Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Hinn þver-sagna-kenndi sannleikur er sá, að skattprósentan er of há í dag og skatttekjur eru of lágar. Skynsamlegasta leiðin til þess að auka skatttekjurnar til lengri tíma litið er með því að lækka skatta núna.“ Þessi orð eiga jafnvel við í dag og fyrir réttu fimmtíu og einu ári, þegar John F. Kennedy Bandaríkjaforseti mælti þau. Hann talaði þar fyrir róttæk- ustu skattalækkunum sem sést höfðu lengi vestanhafs. Með þeim skattalækkunum lagði Kennedy grunninn að miklum efnahagslegum bata í Bandaríkjunum, þar sem í ljós kom að með lægri sköttum jukust skatttekjur ríkisins, þvert á spár reiknimeist- aranna sem töldu, þá líkt og í dag, að almenningur brygðist aldrei við hærri skattheimtu á nokkurn annan hátt en að borga möglunarlaust. Í þeirra reiknilíkani þýða hærri skatt- ar meiri tekjur og lægri skatt- ar minni. En Kennedy hafði rétt fyrir sér, og enn þann dag í dag sést að þeir sem þora að vera sam- mála honum uppskera sem þeir sá, þó að hugsanlega sjá- ist árangurinn ekki strax. George Osborne, fjár- málaráðherra Bretlands, hef- ur verið gagnrýndur mjög fyr- ir fjármálastjórn sína frá því hann tók við árið 2010. Landið er þó að rísa hjá Bretum. Til dæmis hefur kom- ið í ljós að fyrir hvert starf í op- inbera geiranum sem tapast verða til tvö í einkageir- anum, og að lækk- un skatta hefur ekki aðeins aukið skatttekjur, heldur hafa þeir ríku aldrei borgað hærri fjárhæðir í skatta, þó að auðlegðarskattur hafi verið af- numinn. Með lægri sköttum hefur efnahagur Breta losnað úr læðingi, og hafa ytri að- stæður þó um margt verið þeim fjandsamlegar. Í vikunni lögðu Vinstri grænir fram tillögur sínar um að auka tekjur ríkisins um 10 milljarða á næsta ári og 20 milljarða á því þarnæsta. Þá fjármuni átti að sækja með því að hætta við skattalækkanir á launamenn og fyrirtæki, að ekki sé minnst á framlengingu auðlegðarskattsins, sem herj- ar helst á ellilífeyrisþega í stóru húsnæði. Hér er sama reiknilíkanið á ferð, þar sem sérhver prósentuhækkun skil- ar hærri tekjum. Í tímamótaræðu sinni sagði Kennedy einnig að hagkerfi, þar sem skattheimtan væri of hörð mundi aldrei skapa næg- ar tekjur til þess að tryggja hallalaus fjárlög, né heldur mundi skattpíningin skapa nógu mörg störf til þess að vinna á vandanum. Við höfum allar sannanir þess frá síðasta kjörtímabili að orð Kennedys eru jafnrétt í dag og þau voru fyrir rúmri hálfri öld. Fyrir 51 ári flutti John F. Kennedy eftirminnilega ræðu um skatta} Hvatning frá fyrri tíð Neðst í Borg-artúninu, við byggingu nokk- urra verkalýðs- félaga, er mikið ófremdarástand í bílastæðamálum. Á morgnana þarf húsvörður að reka bíla frá til að stæðin fyllist ekki enda orð- ið mjög þrengt að fólki á einka- bílum við Borgartúnið. Fyrir nokkru hafði húsfélagið í hyggju að stækka bílageymsl- una neðanjarðar, en hætti við þar sem borgin vildi þá að fækkað yrði um jafn mörg stæði ofanjarðar á móti. „Þetta er vegna þess að borgin hefur þá stefnu að hverfið eigi að vera mjög umhverfisvænt og fólk eigi helst ekki að vera á bílum. Og það væri í lagi ef við byggjum í sólarlöndunum,“ sagði formaður húsfélagsins í samtali við Morgunblaðið. „Staðreyndin er sú að á þessu svæði er nú ófremdar- ástand,“ bætti hann við. Bygg- ingum væri hrúgað upp en bílastæðum fjölgaði ekki til samræmis. „Við erum búin að skýra þetta út fyr- ir borginni, en þar eru menn bara ekki tilbúnir til að hlusta. Þó erum við með borgarstjóra sem segist hlusta á fólk.“ Þetta er ömurleg lýsing á ástandi sem borgin hefur sjálf skapað neðst í Borgartúni. Og ástandið er engu skárra þegar farið er í austurátt eftir sömu götu. Borgaryfirvöld vinna nú að því að breyta Borgartúni og fjarlægja fjölda bílastæða við götuna þrátt fyrir að bíla- stæðavandi hafi verið ærinn fyrir. Er ekki kominn tími til að borgarstjóri og aðrir borgar- fulltrúar sama sinnis fari að hlusta á borgarbúa og hleypa öðrum sjónarmiðum að en eig- in fordómum í garð þeirra sem ferðast um á eigin bílum? Fyrirtæki þurfa að geta tekið á móti fleiri viðskiptavin- um en þeim sem koma hjólandi} Borgin gegn Borgartúni O g hvenær sveltir maður ekki barn? Umfjöllun um fjárlög hefur, eins og megnið af íslenskri „um- ræðu,“ snúist upp í upphrópanir og slagorðarúnk. Áhugavert inn- legg í „umræðuna“ var mynd sem flakkaði um vefinn af brosandi börnum í Afríku haldandi á skilti sem á stendur „Hallalaus fjárlög á Íslandi 2014.“ Textinn til hliðar var á þá vegu að fátæku Afríkubörnin hefðu ákveðið að fórna sér svo ríkissjóður geti verið rekinn hallalaust. Í þess- ari „umræðu“ er búið að setja upp klassíska rökvillu; rökvilluna um að það séu aðeins tveir kostir í stöðunni. Peningar fara annaðhvort a) til svangra Afríkubarna eða b) í að koma í veg fyrir áframhaldandi skuldasöfnun ríkissjóðs. Það sjá það allir sem vilja að þetta er þvæla. Með sama hætti væri hægt að stilla upp fulltrúum stúd- enta þegar þeir kröfðust réttar síns fyrir dómstólum gagnvart LÍN. Það kostaði ríkissjóð alveg fullt af pen- ingum, sem munu heldur ekki fara í þróunaraðstoð. Vondu stúdentar! Viljið þið að börnin í Afríku fái engan mat!?! Stefna stjórnvalda um hallalaus fjárlög er nauðsyn- leg stefna. Ríkissjóður greiðir á hverju ári í kringum 90 milljarða króna í vexti á hverju einasta ári. Eina leiðin til að loka þessari frussandi peningaslagæð út úr rík- iskassahjartanu er að greiða upp skuldir ríkissjóðs. Ísland hefur frá stofnun lýðveldis greitt um 58 milljarða króna í þróunaraðstoð. Á þeim 69 árum höfum við sem sagt greitt 30 milljörðum minna til þróunaraðstoðar en sem nemur vaxtagreiðslum ríkissjóðs á einu ári. Spurningunni er samt ósvarað. Hvenær sveltir maður barn? Er það bara skylda stjórn- valda að veita peninga til þeirra sem minna mega sín? Nú leyfi ég mér að fullyrða að mikill fjöldi þeirra sem vilja aukin framlög til þróun- araðstoðar eiga fullt af hlutum sem eru miklu dýrari og íburðarmeiri en nauðsyn krefur. Með sömu rökvillu og er beitt í „umræðunni“ um þróunaraðstoð má segja að þetta fólk hafi ákveðið að nota peningana sína ekki einu sinni í að greiða niður skuldir, heldur í hreinrækt- aðan munað. En það væri að sjálfsögðu rök- villa. Hvort sem okkur líkar það betur eða verr þá erum við í grunninn eigingjörn. Birting- armynd af þeirri eigingirni er ómeðvituð þjóð- rækni. Við viljum frekar hækka laun grunn- skólakennara barnanna okkar en að kaupa nýjan fiskveiðibát fyrir eitthvert þróunarland. Við fáum reglu- lega fréttir af því að þörf lækningatæki á Landspítalanum séu biluð og að þörf sé á miklu fé til að endurnýja þau. Þessir peningar fara ekki í að byggja heilsugæslustöð í fá- tæku héraði á Indlandi. Það sama gildir um vaxtagreiðslur. Þeir fjármunir sem ríkið þarf að greiða á hverju ári í vexti, 150% af heild- arþróunaraðstoð Íslands frá upphafi, fara heldur ekki í þróunaraðstoð. Eða Landspítalann. Eða í að hækka laun grunnskólakennara. Þeir fara beint í vasa fjármagnseig- enda. gunnardofri@mbl.is Gunnar Dofri Ólafsson Pistill Hvenær sveltir maður barn? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Hafi sjúklingur í ríki Evr-ópusambandsins þurftað bíða óeðlilega lengi ábiðlista eftir lækningu getur hann, að vissum skilyrðum uppfylltum, farið til annars ESB- ríkis, leitað sér lækninga þar og síð- an sent reikninginn til ríkissjóðs í sínu heimalandi. Ríkissjóður myndi þá neyðast til að borga jafn háa upp- hæð til þessa sjúklings og hann hefði þurft að gera ef þjónustan hefði verið innt af hendi í heima- landinu. Þetta er í hnotskurn efni til- skipunar Evrópusambandsins um heilbrigðisþjónustu yfir landamæri. Ísland er skuldbundið til að innleiða tilskipunina og því munu Íslend- ingar, í náinni framtíð, öðlast þenn- an sama rétt. Það er hins vegar óljóst hvenær af því verður. Tæpur helmingur búinn Ríki ESB áttu að vera búin að innleiða tilskipunina 25. október 2013 en samkvæmt upplýsingum frá velferðarráðuneytinu hafa aðeins 13 af 28 ríkjum lokið við innleiðingu hennar. Þá liggur ekki fyrir, að sögn ráðuneytismanna, hvenær Ísland þurfi að hafa lokið við innleiðinguna enda hafi málið ekki enn verið tekið upp á vettvangi EES. Undirbúningur að innleiðingu er þó hafinn, í ráðuneytinu, hjá land- lækni og á Landspítalanum. Þá hef- ur velferðarráðuneytið boðað að ráðherra muni flytja frumvarp um það á vorþingi að tilskipunin verði innleidd. Rétt er að taka skýrt fram að tilgangurinn með tilskipuninni er ekki að skapa rétt til endurgreiðslu kostnaðar við heilbrigðisþjónustu sem er veitt í öðru aðildarríki EES ef slík þjónusta er ekki hluti af þeirri aðstoð sem kveðið er á um í löggjöf heimalands viðkomandi sjúklings. Með öðrum orðum: Ef ríkið borgar ekki með aðgerð hér á landi, þá mun ríkið ekki borga með aðgerðinni ef hún er framkvæmd í öðru landi. Þá fæst ferða- eða dval- arkostnaður ekki endurgreiddur. Þá er tekið fram í tilskipuninni að hún hafi ekki áhrif á skipulagn- ingu og fjármögnun heilbrigðisþjón- ustu sem ekki varðar heilbrigð- isþjónustu yfir landamæri. Meðal þess sem þarf að skil- greina er hvað telst vera hæfilega langur biðtími og hvað telst óhæfi- lega langur biðtími og er það verk- efni á herðum landlæknis. Biðtíminn getur verið mismunandi eftir sjúk- dómum og á hvaða stigi sjúkdóm- urinn er. Landlæknir ætlar sér að hafa lokið þessari vinnu fyrir árslok 2014. Gott verð og gæði Steingrímur Ari Arason, for- stjóri Sjúkratrygginga Íslands, kveðst ekki búast við að tilskipunin leiði til þess að Íslendingar muni í stríðum straumum leita eftir lækn- isaðstoð í útlöndum. „Bæði vegna þess að því fylgir auðvitað kostnaður og síðan er þjónustan, þrátt fyrir allt samkeppnisfær, bæði hvað varðar verð og gæði á Íslandi,“ segir hann. „En biðin kann að vera vanda- mál.“ Þá muni tilskipunin ekki leiða til þess að útgjöld Sjúkra- trygginga Íslands hækki. Samkvæmt tilskipuninni er hverju ríki heimilt að krefj- ast fyrirfram samþykkis fyrir aðgerð erlendis. Steingrímur Ari segir að Sjúkratryggingar hafi ekki talið að nauðsynlegt væri að koma á slíku kerfi og teldu ekki að það svaraði kostnaði. Fara til útlanda eftir langa dvöl á biðlista Morgunblaðið/Eggert Heimahagi Ekki er víst að allir hafi áhuga á að sækja læknisþjónustu í öðrum löndum, fjarri fjölskyldu, hjá nýjum læknum og í ókunnu umhverfi. Steingrímur Matthíasson, skurðlæknir og formaður sam- taka heilbrigðisfyrirtækja, fagn- ar tilskipuninni. Tilgangurinn sé að tryggja sjúklingum þjónustu innan tilskilins tíma og það sé hið besta mál. Það sé síðan óvíst hvernig til- skipunin verður innleidd. Hér á landi sé staðan sú að Landspít- alinn sé langstærsti veitandi heilbrigðisþjónustu og hann starfi án nokkurs aðhalds frá sambærilegum stofnunum. Tilskipunin muni leggja þær kröfur á herðar Landspítalanum að hann sinni sínu hlutverki. Þá sé ljóst að einkarekin heilbrigð- isfyritæki séu tilbúin til að taka við stærri hluta heilbrigðisþjón- ustu og á hag- stæðara verði. Velji þjónustu innanlands FÁKEPPNI HÉRLENDIS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.