Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 22
Kostnaður við jarðstreng og loftlínu
Líftímakostnaður á hvern km, núvirtur
M
ill
jó
ni
r
kr
./
km
300
250
200
150
100
50
0
Grunntilfelli Hagkvæmar aðstæður Dalur og á í hrauni Í útjaðri íbúðabyggðar
220 KV línur: Förgun Tapakostnaður Stofnkostnaður Rekstur
Jarðstrengur:
Loftlína:
Loftlína
Jarðstrengur
hversu mikið kostaði að leggja
streng og línu, einnig væri mjög mis-
munandi hvaða kostnaður félli til á
öllum endingartíma mannvirkjanna.
Þannig tapaðist t.d. meiri orka við að
flytja rafmagn um loftlínu en streng
og rekstrarkostnaður jarðstrengs
væri þar að auki minni.
Vörugjöld, 15%, eru lögð á jarð-
strengi en ekki á loftlínur en í út-
reikningum Eflu er miðað við að
vörugjöld legðust ekki á jarðstreng-
ina, til þess að misjöfn skattlagning
skekkti ekki samanburðinn. Þá var
reiknað út hrakvirði, þ.e. verðmæti
við lok endingartímans, og kostn-
aður við förgun en þær upphæðir
vega afar lítið í þessum samanburði.
Verða fljótt háar fjárhæðir
Það sem vegur langþyngst í sam-
anburðinum er mismunandi stofn-
kostnaður. Ef aðeins er miðað við
hagstæðar aðstæður kemur fram, í
athugun Eflu, að kostnaður við lagn-
ingu jarðstrengs er mun meiri. Í því
tilviki er kostnaður við loftlínu um
84 milljónir en kostnaður við streng
er um 155 milljónir. Þessar upp-
hæðir eiga við um kostnað fyrir
hvern kílómetra. Ef ákveðið yrði að
leggja 5 km af streng í stað loftlínu
við þessar aðstæður yrði 350 millj-
ónum dýrara að leggja strenginn en
700 milljónum dýrara ef miðað er við
10 km.
„Ef verið er að leggja langan
streng verða þetta fljótt háar fjár-
hæðir,“ segir Jón.
Tvöfalt dýrara að leggja í jörð
Hver kílómetri af jarðstreng getur verið 70-160 milljónum dýrari en loftlína, að mati Eflu
Mest munar um mikinn stofnkostnað strengs Kostnaður mjög mismunandi eftir aðstæðum
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Heildarkostnaður eða ending-
arkostnaður við 220 kV jarðstreng
er í öllum tilfellum umtalsvert meiri
en kostnaður við 220 kV loftlínu.
Kostnaður við
jarðstreng og
loftlínur er mis-
munandi eftir að-
stæðum en jarð-
strengir eru frá
því að vera 70
milljón krónum
dýrari á hvern
kílómetra en geta
verið allt að 160
milljón krónum
dýrari.
Þetta kemur fram í nýrri athugun
sem Efla-verkfræðistofa gerði fyrir
Landsnet.
Jón Vilhjálmsson, rafmagnsverk-
fræðingur og sviðsstjóri orkusviðs
Eflu, kynnti athugunina á fjölsóttum
morgunfundi Verkfræðingafélags
Íslands og Tæknifræðingafélags Ís-
lands í gær.
Útreikningar Eflu byggjast m.a. á
nýlegri skýrslu verkfræðifyrirtæk-
isins Mannvits á kostnaði við lagn-
ingu jarðstrengja en Þorri Björn
Gunnarsson kynnti þá skýrslu á
fundinum.
Í samtali við Morgunblaðið minnti
Jón á að ekki væri einungis misjafnt
Jón
Vilhjálmsson
Heimild: Efla
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
Í skýrslu sem kanadíska fyrir-
tækið Metsco gerði fyrir Land-
vernd og Morgunblaðið fjallaði
um í nóvember sl. kom fram að
kostnaður við 220 kV jarðstreng
gæti verið um 20% meiri en við
220 kV loftlínu. Þá var m.a. mið-
að við að bæði loftlínan og
strengurinn myndu duga í 60 ár.
Efla telur að kostnaðurinn við
jarðstreng sé mun meiri.
Efla miðaði við 40 ára líftíma
strengs en 60 ár líftíma loftlínu
en Jón Vilhjálmsson sagði að í
raun skipti líftíminn ekki miklu
máli í þessum samanburði því
kostnaðurinn væri núvirtur og
eftir því sem lengra liði frá fjár-
festingunni yrði vægi líftímans
minna. Meðal annarra atriða
sem væru frábrugðin aðferðum
Metsco væri að Efla miðaði við
5,5% ársvexti, en í skýrslu
Landverndar hefði kostnaðurinn
ekki verið núvirtur. Hafa yrði í
huga að kostnaður væri háður
aðstæðum og flutningsgetu og
því ekki til eitt algilt hlutfall um
kostnaðarmun milli loftlína og
jarðstrengja.
Miðað við
annan líftíma
METI HVERT TILVIK
Þorri Björn Gunnarsson, jarð-
tækniverkfræðingur hjá Mannviti,
segir að margir átti sig ekki á því að
það geti verið töluvert flókið og
kostnaðarsamt að leggja jarðstreng
í jörðu. Stærsti hluti kostnaðarins
liggi þó í kaupum á strengnum sjálf-
um, tengingum og eftirliti.
Samkvæmt könnun Mannvits í
september er verðið á þremur fimm
kílómetra löngum, 220 kV jarð-
streng á bilinu 300-400 milljónir.
Þessar upplýsingar hafi fengist með
verðfyrirspurnum og upplýsingum
úr verkefnum erlendis.
Ástæðan fyrir því að miðað er við
að þrír strengir séu lagðir í einn og
sama skurðinn, er að nauðsynlegt er
að leggja einn streng fyrir hvern
fasa á sama hátt og í loftlínu eru þrír
vírar. Til að fá sömu flutningsgetu
og er í meginlínum Landsnets, væri í
raun nauðsynlegt að miða við alls
sex strengi í tveimur aðskyldum
skurðum.
Annar kostn-
aður við lagningu
jarðstrengja, s.s.
vegna jarðvinnu,
frágangs og fleira
er mjög mismun-
andi eftir að-
stæðum.
Þorri Björn
bendir á að ýmsir
virðist telja að
það sé einfalt mál að leggja jarð-
strengi en svo sé alls ekki. Meðal
þess sem verði að hafa í huga er að
ofan á strengina verði að setja sand
með tiltekna eiginleika, m.a. að hann
leiði varma frá strengjunum og
sandkornin séu ávöl en ekki hvöss.
Þótt slíkur sandur sé til hér á landi,
hafi hann alls ekki fundist um allt
land. Þurfi að flytja sandinn um
langan veg eða vinna hann sér-
staklega aukist kostnaður verulega.
Ljósmynd/Mannvit
Hiti Sandur er m.a. notaður til að leiða hita frá jarðstrengjunum.
Ekki nóg að
grafa bara skurð
Þurfa sand með tiltekna eiginleika
Þorri Björn
Gunnarsson
Skoðaðu úrvalið á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040
Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Notaðir bílar
- Brimborg
Verð: 890.000 kr.
Volkswagen Polo Comfortline MBE17
Skráður október 2007, 1,4i bensín, beinskiptur
Ekinn 140.000 km.
Tilboð: 2.090.000 kr.
Volvo S40 SE BKP97
Skráður mars 2008, 2,4i bensín, sjálfskiptur
Ekinn 123.000 km.
Ásett verð: 2.290.000 kr.
400.000 KR.
FERÐAFJÖRNOTAÐRA BÍLA
FINNDU BÍLINN ÞINN Á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
*Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 7. nóvember 2013 til ogmeð 20. desember 2013 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi
verður svo dreginn út 23. desember 2013 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf fráWOWair. Athugið á ekki við um umboðssölubíla.
Kauptu notaðan bíl af Brimborg
og þú átt möguleika á að vinna
*GJAFABRÉF FRÁWOWair
NOTAÐIR BÍLAR
Í GÓÐU ÚRVALI
Vertu með!
Glæsilegur,
öruggur og
vel búinn
Hvert myndir
þú fara?
Sparneytinn
og vel búinn
Hagstætt
verð og
vel búinn
Í ábyrgð
Tilboð: 2.390.000 kr.
Citroën C3 Exclusive MRN04
Skráður apríl 2012, 1,6i bensín, sjálfskiptur
Ekinn 42.000 km.
Ásett verð: 2.590.000 kr.