin alþjóð-
legum sérfræðingum. En hann hefur
staðfastlega neitað því að hafa notað
vopnin gegn almennum borgurum.
Vesturlönd og arabaríkin, mannrétt-
indasamtök og sýrlenskir uppreisnar-
menn hafa sakað forsetann um að
standa að baki árásunum en Assad og
bandamenn hans í Rússlandi og Íran
segja uppreisnarmönnum um að
kenna.
Í skýrslunni kemur fram að óyggj-
andi sannanir séu fyrir því að sarín-
gas hafi verið notað í árás í Austur-
Ghouta 21. ágúst síðastliðinn. Það var
sú árás sem vakti hneykslan alþjóða-
samfélagsins og varð til þess að
Bandaríkjamenn hótuðu að beita her-
afli gegn sýrlenskum stjórnvöldum.
Evrópuríkin opni landamærin
Chuck Hagel, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að stjórn-
völd í Washington myndu halda
áfram að veita hófsömum uppreisnar-
öflum stuðning en myndu ekki standa
fyrir aðgerðum af neinu tagi, fyrr en
það lægi fyrir hver hefði yfirráð yfir
vopnabirgðageymslum og landa-
mærastöðvum.
Vonskulegt vetrarveður hefur gert
sýrlenskum flóttamönnum erfitt fyrir
í vikunni og eru flóttamannabúðir
víða þaktar snjó. Áætlað er að millj-
ónir séu á vergangi eftir að hafa flúið
átökin heima fyrir en mannréttinda-
samtökin Amnesty International
vönduðu ráðamönnum Evrópuríkj-
anna ekki kveðjurnar í gær og sögðu
Evrópusambandinu hafa mistekist að
veita sýrlenskum flóttamönnum við-
unandi aðbúnað.
Í skýrslu frá samtökunum kemur
m.a. fram að aðildarríki ESB hafi að-
eins boðist til að taka að sér 12.340
einstaklinga en Sameinuðu þjóðirnar
höfðu kallað eftir því að þeir yrðu
30.000. „Evrópusambandið verður að
opna landamæri sín, tryggja öruggan
aðgang og binda enda á þessi ömur-
legu mannréttindabrot,“ sagði fram-
kvæmdastjóri Amnesty, Salil Shetty.
Efnavopn
voru notuð
Flóttamenn berskjaldaðir fyrir kulda
og snjó Segja Evrópu til syndanna
Heimild: Sameinuðu þjóðirnar
100 km
M
IÐ
JA
R
Ð
A
R
H
A
F
ÍRAK
JÓRDAN
TYRKLAND
Rannsókn SÞ á notkun efnavopna
DAMASCUS
LÍBANON
ÍSRAEL
Ghouta
21. ágúst
Khan
Al Asal
Dagsetning árásar: 19. mars
Jobar
24. ágúst
Saraqueb
29. apríl
Ashrafieh
Sahnaya
25. ágúst
Bahhariyeh
22. ágúst
Sheik Maqsood
13. apríl
Efnavopn hafa verið notuð að minnsta kosti fimm sinnum í
borgarastyrjöldinni í Sýrlandi, samkvæmt skýrslu SÞ
Svæði þar sem efnavopnaárásir hafa
sannarlega eða líklega átt sér stað
Svæði þar sem ekki var
hægt að staðfesta að
efnavopnum hefði verið beitt
AFP
Borgarastyrjöld Milljónir hafa flúið heimili sín síðan átökin brutust út.
Hundruð Suður-
Afríkubúa rudd-
ust gegnum lög-
reglutálma þegar
þeim og tugþús-
undum annarra,
sem biðu fyrir ut-
an aðsetur
stjórnvalda í
Pretoríu, var til-
kynnt að þeir
fengju ekki tækifæri til að berja lík-
amsleifar Nelsons Mandela augum
og votta leiðtoganum virðingu sína.
Mandela hefur legið í opinni kistu
frá því á miðvikudag en stjórnvöld
sögðu í gær að ógerlegt væri að
hleypa öllum að sem vildu. Forset-
inn fyrrverandi verður jarðsettur í
heimaþorpi sínu, Qunu, á sunnudag.
SUÐUR-AFRÍKA
Vildu votta virðingu
sína en fengu ekki
Nelson Mandela
Harry Breta-
prins varð í gær
fyrsti meðlimur
bresku konungs-
fjölskyldunnar
til að komast á
suðurpólinn,
þegar leiðangur
hans náði þang-
að eftir þriggja
vikna göngu.
Í hópnum voru m.a. breskir,
bandarískir, kanadískir og ástr-
alskir hermenn en ferðin var
skipulögð af góðgerðarsamtök-
unum Walking With The Wound-
ed, til styrktar særðum hermönn-
um.
SUÐURPÓLLINN
Harry Bretaprins
náði pólnum í gær
Harry Bretaprins