Morgunblaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 84
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 348. DAGUR ÁRSINS 2013
Kvikmyndin The Secret Life of
Walter Mitty var sýnd á sérstakri
hátíðarsýningu í Smárabíói hér á
landi í fyrrakvöld og ávarpaði leik-
stjóri og aðalleikari hennar, Ben Still-
er, gesti í myndskeiði. Stiller sló á
létta strengi eins og hans er von og
vísa og var mikið hlegið að tilraun
hans til að bera fram „Eyjafjallajök-
ull“. „Eyjafaddakutta“ sagði Stiller,
stoltur af framburðinum. Þá þakkaði
hann íslenskum leikurum og aðstoð-
armönnum sínum við tökurnar hér á
landi, m.a. Ólafi Darra Ólafssyni og
hljómsveitinni Of Monsters and Men
en tónlist hennar hljómar í myndinni.
AFP
„Eyjafaddakutta“
Tónlistarkonan
Adda fagnar út-
gáfu sex laga
hljómplötu sinnar,
My Brain E.P., með
tónleikum í kvöld
kl. 20.30 á Kex
hosteli. My Brain
E.P. er fyrsta sóló-
plata söngva-
skáldsins Öddu sem hóf tónlistarfer-
ilinn með raftónlistarhljómsveitunum
Spúnk og Big Band Brútal. Með Öddu
koma fram í kvöld Sunna Ingólfs-
dóttir söngkona og Kristín Þóra Har-
aldsdóttir víóluleikari.
Útgáfutónleikar
Öddu á Kex hosteli
Jólatónleikar tónleikarað-
arinnar Malarinnar fara fram á
Malarkaffi á Drangsnesi
annað kvöld kl. 21. Sig-
ríður Thorlacius, Guð-
mundur Óskar Guð-
mundsson og Bjarni
Frímannsson flytja
þar hugljúf jóla-
lög.
Jólalegt á Mölinni
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Gunnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Guðmundi Jón-
assyni ehf. undanfarin 55 ár, er 75 ára
í dag, en í stað þess að blása til veislu
ákvað hann að slá tvær flugur í einu
höggi og halda upp á tímamótin í
góðra vina hópi á Akranesi. „Ég hef
ekið með félaga í Skötuklúbbnum í
árlega skötuveislu í mörg ár og vildi
ekki sleppa félagsskapnum og veisl-
unni fyrst þetta hittist svona á.“
Gunnar er ánægður með hvernig
til hefur tekist með uppbyggingu
ferðaþjónustunnar og sérstaklega
hvað vetrarferðirnar varðar. Rík-
issjóður hafi örugglega fengið útlagð-
an kostnað og vel það til baka vegna
átaksins Inspired by Iceland, en hafa
beri í huga að mörg hjól, lítil og stór,
hafi gert árangurinn mögulegan, allt
frá flugfélögum að afþreyingarþjón-
ustu. „Þetta hefur verið afskaplega
dýr uppbygging sem ekki er farin að
skila sér nóg, sérstaklega í hótel-
málum, en þau þarf til þess að hægt
sé að taka á móti þeim sem vilja koma
hingað.“
Þórsmörk sérstök
Lengi ók hann með farþega frá
Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur.
„Ég fór stundum tvær til þrjár ferðir
á dag á gamla Keflavíkurveginum,“
segir hann og bætir við að þótt allur
akstur sé skemmtilegur standi Þórs-
merkurferðirnar upp úr. „Það hefur
alltaf verið ljómi yfir þeim.“
Gunnar Guðmundsson hættir sem
framkvæmdastjóri um áramótin en
hann hefur keyrt víða með hópa.
Hann segir að skemmtilegasti tíminn
hafi verið þegar hann ók með Íslend-
inga um Evrópu í yfir 20 sumur.
Fyrst hafi aðeins mátt aka með hópa
sem sigldu með Norrænu fram og til
baka en eftir að leyft hafi verið að
taka við hópum á flugvöllum hafi fyr-
irtækið verið með bíla í Lúxemborg
og síðar í Frankfurt. „Tékknesk
ferðaskrifstofa vildi koma hingað með
hópa og við urðum að leigja flugvélina
á móti,“ segir hann um upphaf ferð-
anna til Prag. „Það gekk erfiðlega í
fyrstu en það hafðist fyrsta árið og
síðan var uppselt næstu árin á eftir.
Þá var rætt um að fjölga ferðum og í
kjölfarið byrjuðum við að keyra til
Prag frá Frankfurt.“
Á þessum tíma ók Gunnar vítt og
breitt um meginland Evrópu, norður
um Noreg og suður til Rómar á Ítal-
íu, um Danmörku, Þýskaland, Pól-
land og Ungverjaland. „Í huganum er
þetta dálítið eftirminnilegur kafli,“
segir hann.
Sleppir ekki skötuveislunni
Heldur upp á 75 ára afmælið með
akstri til Akraness og skötuáti
Morgunblaðið/RAX
Traustir bílar Gunnar Guðmundsson framan við eldhúsbílana sem fyrirtækið hefur notað í ferðum um hálendið í yfir hálfa öld.
Guðmundur Jónasson, faðir
Gunnars, var frumkvöðull í
óbyggðaferðum og ferðaþjón-
ustu. Gunnar minnist margra
skemmtilegra ferða um óbyggð-
ir og ekki síst áður en hann tók
meiraprófið. „Þá var ég á göml-
um GMC-herbíl sem pabbi átti
og leigði rafmagnsveitunum
vegna rannsókna,“ rifjar hann
upp. Bætir við að um 1958 hafi
rannsóknir við Þórisvatn byrjað
og þá hafi þurft að fara yfir
Hófsvað. „Ég fékk fyrst að fara
með inn í Jökulheima þegar ég
var 16 ára og síðan hef ég fylgst
með því hvernig ferðaþjónustan
hefur orðið til og vaxið.“
Frumkvöðull í
óbyggðaferðum
GUÐMUNDUR JÓNASSON
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
1. Rúmir 8 mánuðir frá hvarfi Friðriks
2. Wiig: Enginn skandall á Íslandi
3. Dýrasta sjónvarpið á Íslandi
4. Guðjón Valur yfirgefur Kiel
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 3-8 m/s og dálítil él vestantil, annars léttskýjað. Frost 2
til 12 stig, kaldast inn til landsins.
Á sunnudag Suðlæg átt 5-10 m/s og dálítil él suðvestanlands, annars víða bjartviðri.
Frost 0 til 12 stig, kaldast inn til landsins austantil. Á mánudag Suðvestanátt, víða 5-10
en hvassari suðvestantil. Él, en bjartviðri á Norðaustur- og Austurlandi. Frost 0 til 8 stig
en hiti yfir frostmarki með suður- og vesturströndinni.
Það verða erkifjendurnir í Hafn-
arfirði, Haukar og FH, sem leika til úr-
slita um deildabikar karla í hand-
knattleik í dag eftir að hafa unnið
örugga sigra á Fram og ÍBV í gær-
kvöld. Í kvennaflokki eigast Stjarnan
og Grótta við í úrslitaleiknum en
Grótta gerði sér lítið fyrir og vann Val
með fimm mörkum og Stjarnan vann
ÍBV mjög örugglega. »2-3
Erkifjendur í úrslita-
leiknum í Hafnarfirði
„Sú hugmynd hefur oft verið
nefnd að auka þurfi vægi
deildabikarsins, eða Lengju-
bikarsins eins og hann heitir
nú. Sú hugmynd sem ég vil
kasta fram, og tel að hefði
fleiri kosti en galla, er að sig-
urvegari A-deildarinnar
ávinni sér rétt til umspils-
leiks að hausti um sæti í for-
keppni Evrópudeildarinnar,“
skrifar Sindri Sverrisson í
viðhorfsgrein. »4
Vægi deildabik-
arsins verði aukið
Alexander Petersson tekur endan-
lega ákvörðun á næstu dögum um
hvort hann spili með íslenska lands-
liðinu á EM í Danmörku í janúar. Hann
glímir við þrálát meiðsli í öxl og þarf
að bryðja bólgueyðandi töflur til að
geta spilað með Löwen í Þýskalandi.
Hann ræður illa við að spila þrjá leiki
á viku. „Ég þarf að hugsa um öxl-
ina til fram-
tíðar,“ segir
Alexander.
»1
Bryður bólgueyðandi til
að spila með Löwen
»MEST LESIÐ Á mbl.is