Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
voru á meðan bann Alþjóðahvalveiði-
ráðsins um tímabundnar hvalveiðar
gilti hér á landi en atvinnuveiðar hóf-
ust aftur 2006.
Hvalatalningar benda til að lang-
reyði hafi fjölgað hér við land og þær
séu yfir 20 þúsund. Hafrannsókna-
stofnun telur að árlegar veiðar á 154
langreyðum séu sjálfbærar. Það hef-
ur verið hámarkskvótinn undanfarin
ár og verður næstu tvö árin, sam-
kvæmt ákvörðun Hafró.
Hvalur hf. er eina fyrirtækið sem
hefur yfir að ráða sérhæfðum hval-
veiðiskipum. Hvalskipin veiddu 125
langreyðar 2009, 148 dýr 2010 og 134
langreyðar í ár. Á árunum 2011 og
2012 voru engar veiðar vegna mark-
aðsaðstæðna í Japan.
Illa gengur að finna hrefnur
Hafrannsóknastofnun taldi í all-
mörg ár óhætt að veiða 400 hrefnur á
ári. Talning sumarið 2007 benti til
þess að færri dýr væru á land-
grunninu, þau hefðu fært sig vegna
fæðuskilyrða. Telur stofnunin nú að
veiðar á allt að 229 hrefnum á ári á
landgrunnssvæðinu við Íslandi séu
sjálfbærar. Í veiðiráðgjöf stofnunar-
innar er bent á að undanfarin ár hafi
verið veiddur innan við þriðjungur af
ráðlögðum hámarksfjölda. Þannig
var 81 hrefna veidd 2009, 52-60
hrefnur á árunum 2010 til 2012 en
einungis 36 á síðasta ári. Hafró mæl-
ir með að hámarksfjöldinn á næstu
tveimur árum verði 229 hrefnur og
það verður kvótinn.
Gunnar Bergmann Jónsson, tals-
maður hrefnuveiðimanna, segir að
útgerð skipsins Hrafnreyðar hafi
fengið leyfi til hrefnuveiða til eins
árs í senn en nú fái hún væntanlega
leyfi til fimm ára, samkvæmt nýju
reglugerðinni. Fagnar hann því
enda segir hann að það skapi meiri
stöðugleika í rekstri. Fleiri bátar
veiða hrefnu.
Veiðarnar gengu illa í sumar og
veiddust aðeins 36 dýr. Gunnar seg-
ir að stefnt sé að veiðum á 50 til 55
dýrum á næsta ári. Innanlands-
markaðurinn eigi að bera það. Von-
andi sé hægt að auka söluna og þá
um leið veiðarnar.
Hvalveiðar heimilaðar í fimm ár
Veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar ræður hámarksveiði hvers árs Heimilt er að veiða áfram 154
langreyðar og 229 hrefnur á næstu tveimur árum Lítill hluti hrefnukvótans hefur verið nýttur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á heimleið Hvalur 8 siglir inn Hvalfjörð með langreyði á síðunni í sumar. Hvalur hf. notar tvo hvalbáta til veiðanna.
Hvalirnir eru skornir í Hvalstöðinni og kjötið flutt til Japans. Ekki hefur tekist að veiða hámarksfjölda síðustu árin.
Útflutningur hvals
» Flutt voru út til Japans
386 tonn af frystum hvala-
afurðum í apríl til júlí á þessu
ári.
» Útflutningsverðmæti hvala-
afurðanna var 293 milljónir
kr., samkvæmt upplýsingum
Hagstofu Íslands. Meira en
helmingur verðmætanna var
fluttur út í apríl.
» Hrefnukjöt er eingöngu
selt á innanlandsmarkaði.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið
að heimila hvalveiðar næstu fimm
árin. Heimildin miðast við ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunar hverju
sinni. Kvótar síðustu ára, 154 lang-
reyðar og 229 hrefnur, hafa ekki ver-
ið nýttir nema að hluta.
Heimildin sem Sigurður Ingi Jó-
hannsson veitir nú til hvalveiða tek-
ur við af fimm ára hvalveiðileyfi sem
Einar K. Guðfinnsson, þáverandi
sjávarútvegsráðherra, veitti í lok
janúar 2009. Var það umdeild
ákvörðun þar sem ríkisstjórn Sam-
fylkingar var fallin og fyrri ríkis-
stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að
taka við. Þá var heimildin gagnrýnd
af fulltrúum ferðaþjónustu.
Tekið er fram í tilkynningu sjáv-
arútvegsráðuneytisins að ráðherra
hafi ákveðið að heimila áframhald-
andi hvalveiðar eftir samráð við rík-
isstjórnina. Þá er bent á að ákvörð-
unin er í samræmi við stefnu
stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu lif-
andi auðlinda hafsins og höfð hafi
verið hliðsjón af ályktun Alþingis um
hvalveiðar frá 1999.
Langreyðum fjölgar við Ísland
Veiðar á stórhvölum hafa verið
stundaðar með hléum frá hvalstöðv-
um á Íslandi frá árinu 1883 en frá
1948 hafa þær aðeins verið stund-
aðar frá Hvalfirði. Vísindaveiðar
Jólagjöfin
vínilplötur næst mesta úrval landsins
plötulspilarar
frá 36.700.-
Ármúla 38 | Sími 588 5010 | Opið: virka daga 11-18, laugard. 12-17
hljomsyn.com