Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 72
72 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
Ég er að fara á jólatónleika Björgvins Halldórssonar í fyrstaskipti með kærustu minni, Katrínu Eyjólfsdóttur, ogtengdamóður,“ segir Eysteinn Sigurðarson, leiklistarnemi
og afmælisbarn dagsins. Hann segist hlakka mikið til að heyra „Bó“
þenja raddböndin. „Ég er sérstaklega spenntur fyrir laginu „Svona
eru jólin“, sem er líklega jólalegasta lag sem til er.“ Um kvöldið ætla
þau Katrín síðan út að borða á Rub23, „og það á vel við, því ég verð
23 ára“. Eysteinn er á öðru ári í leiklistarnámi og með námi vinnur
hann í Fatabúð Kormáks og Skjaldar. Eysteinn segir vinnuna mjög
skemmtilega. „Þetta er alveg frábært, ég kann vel við að vinna
þarna,“ segir Eysteinn. Þá líkar honum vel að tala við kúnnana.
„Það er persónuleg stemning í þessari búð sem er öðruvísi en í öðr-
um verslunum, fólk leyfir sér að spjalla saman og grínast,“ segir Ey-
steinn. Hann bætir við að það hafi í för með sér mikla kosti fyrir
leiklistarnema að komast þannig í snertingu við fólk. „Þetta hjálpar
mér að hlusta á fólk og skynja það hvernig manneskjur ég er að af-
greiða, hvað þær þurfa. Leikarar þurfa að geta hlustað og skynjað
aðstæður.“ Eysteinn víkur að náminu. „Ég er í leiklist af því mér
finnst svo gaman að segja sögur á persónulegan hátt,“ segir Ey-
steinn, en helsti kostur leikara sé að geta snert tilfinningar fólks. Nú
sé hann til dæmis að setja upp með bekknum sínum gömul grísk
verk, 2.500 ára gömul. „Í fyrstu eru þau mjög flókin, en þegar mað-
ur skilur þau eru þau svo mannleg og hafa mikil áhrif á mann.“
Eysteinn Sigurðarson er 23 ára í dag
Ljósmynd/Eysteinn Sigurðarson
Flottur í tauinu Eysteinn vinnur í Fatabúð Kormáks og Skjaldar
samhliða námi sínu í leiklist og finnst það alveg frábært.
Lærir mikið á
vinnunni með námi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Áttræður er í dag, 14. desem-
ber, Hrafn Benediktsson. Í til-
efni afmælisins taka Hrafn og
Finnlaug á móti vinum og ætt-
ingjum í Þróttarheimilinu í
Laugardal, milli kl. 14 og 17.
Árnað heilla
80 ára
Hveragerði Danielius Helgi fæddist
13. apríl kl. 17.03. Hann vó 4.458 g og
var 54 cm langur. Foreldrar hans eru
Halldóra Jóna Guðmundsdóttir og
Airidas Liaugminas.
Nýir borgarar
Reykjavík Andrea Ísold fæddist 9.
apríl kl. 22.06. Hún vó 4.620 g og var
52 cm löng. Foreldrar hennar eru
Linda Mjöll Helgadóttir og Sigurjón
Magnússon.
P
áll Jakob fæddist í
Reykjavík 14.12. 1973 og
ólst þar upp á Berg-
staðastræti 81 þar sem
hann bjó ásamt for-
eldrum, systkinum og ömmu, Huldu
Á. Stefánsdóttur: „Fyrstu árin vék
ég naumast af lóðinni, því skóla-
gangan hófst á barnaheimilinu
Hálsakoti sem var í kjallara íbúðar-
hússins.“
Páll Jakob var síðan í Hlíðaskóla
og Austurbæjarskóla, í VÍ, skamma
hríð, lauk stúdentsprófi frá MA
1994, hóf nám í læknisfræði við HÍ
en skipti fljótlega yfir í líffræði og
lauk BS-prófi í þeirri grein 1999.
Páll Jakob starfaði síðan rúmt ár
á Tilraunastöð HÍ að Keldum en
vildi þá söðla um: „Konan mín var
ekki í vafa um hvað skyldi gera: „Þú
átt að fara í sálfræði,“ sagði hún.
Eftir nokkrar vangaveltur, varð mér
ljóst að það var lóðið. Áhugi minn á
sálfræði hafði stóraukist eftir að ég
hafði sótt tíma hjá Einari Gylfa
Jónssyni sálfræðingi um nokkurt
skeið og eins er heilmikil skörun
milli sálfræði og líffræði. Í sál-
fræðináminu við HÍ fann ég fljótlega
að ég var kominn á rétta hillu og
lauk því BA-prófi 2003.“
Þegar sálfræðináminu lauk hafði
Páll Jakob verið í klassísku söng-
námi í fimm ár og vildi gjarnan láta
reyna á þá hæfileika. Hann einbeitti
sér því að söngnáminu en sinnti jafn-
framt margvíslegum verkefnum.
Páll Jakob fór síðan í doktorsnám
í umhverfissálfræði við Háskólann í
Sydney í Ástralíu og var um tíma
gestanemandi við Uppsala-háskóla
undir handleiðslu prófessors Terry
Hartig. Doktorsnáminu lauk hann
formlega þann 29.11. sl.
Umhverfismótun og sálarlífið
En hvað er umhverfissálfræði?
„Umhverfissálfræðin leitast við að
kortleggja samspil fólks og um-
hverfis, hvort sem um er að ræða
náttúru eða manngert umhverfi,
innanhúss eða utan. Fjölmargt er nú
þegar vitað um þetta samspil og því
brýnt að meira tillit sé tekið til sál-
fræðilegra áhrifa við umhverfis-
mótun.“
Er sálfræðin helsta áhugamálið?
„Já, umhverfissálfræði, jákvæð
sálfræði og hvatningarsálfræði (mo-
tivational psychology). En sálfræðin
deilir samt fyrsta sætinu með söngn-
um. Svo tengist sálfræðin auðvitað
Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði og ráðgjafi - 40 ára
Fjör hjá pabba Páll Jakob bregður á leik með börnunum, Guðrúnu Helgu og nafna sínum, Páli Jakobi.
Við mótum umhverfið
sem síðan mótar okkur
Bæjarlind 16 201 Kópavogur sími 553 7100 www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16
SVEFNSÓFAR
RE
CA
ST
SU
PR
EM
Ed
elu
xe
BREYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI / ÞYKK OG GÓÐ
SPRINGDÝNA / SVEFNBREIDD 140X200
BREYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI / EXTRA ÞYKK
OG GÓÐ SPRINGDÝNA / SVEFNBREIDD 140X200
RÚMFATAGEYMSLA
TILBOÐSVERÐ
KR. 129.900
TILBOÐSVERÐ
KR. 149.900