Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
Laugavegi 174
Sími 590 5040
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga kl. 12-16
Einstakt tækifæri til að eignast Audi eðalvagn
Við fjármögnum
bílinn fyrir þig
lykill.is
Bluetooth
símabúnaður
Audi A4 2.0 TDI
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 57.000 km, beinsk.
Ásett verð
4.190.000,-
Audi A4 2.0 TDI
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 33.500 km, sjálfsk.
Ásett verð
5.850.000,-
Audi A4 Avant 2.0 TDI
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 36.000 km, sjálfsk.
Ásett verð
4.850.000,-
Audi A4 Avant 2.0 TDI AT
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 26.000 km, sjálfsk.
Ásett verð
5.850.000,-
Milano leður,
Bluetooth símabúnaður
Gunnar Dofri Ólafsson
Stefán Gunnar Sveinsson
Pétur Magnússon, forstjóri Hrafn-
istu, segir forsvarsmenn hjúkrunar-
heimila hafa árum saman sagt að
daggjöld til hjúkrunarheimila séu of
lág.
Guðjón Magnússon, formaður
stjórnar Sunnuhlíðar, sagði í fréttum
Morgunblaðsins og mbl.is fyrr í vik-
unni að daggjöld sem ríkið greiddi
með hjúkrunarsjúklingum til hjúkr-
unarheimila væru of lág til að standa
undir rekstri hjúkrunarheimila.
„Daggjöldin lækka ár frá ári því
þau halda ekki í við verðlag, þrátt
fyrir að öðru sé haldið fram,“ segir
Pétur. „Hrafnista stendur vissulega
betur sökum stærðarhagkvæmni, en
það kemur ekki á óvart að það sé
komið í óefni hjá einhverjum af
minni hjúkrunarheimilunum.“
Hann segir ríkið enn gera kröfu
um sama þjónustustig, án þess að
þeim kröfum fylgi fjármunir til að
veita hana.
Almennar aðgerðir
Gísli Páll Pálsson, forstjóri hjúkr-
unarheimilisins Merkur og formaður
Samtaka fyrirtækja í velferðarþjón-
ustu, segir mörg þeirra hjúkrunar-
heimila sem eigi aðild að samtökun-
um vera í fjárhagsvandræðum, en
þekki ekki til þess að nein þeirra séu
í jafnslæmri stöðu og Sunnuhlíð.
Hann tekur í sama streng og Pétur
hvað varði daggjöldin – þau séu of
lág. Hann fagnar því að heilbrigð-
isráðherra ætli ekki að ráðast í sér-
tækar aðgerðir til að bjarga einstaka
hjúkrunarheimilum. Slíkar aðgerðir
þurfi að vera almennar og þá með
þeim hætti að hækka daggjalda-
grunninn.
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri lífeyrissjóðsins Gildis, segir
sjóðinn fyrst og fremst horfa til
hagsmuna sjóðsfélaga þegar upp
komi að launagreiðendur skili ekki
iðgjöldum. Megnið af því starfsfólki
Sunnuhlíðar sem er í verkalýðsfélag-
inu Eflingu greiðir í sjóðinn. „Við
högum okkar innheimtu í samræmi
við lög og reglur og okkar útgangs-
punktur er að sjóðfélagar tapi ekki
réttindunum.“ Hann vildi ekki ræða
stöðu Sunnuhlíðar sérstaklega.
300 milljóna skuldir
Stjórn Sunnuhlíðar sendi á mið-
vikudaginn Kópavogsbæ og ríkinu
erindi þess efnis að taki þessir aðilar
ekki afstöðu til þess hvor þeirra
muni taka yfir rekstur Sunnuhlíðar
sjái stjórnin þann einn kost að segja
upp starfsfólki.
Sunnuhlíð fékk á fjárlögum síð-
asta árs um 602 milljónir til rekstrar
heimilisins, en í fjárlagafrumvarpi
næsta árs er gert ráð fyrir að fram-
lög ríkisins hækki í 642 milljónir.
Skuldir félagsins nema um 300 millj-
ónum, helmingi þeirra fjárhæðar
sem það fékk frá ríkinu í ár. Á heim-
ilinu eru 70 heimilismenn og 140
starfsmenn í 83 stöðugildum að jafn-
aði á mánuði. Rekstrarvandi heim-
ilisins kom upp á yfirborðið þegar
Morgunblaðið hóf að grennslast fyr-
ir um hvers vegna Sunnuhlíð hefði
ekki staðið skil á lögbundnum lífeyr-
issjóðsiðgjöldum.
Morgunblaðið/Golli
Í vanda Stjórn Sunnuhlíðar vill að hið opinbera taki við rekstri hjúkrunarheimilisins. Ríki og sveitarfélag benda á
hvort annað. Forstjórar hjúkrunarheimila segja vandann felast í því að daggjöld frá ríkinu dugi ekki fyrir rekstri.
Daggjöld rót vandans
Forstjórar hjúkrunarheimila segja framlög ríkisins of lág
Þjónustukrafa ríkisins er óbreytt en framlögin lækka
Óvissa á Sunnuhlíð
» Forstjórar hjúkrunarheimila
benda á að daggjöld sem ríkið
greiðir hjúkrunarsjúklingum
séu allt of lág.
» Lífeyrissjóðirnir leggja
áherslu á að tryggja rétt
sjóðsfélaga.
» Sunnuhlíð fékk um 602
milljónir frá ríkinu á fjárlögum í
ár, en skuldar um 300 milljónir.
Gunnar Dofri Ólafsson
Stefán Gunnar Sveinsson
Fulltrúar sveitarfélaga eru sammála
um að það sé ríkisins að leysa þann
vanda sem hjúkrunarheimili stefni í,
þar sem ábyrgð á málaflokknum liggi
hjá ríkinu. Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarstjóri Kópavogs, segir að
Sunnuhlíð hljóti því að snúa sér fyrst
til ríkisins. „Vandamálið er í grunninn
að daggjöldin eru of lág, þannig að
þau duga ekki fyrir rekstrinum, og
við sjáum þessi vandamál hrannast
upp á fleiri stöðum en þessu hjúkr-
unarheimili.“
Ármann segir að flestir rekstrarað-
ilar hjúkrunarheimila séu í vandræð-
um með að láta enda ná saman, en á
höfuðborgarsvæðinu séu það langoft-
ast sjálfseignarstofnanir sem sjái um
slíkan rekstur. „Þess vegna hlýtur
það að vera þannig að þegar vanda-
mál af þessu tagi komi upp að ríkið
komi að málum. Sveitarfélagið kemur
þar hvergi nærri,“ segir Ármann.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigð-
isráðherra sagði í Morgunblaðinu í
gær, að hann ætti bágt með að trúa
því að sveitarfélagið myndi skorast
undan þeim skyldum sem leiddu af
svona stöðu. Ármann tekur ekki und-
ir þau orð. „Mér finnst mikilvægt að
ríkisvaldið geri sér grein fyrir þeim
skyldum sem á því hvílir. Það hefur
engin áhrif að ætla sér að nálgast
sveitarfélagið með því að víkja sér
undan ábyrgð.“
Viðræður við ríkið um málið
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
tekur í sama streng og Ármann. Hall-
dór segir að sveitarfélögin hafi verið í
viðræðum við ríkið um að sveitarfélög
tækju yfir málefni aldraðra. „Við
ákváðum að hægja verulega á því,
vegna þess að við sjáum það í þessari
vinnu að ríkið sem ber ábyrgð á þess-
um málaflokki stendur sig ekki.
Málaflokkurinn er því ekki í nægilega
góðu ástandi til þess að sveitarfélögin
geti tekið hann yfir,“ segir Halldór.
Halldór segir vandann liggja í því
að of algengt sé að daggjöldin frá rík-
inu séu ekki nóg. „Þá segir ríkið að
þetta sé ekki sitt vandamál og vísar á
einhvern annan,“ segir Halldór.
„En auðvitað eru sveitarfélögin
alltaf tilbúin að ræða við ríkið um leið-
ir til að leysa málin, en það verður að
vera mjög skýrt í umræðunni að
þetta er verkefni ríkisins,“ segir Hall-
dór Halldórsson.
Ábyrgðin er á
hendi ríkisins
Hægt á viðræðum milli ríkis og bæja
Ármann Kr.
Ólafsson
Halldór
Halldórsson
Sunnuhlíð er fyrsta byggingin á Ís-
landi sem er sérhönnuð sem hjúkr-
unarheimili fyrir aldraða. Þar eru
73 hjúkrunarrúm í 53 herbergjum
og er heimilinu skipt í tvær deildir
og fjórar starfseiningar. Sjálfs-
eignarstofnunin „Hjúkrunarheimili
aldraðra í Kópavogi“ var stofnuð
árið 1979. Byggingin var meðal
annars fjármögnuð með söfnun
meðal Kópavogsbúa, en einnig
gáfu aðilar til verksins. Ragnhildur
Guðbrandsdóttir tók fyrstu skóflu-
stunguna að hjúkrunarheimilinu í
janúar 1980. Hún var þá elsti íbúi
Kópavogs, 101 árs gömul að aldri,
og var Ragnhildur skráð í Heims-
metabók Guinness sem elsta
manneskjan til að taka skóflu-
stungu. Sunnuhlíð var opnuð
formlega í maí 1982, og var fyrsti
íbúinn Þórður Þorsteinsson á
Sæbóli, fyrrverandi hreppstjóri
Kópavogs.
Fyrsta sérhannaða heimilið
HJÚKRUNARHEIMILIÐ SUNNUHLÍÐ