Morgunblaðið - 14.12.2013, Síða 24

Morgunblaðið - 14.12.2013, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 Laugavegi 174 Sími 590 5040 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 12-16 Einstakt tækifæri til að eignast Audi eðalvagn Við fjármögnum bílinn fyrir þig lykill.is Bluetooth símabúnaður Audi A4 2.0 TDI Árgerð 2011, dísil Ekinn 57.000 km, beinsk. Ásett verð 4.190.000,- Audi A4 2.0 TDI Árgerð 2012, dísil Ekinn 33.500 km, sjálfsk. Ásett verð 5.850.000,- Audi A4 Avant 2.0 TDI Árgerð 2011, dísil Ekinn 36.000 km, sjálfsk. Ásett verð 4.850.000,- Audi A4 Avant 2.0 TDI AT Árgerð 2012, dísil Ekinn 26.000 km, sjálfsk. Ásett verð 5.850.000,- Milano leður, Bluetooth símabúnaður Gunnar Dofri Ólafsson Stefán Gunnar Sveinsson Pétur Magnússon, forstjóri Hrafn- istu, segir forsvarsmenn hjúkrunar- heimila hafa árum saman sagt að daggjöld til hjúkrunarheimila séu of lág. Guðjón Magnússon, formaður stjórnar Sunnuhlíðar, sagði í fréttum Morgunblaðsins og mbl.is fyrr í vik- unni að daggjöld sem ríkið greiddi með hjúkrunarsjúklingum til hjúkr- unarheimila væru of lág til að standa undir rekstri hjúkrunarheimila. „Daggjöldin lækka ár frá ári því þau halda ekki í við verðlag, þrátt fyrir að öðru sé haldið fram,“ segir Pétur. „Hrafnista stendur vissulega betur sökum stærðarhagkvæmni, en það kemur ekki á óvart að það sé komið í óefni hjá einhverjum af minni hjúkrunarheimilunum.“ Hann segir ríkið enn gera kröfu um sama þjónustustig, án þess að þeim kröfum fylgi fjármunir til að veita hana. Almennar aðgerðir Gísli Páll Pálsson, forstjóri hjúkr- unarheimilisins Merkur og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjón- ustu, segir mörg þeirra hjúkrunar- heimila sem eigi aðild að samtökun- um vera í fjárhagsvandræðum, en þekki ekki til þess að nein þeirra séu í jafnslæmri stöðu og Sunnuhlíð. Hann tekur í sama streng og Pétur hvað varði daggjöldin – þau séu of lág. Hann fagnar því að heilbrigð- isráðherra ætli ekki að ráðast í sér- tækar aðgerðir til að bjarga einstaka hjúkrunarheimilum. Slíkar aðgerðir þurfi að vera almennar og þá með þeim hætti að hækka daggjalda- grunninn. Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri lífeyrissjóðsins Gildis, segir sjóðinn fyrst og fremst horfa til hagsmuna sjóðsfélaga þegar upp komi að launagreiðendur skili ekki iðgjöldum. Megnið af því starfsfólki Sunnuhlíðar sem er í verkalýðsfélag- inu Eflingu greiðir í sjóðinn. „Við högum okkar innheimtu í samræmi við lög og reglur og okkar útgangs- punktur er að sjóðfélagar tapi ekki réttindunum.“ Hann vildi ekki ræða stöðu Sunnuhlíðar sérstaklega. 300 milljóna skuldir Stjórn Sunnuhlíðar sendi á mið- vikudaginn Kópavogsbæ og ríkinu erindi þess efnis að taki þessir aðilar ekki afstöðu til þess hvor þeirra muni taka yfir rekstur Sunnuhlíðar sjái stjórnin þann einn kost að segja upp starfsfólki. Sunnuhlíð fékk á fjárlögum síð- asta árs um 602 milljónir til rekstrar heimilisins, en í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir að fram- lög ríkisins hækki í 642 milljónir. Skuldir félagsins nema um 300 millj- ónum, helmingi þeirra fjárhæðar sem það fékk frá ríkinu í ár. Á heim- ilinu eru 70 heimilismenn og 140 starfsmenn í 83 stöðugildum að jafn- aði á mánuði. Rekstrarvandi heim- ilisins kom upp á yfirborðið þegar Morgunblaðið hóf að grennslast fyr- ir um hvers vegna Sunnuhlíð hefði ekki staðið skil á lögbundnum lífeyr- issjóðsiðgjöldum. Morgunblaðið/Golli Í vanda Stjórn Sunnuhlíðar vill að hið opinbera taki við rekstri hjúkrunarheimilisins. Ríki og sveitarfélag benda á hvort annað. Forstjórar hjúkrunarheimila segja vandann felast í því að daggjöld frá ríkinu dugi ekki fyrir rekstri. Daggjöld rót vandans  Forstjórar hjúkrunarheimila segja framlög ríkisins of lág  Þjónustukrafa ríkisins er óbreytt en framlögin lækka Óvissa á Sunnuhlíð » Forstjórar hjúkrunarheimila benda á að daggjöld sem ríkið greiðir hjúkrunarsjúklingum séu allt of lág. » Lífeyrissjóðirnir leggja áherslu á að tryggja rétt sjóðsfélaga. » Sunnuhlíð fékk um 602 milljónir frá ríkinu á fjárlögum í ár, en skuldar um 300 milljónir. Gunnar Dofri Ólafsson Stefán Gunnar Sveinsson Fulltrúar sveitarfélaga eru sammála um að það sé ríkisins að leysa þann vanda sem hjúkrunarheimili stefni í, þar sem ábyrgð á málaflokknum liggi hjá ríkinu. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, segir að Sunnuhlíð hljóti því að snúa sér fyrst til ríkisins. „Vandamálið er í grunninn að daggjöldin eru of lág, þannig að þau duga ekki fyrir rekstrinum, og við sjáum þessi vandamál hrannast upp á fleiri stöðum en þessu hjúkr- unarheimili.“ Ármann segir að flestir rekstrarað- ilar hjúkrunarheimila séu í vandræð- um með að láta enda ná saman, en á höfuðborgarsvæðinu séu það langoft- ast sjálfseignarstofnanir sem sjái um slíkan rekstur. „Þess vegna hlýtur það að vera þannig að þegar vanda- mál af þessu tagi komi upp að ríkið komi að málum. Sveitarfélagið kemur þar hvergi nærri,“ segir Ármann. Kristján Þór Júlíusson heilbrigð- isráðherra sagði í Morgunblaðinu í gær, að hann ætti bágt með að trúa því að sveitarfélagið myndi skorast undan þeim skyldum sem leiddu af svona stöðu. Ármann tekur ekki und- ir þau orð. „Mér finnst mikilvægt að ríkisvaldið geri sér grein fyrir þeim skyldum sem á því hvílir. Það hefur engin áhrif að ætla sér að nálgast sveitarfélagið með því að víkja sér undan ábyrgð.“ Viðræður við ríkið um málið Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, tekur í sama streng og Ármann. Hall- dór segir að sveitarfélögin hafi verið í viðræðum við ríkið um að sveitarfélög tækju yfir málefni aldraðra. „Við ákváðum að hægja verulega á því, vegna þess að við sjáum það í þessari vinnu að ríkið sem ber ábyrgð á þess- um málaflokki stendur sig ekki. Málaflokkurinn er því ekki í nægilega góðu ástandi til þess að sveitarfélögin geti tekið hann yfir,“ segir Halldór. Halldór segir vandann liggja í því að of algengt sé að daggjöldin frá rík- inu séu ekki nóg. „Þá segir ríkið að þetta sé ekki sitt vandamál og vísar á einhvern annan,“ segir Halldór. „En auðvitað eru sveitarfélögin alltaf tilbúin að ræða við ríkið um leið- ir til að leysa málin, en það verður að vera mjög skýrt í umræðunni að þetta er verkefni ríkisins,“ segir Hall- dór Halldórsson. Ábyrgðin er á hendi ríkisins  Hægt á viðræðum milli ríkis og bæja Ármann Kr. Ólafsson Halldór Halldórsson Sunnuhlíð er fyrsta byggingin á Ís- landi sem er sérhönnuð sem hjúkr- unarheimili fyrir aldraða. Þar eru 73 hjúkrunarrúm í 53 herbergjum og er heimilinu skipt í tvær deildir og fjórar starfseiningar. Sjálfs- eignarstofnunin „Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi“ var stofnuð árið 1979. Byggingin var meðal annars fjármögnuð með söfnun meðal Kópavogsbúa, en einnig gáfu aðilar til verksins. Ragnhildur Guðbrandsdóttir tók fyrstu skóflu- stunguna að hjúkrunarheimilinu í janúar 1980. Hún var þá elsti íbúi Kópavogs, 101 árs gömul að aldri, og var Ragnhildur skráð í Heims- metabók Guinness sem elsta manneskjan til að taka skóflu- stungu. Sunnuhlíð var opnuð formlega í maí 1982, og var fyrsti íbúinn Þórður Þorsteinsson á Sæbóli, fyrrverandi hreppstjóri Kópavogs. Fyrsta sérhannaða heimilið HJÚKRUNARHEIMILIÐ SUNNUHLÍÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.