Morgunblaðið - 14.12.2013, Side 10

Morgunblaðið - 14.12.2013, Side 10
Tyrfa Benjamín og Inga María höggva með sveðjum í torfið sem leggja skal. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Hér er alltaf kveðið í há-deginu,“ segir GuðjónKristinsson Stranda-maður og hleðslumeist- ari þar sem hann situr með hundinn Mána í fanginu í skúr úti á Granda, umkringdur fólkinu í Þúfnahernum, eins og hann kallar flokkinn sem vinnur með honum að því að byggja skúlptúr Ólafar Nordal, risastóra þúfu. Hann hefur dreift blöðum með texta og nótum að nokkrum stemmum og allir taka undir, líka listakonan Ólöf, sem er í heimsókn til að athuga hvernig verkið gengur. Allt í einu hrópar Guðjón uppyfir sig og biður einhvern fara út og stoppa hundinn sem þar virðist vera kominn í slag við mink. „Þetta er minkahundur og hann leikur sér að því að klippa mink í sundur, en við viljum ekki að hann drepi minkinn sem er stundum að stjákla hérna af því að hann heldur niðri rottunum. Hann er verndari hafnarinnar.“ Stemningin er einstaklega góð í Þúfnahernum og Ólöf hefur skýr- ingu á því. „Það er af því að hann Guðjón er svo bjartsýnn, það er alltaf sólskin í kringum hann. Alveg sama hvað veðrið er vont.“ Í beinu framhaldi vill Guðjón koma því að að þau Ólöf séu bæði ættuð úr Hörgárdal og auk þess skyld. „Ólöf er afkomandi Sigríðar Guðmunds- dóttur en ég er afkomandi systur hennar, Rósu Guðmundsdóttur eða Skáld-Rósu, sem kennd er við Vatnsenda.“ Steinsmiðurinn er kona „Þetta var eins og í ævintýr- unum, ég valdi í upphafi þrjá menn, hvern í sínu lagi, til að taka að sér verkið og þegar þeir mættu hér þá reyndust þeir allir vera bræður,“ segir Ólöf og hlær en Guðjón bætir því við að auk þess séu synir þeirra bræðra í hópnum. „Annars valdi fólkið í Þúfna- hernum sig sjálft í þennan flokk sem inniheldur bæði karla og kon- ur. Við erum til dæmis með unga fjallakonu frá Sviss, hana Karin, sem er steinsmiður og sérlega flink. Við erum líka með Birki Axelsson, ungan hleðslumann sem er Norður- landameistari í faginu. Ég er afar ánægður með fólkið í hernum, ég segi um það eins og bóndi nokkur á Ströndum sagði eitt sinn: Hér er hver silkihúfan upp af annarri.“ Guðjón og tíu manna Þúfnaherinn hafa verið undanfarna rúma tvo mánuði að reisa þúfuna stóru, enda mikið vandaverk. „Við höfum verið Þúfnaherinn öflugi reisir risaþúfu Risaþúfan hennar Ólafar Nordal er næstum tilbúin þar sem hún hefur risið hægt og sígandi úti á Granda undanfarna tvo mánuði. Ofan af henni sér vítt til allra átta. Meðlimir Þúfnahersins, sem hefur unnið verkið, láta hörkufrost og vond veð- ur ekki stoppa sig nokkra stund. Þau kveða rímur í hádegishléinu. Uppi á toppi Guðjón og Ólöf kunna vel við sig efst uppi á þúfunni. Mikið verk Verkið er langt komið en til þess þarf stórvirkar vinnuvélar. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 Jólamarkaðurinn við Elliðavatn hefur fest sig í sessi og mörgum finnst ekki koma jól fyrr en þeir leggja leið sína þangað. Þar eru seld íslensk jólatré og fjölbreytt íslenskt handverk. Núna um helgina verður margt skemmti- legt þar um að vera, jólasveinninn mætir í jólaskóginn kl. 11.30 og skemmtir og Skólakór Álfhólsskóla syngur undir stjórn Þórdísar Sævars- dóttur. Andri Snær Magnason les upp úr bók sinni Tímakistan og á sama tíma mætir jólasveinn á markaðinn og skemmtir gestum. Klukkan 14 verður Barnastund í Rjóðrinu við snarkandi varðeld og Huginn Þór Grétarsson les upp úr bók sinni Fiðrildavængir og Harm- onikkusveitin Hildarleikur leikur fyrir gesti á Kaffistofunni. Jólasveinninn mætir enn og aftur rétt fyrir klukkan hálfþrjú í Rjóðrið þar sem sungin verða jólalög og farið í leiki. Snorri Helgason spilar og syngur fyrir gesti Kaffistofunnar kl 15 og spákonan Sveinbjörg Rósa spáir fyrir gestum frá kl. 11-16. Á morgun, sunnudag, kemur hinn síkáti jólasveinn í Jólaskóginn kl 11.30 og skemmtir þar gestum til 15.30 og annar jólasveinn skemmtir krökkunum í hlaðinu kl. 13 en þá les líka hún Vigdís Grímsdóttir upp úr bók sinni Dísusaga á Kaffistofunni. Barnastund verður í Rjóðrinu kl. 14 við snarkandi varðeld og Kristín Helga Gunnarsdóttir les upp úr bók sinni Mói hrekkjusvín, Kúreki í Ari- sóna. Harmonikkuleikararnir Guðrún Guðjónsdóttir og félagar spila fyrir gesti og kl. 15 spilar Strengjatríóið Norðlingarnir jólalög á fiðlu og selló. Jólasveinninn mætir í rjóðrið kl. 14.20 og syngur og leikur með krökk- unum og spákonan Eva spáir fyrir gestum jólamarkaðarins frá kl. 11-16. Heldur betur líf og fjör í skóginum! Vefsíðan www.facebook.com/heidmork Morgunblaðið/Golli Varðeldur Í Rjóðrinu verður snarkandi varðeldur sem börnin kunna vel við. Líf og fjör í skóginum í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Síkátur Jólasveinninn verður á sveimi í Elliðaárdalnum. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Opið verður í dag hjá Kaffi-Seli, golfskálanum á Flúðum, frá kl. 12-20. Boðið verður upp á ljúf- fengar pítsur en líka þjóðlega bjúgnaveislu með hráefni frá Böðmóðsstöðum. Gréta Gísla- dóttir myndlistarkona setur upp vinnustofu í skálanum þar sem hún ætlar að mála og vera með verk sín til sýnis og sölu. Bóndi Grétu, Karl Hallgrímsson, mun leika ljúfa tóna. Sjá nánar verk Grétu: www.gretagisla.is. Bjúgnaveisla JÓLASTEMNING HJÁ KAFFI- SELI Á FLÚÐUM tofrandi jolagjafir Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com VERBENA GJAFAKASSI Jólatilboð: 6.350 kr. Andvirði: 7.850 kr. Sápa 100 g - 680 kr. | Ilmpoki 35 g - 1.110 kr. Sturtusápa 250 ml - 2.230 kr. | Húðmjólk 250 ml - 3.830 kr. .. ‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.