Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
Skagaverk, Akranesi // Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi // Knapinn, Borgarnesi // Blossi, Grundarfirði
K.M Þjónustan, Búðardal // Vélsmiðjan Þristur, Ísafirði // Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga
Vélaval, Varmahlíð // Verslunin Eyri, Sauðárkróki // BYKO, Akureyri // Fákasport, Akureyri // Lífland, Akureyri
Landstólpi, Egilsstöðum // Fóðurblandan, Egilsstöðum // BYKO, Reyðarfirði // G.Skúlason verslun, Neskaupstað
Skaftárskáli, Kirkjubæjarklaustri // Víkurskáli, Vík // Fóðurblandan, Hvolsvelli // Dýralæknamiðstöðin, Hellu
Söðlasmíðaverkst.,Rauðalæk //Söluskálinn,Landvegamótum // Ásbúðin,Flúðum // Landstólpi,Gunnbjarnarholti
Baldvin og Þorvaldur, Selfossi // BYKO, Selfossi // Fóðurblandan, Selfossi // BYKO, Reykjanesbæ
Dýrabær, Reykjanesbæ // BYKO, Breidd // BYKO, Granda // Dýrabær, Kringlunni // Lífland, Reykjavík
Dýrabær, Smáralind // Hrímfaxi verslun og kerruleiga, Kópavogi // Top Reiter, Kópavogi
Eftirfarandi aðilar koma einnig að verkefninu:
Landssamband hestamannafélaga og VÍS
minna á mikilvægi endurskins.
Með því sjáumst við allt að fimm sinnum fyrr en ella.
Endurskinsvörur sem henta knöpum og hestum má nálgast í hentugum
pakkningum í eftirtöldum verslunum:
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
10 dagar til jóla
Jólasveinarnir í Dimmuborgum
mæta í sitt árlega jólabað í Jarðböð-
unum við Mývatn laugardaginn 14.
desember kl. 17. „Þeir eru nú mis-
glaðir bræðurnir með þessa hefð og
því um að gera fyrir alla að mæta
og taka þátt í fjörinu,“ segir í til-
kynningu. Sama dag verður mark-
aðsdagur í Jarðböðunum við Mý-
vatn frá kl. 12-18.
Dyngjan handverkshús verður
opin um helgina, jólaratleikur í
Dimmuborgum, aðventuhlaup,
þjóðlegt jólasveinakaffihlaðborð og
árbítur í Vogafjósi, fjölskyldu-
jólahlaðborð á Selhóteli Mývatni,
lesmessa í Skútustaðakirkju, há-
degisjóladiskur fyrir fjölskylduna í
Kaffi Borgum og aðventutónleikar
Krossbandsins í Fuglasafninu.
Jólasveinarnir í Dimmuborgum
taka á móti gestum á Hallarflötinni
alla daga frá kl. 13-15. Grýlusjóður
verður á sínum stað þar sem gestir
eldri en 18 ára greiða 1.000 kr.
Árlegt jólabað jólasveina í Mývatnssveit
Hjálparstarf kirkjunnar býður upp á fjölda gjafabréfa
fyrir jólin sem eru til fjáröflunar fyrir verkefni Hjálp-
arstarfsins á Íslandi, Indlandi, Eþíópíu, Úganda og
Malaví.
Bréfin eru alls 40 að tölu. Verðið er frá 1.500 krónum,
sem rennur í gjöf til barns á Íslandi og upp í 180.000
krónur sem er fyrir brunni í Afríku. Sem dæmi má nefna
að geitin kostar 3.200 krónur, kamarinn 8.500 krónur og
pakki af smokkum 3.000 krónur.
Gjafabréfasíðan gjofsemgefur.is er mikilvæg fjáröflun
fyrir starf Hjálparstarfsins.
Geitin hefur verið vinsæl jólagjöf á Íslandi en um 400 geitur voru gefnar
í jólagjafir í fyrra. Á sex árum hafa á fimmta þúsund geitur verið gefnar.
Þar koma þær fátækum fjölskyldum til góða, gefa af sér kjöt og mjólk sem
eykur fjölbreytni fæðu og leiðir þar með til betri heilsu. Hænur, vatn,
grænmeitsgarðar og tré eru einnig vinsælar gjafir á gjafabréfasíðunni.
Hjálparstarfið safnar fyrir bágstadda
Kona í Malaví.
Aðventan í Laugardalnum býður
upp á eitthvað fyrir alla fjölskyld-
una. Í fallegu umhverfi getur hún
átt saman skemmtilegan dag, segir
í tilkynningu. Auk þess að kíkja í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn er
hægt að skauta í kringum jólatré í
Skautahöllinni, heimsækja Ás-
mundarsafn, ganga um Grasagarð-
inn, fá sér heitt kakó og ristaðar
möndlur á Café Flóru eða stinga
sér í Laugardalslaugina.
Hægt verður að skella sér í ferðir
í Jólahringekjunni, Jólalestinni og
á hestbak á hestum garðsins um
helgina ef veður og færð leyfir.
Dýrin fá jólatuggu, jólasíld og
hvað sem við á og jólalegt tilboð
verður handa mannfólkinu í Kaffi-
húsi garðsins sem er opið alla daga
líkt og garðurinn. Nánari upplýs-
ingar um dagskrána í desember má
sjá á www.mu.is.
Morgunblaðið/Ómar
Laugardalur Leiktækin verða opin um
helgina ef veður og færð leyfir.
Mikið um að vera í
Laugardalnum
Börnin í frístundaheimilum Frosta-
skjóls í Vesturbænum og börn og
unglingar í Frosta standa fyrir jóla-
markaði til styrktar RKÍ. Mark-
aðurinn er opinn í dag frá kl. 16:30-
17:30.
Börnin í frístundaheimilunum
hafa undanfarið verið iðin við að
föndra ýmislegt skemmtilegt sem
þau munu selja foreldrum sínum og
öðrum velunnurum á jólamarkaði
fjölskyldunnar. Ungmennaráð
Vesturbæjar og miðstigsráð Tíu12
sjá um veitingasölu, en gestum
býðst að kaupa kaffi, kakó, pip-
arkökur og krap og njóta í góðum
félagsskap undir ljúfum jólatónum í
hverfisfrístundamiðstöðinni sinni.
Jólamarkaður
til styrktar RKÍ
Skógræktarfélag Mosfellsbæjar
stendur fyrir sinni árlegu jólatrjáa-
sölu í Hamrahlíðarskógi við Vestur-
landsveg. Opið verður frá klukkan 10
til 16 á laugardag og sunnudag. Jóla-
sveinninn verður í skóginum kl. 13:30
báða dagana.
Fram kemur í tilkynningu, að í
skóginum geti fjölskyldan sagað sér
alíslenskt jólatré fyrir jólin en einnig
eru til söguð tré á staðnum. Í Hamra-
hlíð hafa verið ræktuð tré í rúm
fimmtíu ár. Skógurinn er við Vest-
urlandsveg í Úlfarsfelli í Mosfellsbæ, mitt á milli Mosfellsbæjar og Reykja-
víkur. Skógurinn blasir við þegar Vesturlandsvegur er ekinn.
Jólatrjáasala í Hamrahlíðarskógi
Líf og fjör í skóginum.
Árleg aðventuhátíð verður haldin í
Úthlíðarkirkju laugardaginn 14.
desember kl. 16.00. Prestur verður
sr. Egill Hallgrímsson. Eftir
aðventuhátíðina verður farið í Rétt-
ina í messukaffi, jólaglögg og upp-
lestur jólabóka. Guðni Ágústsson
mun mæta og lesa úr nýrri bók
sinni „Guðni léttur í lund.“
Jólamessa Úthlíðarkirkju verður
að vanda á þriðja í jólum, kl. 16.00.
Sr. Egill Hallgrímsson messar og
söngsveinar Úthlíðarkirkju taka
lagið með kirkjugestum. Ágústa
Margrét Ólafsdóttir og Maríanna
Svansdóttir flytja flautuverk.
Árleg aðventuhátíð í
Úthlíðarkirkju
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Sérstaklega verður hugað að svæð-
um fyrir útilistaverk í hverfisskipu-
lagsvinnu Reykjavíkurborgar.
Skipulagsfulltrúi borgarinnar hefur
beint þessum tilmælum til verkefna-
stjóra umhverfis- og skipulagssviðs
og ráðgjafarhópa sem vinna við
skipulagið.
Í lok október lögðu borgarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins til að útilista-
verkum yrði fjölgað í eystri hluta
borgarinnar. Í bókun menningar- og
ferðamálaráðs kemur fram að þrjú
til fimm útilistaverk prýði hvern
borgarhluta að undanskilinni mið-
borginni þar sem þau séu fleiri. Í
Hlíðum og Laugardal eru verkin
raunar fleiri þar sem þar er að finna
Ásmundarsafn og talsverðan fjölda
verka í Grasagarðinum.
Ekki kostnaðarsamt
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokkisins, sem
stóð að tillögunni, segir að sér lítist
vel á að útilistaverk fái sérstakan
sess í hverfaskipulagsvinnunni.
Hann bendir á að í talningu sem
gerð var á útilistaverkum í borginni
hafi komið fram að engin verk séu í
Grafarholti og á Kjalarnesi. Þá séu
fá verk í Árbæ og Breiðholti. Graf-
arvogur sé sér á báti þar sem þar sé
Hallsteinsgarður.
Hugmynd sjálfstæðismanna sé
hins vegar sú að listin verði færð
meira inn í íbúðarhverfin hjá skólum
og öðrum opinberum stöðum segir
Kjartan. Hægt væri að rétta hlut
eystri byggða borgarinnar með
blönduðum aðferðum.
„Við sáum fyrir okkur að það væri
hægt að færa listaverk til og útbúa
styttur með litlum tilkostnaði með
því að gera afsteypur af verkum sem
eru til í geymslu eða til sýnis annars
staðar og koma þeim fyrir úti, og í
þriðja lagi að setja upp ný verk,“
segir Kjartan.
Tillagan ætti ekki að reynast
borginni dýr; því fylgi ekki mikill
kostnaður að færa listaverk til á milli
borgarhluta né taka afsteypur.
Huga að listaverkum í
hverfisskipulagsvinnu
Vilja færa listaverk til, taka afsteypur og láta gera ný
Morgunblaðið/RAX
Útilistaverk Sólfarið við Sæbraut er eitt af mörgum listaverkum sem prýða
miðborgina. Hugmyndir eru um að koma útilist fyrir víðar um borgina.
Skipulag
» Í aðalskipulagi borgarinnar
2010-30 segir að auka skuli
veg lista við framkvæmdir og
mótun umhverfis.
» Stefnt er að því að vinna
hverfisskipulag fyrir hverja
þeirra tíu stjórnskipulagsein-
inga sem borgin skiptist í.
» Verkefnisstjórar þess fá til-
mæli um að huga sérstaklega
að útilist frá skipulagsfulltrúa.